SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 18
Myndir úr hjartagöngu 1999 í Elliðaárdalnum.
lega Landssöfnun Neistans, Stöövar 2 og
SPRON sem haldin var 14. mars 1997. En aö
sjálfsögðu þá er þaö góömennsku og kærleik
landsmanna aö þakka að viö skulum eiga
þennan sjóð, því auövitaö eru þaö þeir sem
greiöa götur okkar meö því aö kaupa af okkur
jólakort, jólamerki og margir hverjir gerast
styrktaraðilar meö því að greiða árgjald til
félagsins. Á flmm árum hafa verið greiddar
rúmlega sjö milljónir króna úr styrktarsjóðnum
til Qölskyldna hjartveikra barna.
Blóðsöfnun 14. mars
Eftir landssöfnunina höfúm viö haldiö 14. mars
hátíðlegan á hverju ári, með því aö safna blóði
fyrir banka allra landsmanna Blóðbankann. Þar
höfum við opiö hús og kynnum bæði Blóðbank-
ann og Neistann. Svona lagaö tækist ekki nema
með góðri hjálp. Blóðbankinn hefur lengt opn-
unartíma sinn á þessum dögum og sjálfboðaliðar
frá Kvennadeild RKÍ hafa lagt sitt af mörkum til
að gera þetta mögulegt. Setjum öll rauðan hring
utan um 14. mars þvi við ætlum svo sannarlega
að halda þessari blóðsöfnun áfram.
Fjáraflanir
Til að afla ijár fyrir liknarfélag þurfa allir að
leggjast á eitt. Mörg fyrirtæki hafa stutt vel við
bakið á Neistanum og má þar m.a. nefna Olís,
Grillveisla í Mjódd að göngu lokinni. Par var m.a.
lúðraþytur fyrir göngufólkið.
Nettó, Vífilfell, Breiðholts-bakarí o.fl. Einnig
höfðu Lýsi hf. og nemendur í Mýrarhúsaskóla
keppni um að allir nemendur tækju inn ráð-
lagðan Lýsis skammt á hverjum degi í fimm
daga. Voru krakkarnir mjög dugleg að taka inn
lýsisskammtinn sinn á hverjum degi, Lýsi hf.
gaf svo í styrktarsjóð Neistans 225,00 kr. fyrir
hvern skammt sem krakkarnir tóku inn. Gaf
þetta tæplega hálfa milljón í sfyrktarsjóð
félagsins.
í nóvember 1998 var haldin stórfengleg
jólasýning í Laugardalshöllinni „Jólahöllin".
Var það samdóma álit allra sem til þekkja að
þarna voru miklir fagmenn að störfum og allt
skipulag til sóma, en það var fyrirtækið Islensk
kynning ehf. sem stóð fyrir þessari sýningu.
Allur aðgangseyrir rann óskiptur í sfyrktarsjóð
Neistans. Þessi glæsilega sýning skilaði rúm-
lega tveimur milljónum i sfyrktarsjóðinn.
Seinnipart septembermánaðar 1998 héldu sjö
galvaskir Elafnfirðingar úr Björgunarsveitinni
Fiskakletti í Hafnarfirði á fjallið Ama Dablam í
Nepal. Fjallið er 6.856 m hátt og er i austur-
hluta Himalayafjallgarðsins. Á meöan á göngu
þeirra félaga stóð var safnað áheitum fyrir
Neistann.
Þessi dæmi hér að ofan sýna það aö það eruð
þiö, fólkið í landinu, sem hjálpið okkur að
sfyðja við bakið á fjölskyldum hjartveikra
barna og fyrir það erum við afar þakklát.
Neistinn gefur
Neistinn hefur gefið meira heldur en bara blóð
í blóöbankann. Fyrir jólin 1998 gáfum við
Barnaspítala Hringsins haus á ómsjá. Haus
þessi er notaður til að skoða hjörtu í unga-
börnum, fyrirburum og fóstrum. Mikill munur
er á myndgæðum á þessum haus og þeim eldri
og má með sanni segja að þetta sé bylting fyrir
hjartasérfræðingana okkar til að vinna meö.
Verðmæti þessarar gjafar var um tvær milljónir
króna og erum við forsvarsmenn Neistans stolt
af henni.
LHS / SÍBS
Stuttu eftir stofnun Neistans gengunr viö í
Landssamtök hjartasjúklinga og erum við skráð