SÍBS blaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 5

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 5
SífiSjiJaðið Gefum gleöirmi tækifæri Helga Fr'ðfinnsdóttir Það er lífsgleði í vinningaskrá Happdrættis SÍBS við upphaf nýrrar aldar. Forsíða þessa blaðs er prýdd mynd eftir myndlistarmanninn Magnús Kjartansson, en verk hans munu gleðja viðskiptavini happdrættisins í ár. Eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu hefur Magnús málað fýrir okkur Qórar myndir sem allar eiga það sameiginlegt að koma okkur í gott skap. Þær eru þrungnar lífsgleði. Eftirmyndir þeirra, sérunnar í Grikklandi, verða á vinningaskránni í október nk. Þannig eru alltaf einhverjir sem hljóta verðlaun íyrir stuðning sinn við lifið. Bygging Endurhæfingarmiðstöðvar fram- tíðarinnar að Reykjalundi gengur vel. All nokkuð vantar þó til að unnt sé að ljúka þessu mikla átaki sem nýtast mun þjóöinni á ókomnum árum. Nú, eins og svo oft áður, skora ég á allt SÍBS-fóIk: Leggiö Happdrætti SÍBS lið eins og þið frekast getið. Hvetjið vini og vandamenn, samstarfsfólk og kunningja til að kaupa miða. Við þurfum á stuðningi ykkar að halda. Aðeins með samstilltu átaki tekst okkur að ijúka þessu mikla verkefni. Gefum lífsgleðinni tækifæri. En hvernig tengist Happdrætti SIBS lífsgleðinni enn frekar? Jú, endurhæfingarstarfið á Reykjalundi gefur nýja von og nýja gleði því fólki sem þar nýtur þjálfunar ár hvert. Margir koma þang'að illa leiknir eftir sjúkdóm eða slys en njóta þess að halda heim aftur hlaðnir nýjum þrótti og albúnir að takast á við lífíð á ný. Flug svananna á forsiðunni minnir óneitanlega á þær vonir sem bundnar eru við starfið á Reykjalundi. Ég má til með að segja ykkur frá konu sem ég hitti þar kaldan vetrardag fýrir rúmu ári. Kraftur hennar og reisn í fasi vakti strax athygli mína. Hana langaði að segja mér hvernig hefði „farið fýrir sér“ þegar hún hugðist launa fýrir þá heilsu og þá umönnum sem hún hafði hlotið á Reykjalundi. Hún keypti sér miða í Happdrætti SÍBS og strax við fýrsta útdrátt hlaut hún verulega vænan vinning. „Ég hafði fengið heilablóðfall eftir barnsfæöingu. Á Reykjalund kom ég í hjólastól en gekk út við hækjur. Eftir útskrift vann ég á vernduðum vinnustað um tíma. Fjárhagsstaða mín var mjög slæm og allt mitt lif í rúst. Þú getur því rétt ímyndað þér hvort ég varð ekki glöð þegar mér var tilkynnt um vinninginn. Ég hrópaði upp yfir mig og trúði þessu varla. Ég ætlaði bara að sýna smá þakklæti fýrir allt sem Reykjalundur hafði gert fýrir mig. Nú hef ég verið hér í frekari þjálfun og er alveg að ná mér“, sagði þessi glæsilega kona þegar við gengum saman eftir ganginum á Reykjalundi og undirrituð varð að hafa sig alla við til að fýlgja henni eftir svo hressilega gekk hún við lok þjálfunar. Helga Friðfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS. GRÆNM6T1 í ÁSKRIFT Lífrænt rækfað grasometi „Valkostur fyrir vandláta“ Heilbrigði og hollusta fyrir neytendur sem vilja fá úrvalsgrænmeti beint frá framleiðanda. Tómatar Gúrkur Paprikur Kirsuberjatómatar Chile-pipar Gulrætur Upplýsingar og frekari útfærslu gefa: Þórður G. Halldórsson og Karólína Gunnarsdóttir Akur, Laugarási 801 Selfoss Sími: 486-8983 e-mail: akurbisk@isholf.is

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.