Femina - 01.11.1946, Page 22
safnast oft á olnbogana. Gott er að
gera sér að reglu að smyrja jafnan
kreminu, sem afgangs verður, þegar
það er borið á andlitið, á olnbogana
og nudda þá vandlega. — Lxkþorn eru
mjög algengur sjúkdómur á fótum.
Þeim valda oftast þröngir skór. Auð-
veldast er því, að ganga jafnan á þægi-
legum skóm til þess að forðast þau.
En algeng „lækning“ við líkþornum
er að bleyta þau upp í vatni og skera
þau síðan af með rakvélarblaði.
Annars er lang einfaldast að fara til
læknis eða á fótsnyrtistofu (pedicure)
og láta nema líkþorn fyrir fullt og
allt. Yfirleitt er jafnan ráðlegast að
leita læknis, ef einhvers húðsjúkdóms
vérður vart. Vai'asamt er að kreista
bólur eða „fílapensla" á andlitinu,
því að liætt er við, að ekki sé nógu
hreinlega farið með gröftinn, sein úr
þeim kemur. Bólur á hörundi stafa
oftast- frá slæmri meltingu og geta
læknar einir gefið ráð við slíku.
Húðin á andlitinu er oftast mjög
Framh. á bls. 14.
Sú var tíðin, að rauði liturinn þótti
ljótastur allra hárlita! En nú er öld-
in önnur. Rautt og þó einkum rauð-
brúnt hár er nú hámark tízkunnar,
enda fylgir því oft falleg húð og sér-
kennilegur augnalitur. En vanda-
samt er íyrir rauðhærða stxilku að
klæða sig og mála, svo að vel fari.
— Þær mega t. d. alls ekki nota svart-
an augabrúna- og augnháralit, heldur
hrúnleitan, örlítið dekkri en hárið
sjálft. Freknur fylgja oft rauðu liári,
en þýðingarlaust er að reyna að kaf-
færa þær með ljósu púðri, heldur
vei'ður að gæta þess að velja litinn á
púðrinu í samræmi við lit húðarinn-
ar sjálfrar, þó aðeins clekkri. Rauð-
hærðum stúlkum fer heldur ekki vel
að mála varirnar og kinnarnar eld-
í'auðar. Þær eiga að nota fjólurauðan
lit, ef þær mála sig á annað borð.
•
— Gi'ænt, gult, gulhrúnt, ljósblátt
og fjólublátt eru litir rauðhærðu
stúlknanna. Hvítt getur einnig farið
þeim vel, ef þær hafa fallega húð.
Rautt, dökkblátt, og rauðbrúnt ættu
þær að foi'ðast.
Hirðing húðarinnar er ekki ein-
göngu fólgin í því að moka kremi á
andlitið á sér kvölds og morgna.
Líkaminn er nefnilega allur þakinn
húð, sem þarfnast nákvæmlegrar og
góðrar hirðingar. Allir, sem því geta
við komið, ættu að taka sér bað einu
sinni á dag, og þvo sér þá vandlega
úr vatni og sápu. Einkum er þetta
nauðsynlegt þeim, sem svitna mikið.
Gott er að láta dálítið edik í haðvatn-
ið til þess að eyða svitalyktinni, bað-
salt er einnig ágætt. Þegar baðinu er
lokið er gott að nudda talkúmi um
allan líkamann, þó einkum á fæturna.
Helzt ættu menn að hafa nærfata-
skipti að loknu hverju baði. —
„Gæsahúð“ og blámi á handleggjum
og fótleggjum fara ekki vel við erma-
stutta kjóla eða rálfsokka. Skortur á
A-fjöri veldur jressu oft. Reynið því
að borða sem mest af feiti, ost og
mjólk, einnig gulrófum. Þá er og gott
að örva blóðrásina með því að bursta
handleggi og fótleggi með grófum
bursta í hverju baði. — Hart skinn
Hvaða litir fara
rauðhœrðum bezt?
Falleg og
heilbrigð
12
FEMINA