Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Qupperneq 2

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Qupperneq 2
PILSAÞYTUR Afmælisblað Kvennalistans, 1. tbl. 1. árg. mars 1991 Kvennalistinn á afmæli. Þann 13. mars varð hann 8 ára. Það er ekki hár aldur en fram- boðshreyfing kvenna er enn eldri. Forsaga hennar nær aftur á annan áratug þessarar aldar. Sú saga var þó flestum ókunn þar til hreyfingin gekk í endurnýjun lífdaga með kvennaframboðunum í Reykjavík og á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum 1982. Ári síðar var Kvennalistinn stofnaður sem þjóðmálahreyfing kvenna. Þrisvar sinnum hafa kvennalistar verið í boði í sveitar- stjórnarkosningum og Kvennalistinn býður nú fram til Al- þingis þriðja sinni. í hvert eitt sinn hafa forystumenn flokkanna og fylgisveinar þeirra gripið til nýrra ráða í til- raunum sínum til að kveða Kvennallstann niður. Fyrst var það fordæming, svo hæðni, þá bónorð og nú er efst á blaði að gera Kvennalistann ósýnilegan. Allt eru þetta gamal- kunnar og margþvældar aðferðir sem vonsviknir karlar grípa gjaman til í samskiptum sínum við konur. Konur hafa aldalanga reynslu í því að láta sér þær í léttu rúmi •‘ggja- Frá því kvennalistar komu fram á sjónarsviðið hafa þeir haft víðtæk áhrif á fjölmörgum sviðum. Kvennasjónarmlða gætir ólíkt meir en áður í allrt stjórnmálaumræðu og kon- um hefur fjölgað verulega í sveitarstjórnum og á Alþingi. Framboðslistar flokkanna í komandi þingkosningum benda hins vegar til þess að þeim þyki nú nóg að gert. Við því er eitt öruggt svar og það er að kjósa Kvennalistann. Þar með er tryggt að konum með kvennapólitísk sjónarmið fjölgar á Alþingi. Segja má að Kvennalistinn standi nú á iímamótum. Að baki er sá mótunartími þar sem trausiur grunnur var lagð- ur að samstöðu kvenna um þá menningu og reynslu sem þær eiga sameiginlega. Nú hljótum við að byggja ofan á þennan grunn og leggja áherslu á að konur eru mismun- andi £em cinstaklingar og aðstæður þelrra margbreytilegar. Áherslan á hið sameiginlega og hið sérstæða á að fara hönd í hönd í starfi og stefnu Kvennalistans. Þótt ýmislegt hafi áunnist eigum við mikið starf óunnið. Á undanförnum árum hafa laun kvenna dregist jafnt og þétt aftur úr launum karla og var þó ekki úr háum söðli að detta. „Tímamótasamningar" verkalýðshreyfingarinnar, 1986 og 1990, hafa sannað með áþreifanlegum hætti að það launakerfi sem heldur konum niðri lifir öruggara og sjálf- stæðara lífi en konur sjálfar. Dagvistun bama er enn í ólestri og tvö mtsmunandi ráðherrafrumvörp sem nú liggja fyrir Alþingi breyta þar engu um. Dagvistarheimili verða ekki byggð fyrir frumvarpspappíra heldur peninga. Skipu- lag grunnskólans tekur mið af samfélagi gærdagsins þegar mamma var heima og (umönnun aldraðra sjúklinga er enn gert út á góðan vílja og skyldurækni dætra og tengdadætra. Enn sem fyrr eru það vel stæðir karlar á besta fram- kvæmdaaldri sem ráða för í samfélagi okkar og þeir þurfa ekki að axla þá ábyrgð sem fylgir umönnun barna og aldr- aðra. öllu þessu þarf að breyta. Kvennalistinn hefur sett sér slíki markmið með slarfl sínu á Alþingi. En hann gerir það ekki einn og óstuddur. Ef kjósendur vilja leggja sitt af mörkum þá verða þeir að taka ábyrga afstöðu í kjörklefanum. Þá kjósa þeir Kvennalistann. