SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 30

SÍBS blaðið - 01.01.2001, Qupperneq 30
ilB-S_tJaöiö Kausnarleg gjöf Nú er veriö að loka formlega söfnun þeirri sem hófst meö átakinu Sigur lífsins síðla árs 1998. Margir sem gáfu í söfnunina létu taka af kortareikningum ákveöiö framlag á mánuði í allt að tvö ár. Aðrir gáfu stórar upphæðir eða smáar eftir efnum og ástæðum og greiddu þær í einu lagi. Einhver rausnarlegasta gjöfin sem barst í þessa söfnun kom frá Félagi Vatnsvirkja-Eignarhaldsfélagsins ehf. Thelma Grímsdóttir, einn fulltrúa gefenda sagði að ákveðið hefði verið á síðasta fundi þessa fyrirtækis, þar sem félagið var lagt niður var samþykkt að láta það fé sem eftir stæði, þegar gengið hefði verið frá öllum endum, ganga til byggingarinnar á Reykjalundi. Þetta var samþykkt einróma og að gjöfin ætti að vera til minningar um og í anda þeirra frumkvöðla sem í upphafi stofnuðu félagið. Þeir voru allir „vatnsvirkjar", þ.e.a.s. pípulagningamenn og áttu því tengsl við starfsemina á Reykjalundi á margvíslegan hátt. í framhaldi af því var gjöfin afhent til byggingar endurhæfingarstöðinni á Reykjalundi. Og, - eins og Thelma orðaði það: „Okkur fannst það mundi koma sér vel fyrir framtíðina." Og þaö eru orð að sönnu. Upphæðin sem lögð var fram nam kr. 3.949 900 og kemur sér vel. Hér með er komiö á framfæri þökkum frá stjórn SÍBS fyrir þetta framlag og allan þann hlýhug sem þjóðin hefur sýnt byggingarframkvæmdum og starfinu á Reykjalundi. 41 Frá Keykjavíkurdeild SIBS Deildin er í raun 60 ára gömul. Áður hét hún Berklavörn í Reykjavík og var öflugasta deildin í uppbyggingu SIBS og Reykjalundar. Félagar eru nú á áttunda hundrað og fer ijölg- andi. Þetta fólk er áhugasamt um að halda merki SÉBS hátt á lofti og þá ekki síður Reykja- lundar, sem var og verður vonandi á heims- mælikvarða. Félagslíf í deildinni er gott. Félagsvist er spiluð einu sinni í mánuöi að vetrinum og farin sumarferð og leikhúsferö. Einn af stjórnarmönnum deildarinnar, Þorsteinn Sigurðsson, fékk þá tillögu sam- þykkta á síöasta þingi, að safna 200 milljónum á næstu tveimur árum fyrir endurhæfingar- húsið á Reykjalundi. Þetta er nokkurn veginn það sem þarf til að ljúka byggingunni. Þetta verður því brýnasta verkefnið framundan og er hér með skorað á alla félaga að efla Happrætti SIBS sem mest og afla auk þess ijár með öllum ráðum. Herbergi félagsins í Suðurgötu 10 verður fram- vegis mannað á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15.00 til kl. 17.00. Myndina tók Sveinn Indriðason nú nýlega af framkvæmdunum á Reykjalundi. Tíðarfarið hefur verið okkur hagstætt og nú er byggingin komin upp úr jörðinni, allar gólfplötur steyptar og veggir rísa einn af öðrum með ótrúlegum hraða. Áformað er að húsið verði tilbúið án lausabúnaðar 25. október 2001, eftir 10 mánuði. Sv.I.

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.