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR HVERS VEGNA PILSAÞYTUR? Hópur fugla kemur með vængjaþyt. Hópur kvenna með pilsaþyt. Við viljum að okkur fylgi lágur dynur sem lætur vel í eyrum og eftir er tekið. f kosningunum í vor berst pilsa- þytur úr öllum kjördæmum landsins, hann fylgir þeim 126 konum sem eru í framboði fyrir Kvennalistann. Að kosn- ingum loknum ætlum við með pilsaþyt á þing. Þessi PILSAÞYTUR er ekki sá fyrsti og ekki sá síðasti. Á Vestfjörðum hafa kvennalistakonur margsinnis gefið út blað með sama nafni. Þær lögðu okkur til nafnið og nú brelðir PILSAÞYTUR sig um land allt. Útgefandi: Samtök um Kvennalista. Ritstýra; Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (ábm). Ritnefnd: Bryndís Guömundsdóttir. Reykjanesi. Guðrún Guðmundsdóttir, Reykjanesi. Hulda K. Guðjónsdóttir, Vesturlandi. Kristín A. Ámadóttir, Reykjavík. Kristjana Sigmundsdóttir, Suðurlandi. Sigrún Helgadóttir, Reykjavík. Sigurrós Erllngsdóttir, Reykjavík. Útlit: Harpa Björnsdóttir, Forsíða: Ina Salóme Hallgn'msdóltlr. Rut Hallgrímsdóttir. Teikningar: Ásgerður Helgadóttir. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir. Setning, umbrot og prentun: Prentsmiðjan ODDI HF PILSAÞYTUR er geflnn út í 85.000 eintökum og drelft á öll heimlll í landinu. ATH! Þar sem höfundar efnls túlka beinlínis skoðanlr Kvennalist- ans er þess getið sérstaklega neðanmáls. Aðrir höfundar og við- mælendur blaðslns eru á sjálfs sín vegum. Fyrir skömmu sagði tólf ára göm- ul stúlka sem var að velta fyrir sér lífinu og tilver- unni: „Mér finnst það rosalega óréttlátt að strákarnir í mín- um bekk eigi eftir að fá hærri laun en ég, bara af því að þeir eru strákar!“ Margir myndu ef- laust segja að svona einfalt sé þetta ekki. Stelpur þurfi bara að mennta sig vel og takast á hendur ábyrgðarmeiri störf. En nú er það staðreynd að á undanförnum árum hafa kon- ur flykkst í langskólanám. Hefðbundin kvennastörf eins og t.d hjúkrun og kennsla krefst margra ára háskóla- náms, en ekki hafa launin hækkað. Teljast það ef til vill ekki ábyrgðarmikil störf að bera ábyrgð á lífi og heilsu fólks á öllum aldri!? En staðreyndirnar á vinnu- markaðnum tala sínu máli og eru síður en svo uppbyggileg- ar. f öllum starfshópum eru laun kvenna lægri en laun karla. Það er því ekki auðvelt að útskýra „lögmál“ vinnu- markaðarins og stöðu kvenna án þess að grafa undan sjálfs- mynd og sjálfstrausti stúlkna sem eru að reyna að finna sér stað í tilverunni. KYNSKIPTUR VINNUMARKAÐUR Atvinnuþátttaka kvenna hér á landi hefur margfaldast á undanfömum ámm. Yfir 80% giftra kvenna vinna nú utan heimilis á móti um 20% árið 1960. Vinnumarkaðurinn er kynskiptur og konur eru fjöl- mennastar í þjónustugreinum og hjá hinu opinbera. Fjöl- margar atvinnugreinar, þ.á.m. undirstöðuatvinnugreinarnar, standa og falla með vinnu kvenna. Þjóðfélagið og at- vinnulífið getur ekki án þeirra framlags verið. En konur hafa samt alla tíð borið minna úr býtum en karlar. í lífskjarakönnun sem gerð var af Félagsvísindastofnun Háskóla íslands kemur fram að konur hafa í dagvinnulaun um 68% af dagvinnulaunum karla og í heildarlaunum 64% af heildarlaunum karla. Vinnutími skýrir hluta af þessu en engu að síður hafa konur aðeins um 75% af því sem karlar hafa í heildartekjur á vinnustund. Nú er svo komið að afskipti stjórnvalda af kjarasamning- um og dugleysi verkalýðsfor- ystunnar hefur leitt til þess að laun kvenna og kaupmáttur hafa rýrnað verulega á undan- förnum tveimur árum, um- fram það sem orðið hefur hjá körlum. ÞJÓÐARSÁTT Á KOSTNAÐ KVENNA f febrúar 1990 skrifuðu full- trúar ASÍ og VSÍ ásamt BSRB og ríkinu undir þá kjarasamn- inga sem kenndir hafa verið við þjóðarsátt. Markmið þjóð- arsáttarinnar var að stöðva verðbólguna og kaupmáttar- hrapið og því hefur verið hald- ið fram að þetta hafi tekist vel. Sú fullyrðing fær þó ekki stað- ist hvað kaupmátt kvenna varðar. Á tíma þjóðarsáttarinnar hefur launabilið á milli kynj- anna aukist allverulega, eins og staðfest er í nýjasta frétta- bréfi Kjararannsóknarnefndar. Það er því ekki að ástæðulausu að haldið hefur verið fram að þjóðarsáttin byggist á fórnum launafólks, og ef marka má nýjustu útreikninga Kjara- rannsóknarnefndar á þróun launa og kaupmáttar virðist sem konur hafi öðrum fremur greitt kostnaðinn af „þjóðar- sáttinni“. Ef tímakaup á 3. ársfjórð- ungi 1990 er borið saman við tímakaupið á sama tímabil íyrra árs kemur í ljós að kaup- máttarrýrnunin á einu ári er 6,2% hjá verkakonum en 3,7% hjá verkakörlum. Kaupmáttar- lýrnun hjá afgreiðslukonum er 6% en kaupmáttur eykst hjá afgreiðslukörlum um 1,1%. Meðal skrifstofukarla mælist í þessum samanburði 1.5% lækkun á greiddu tímakaupi á milli ára, en 2.1% hækkun hjá skrifstofukonum. Samkvæmt því minnkar kaupmáttur karl- anna um 12,8% og kvennanna um 9,6%. Kjararannsóknarnefnd út- skýrir sérstaklega að mikil hækkun launa afgreiðslukarla og lækkun launa skrifstofu- karla orsakist af sveiflum í úr- taki. Kann því að vera að ekki sé um fullkomlega marktækar niðurstöður að ræða hvað þær tölur varðar. Engar tilraunir eru hins vegar gerðar til að skýra rýrnandi kjör kvenna í þessum stéttum, enda liggja aðrar ástæður að baki en gallar í úrtaki. KONUR ÁN FRÍÐINDA Konur fylla að stærstum hluta þá hópa sem ekki njóta sérstakra fríðinda umfram kauptaxtana, s.s. óunninnar yfirvinnu eða bílastyrkja. Á árinu 1989 varð samdrátt- ur í atvinnumálum. í kjölfarið fylgdi kaupmáttarrýrnun. Slík rýrnun er alltaf tilfinnanlegust hjá láglaunafólki sem situr eft- ir á taxtakaupi og hefur ekki tök á að bæta sér upp tapið eft- ir öðrum leiðum. Þeir sem ofar sitja í pýramídanum, bæði ein- staklingar og hópar með sterka samningsstöðu, geta náð fram leiðréttingu eftir óbeinum leiðum. Þetta hefur leitt til þess að bilið milli taxta- vinnufólks og annarra eykst og þar með bilið milli karla og kvenna. Vegna þessa dróst kaupmáttur kvenna aftur úr kaupmætti karla á árinu 1989. Þjóðarsáttin sem gerð var í febrúar í fyrra fól í sér staðfest- ingu á þessu ástandi. Þegar hún var gerð var því haldið að fólki að þó ekki fælist í henni nein kaupmáttaraukning á ár- inu 1990 þá myndi hún fara að skila sér á seinni hluta samn- ingstímabilsins, þ.e. á þessu ári. Sú hefur þó ekki orðið raunin og því miður hefur verkalýðshreyfingin átt fá svör við þeirri fullyrðingu formanns Vinnuveitendasambandsins að ekkert svigrúm verði til að leiðrétta lægstu launin að loknu yfirstandandi samnings- tímabili í september n.k. FIÍIÍFBT NÁTTÚRULÖGMÁL Skýringar af þessum toga hefði tólf ára stúlkan, sem sagt var frá í upphafi, ekki skilið enda ekki í sjálfu sér um skýr- ingu að ræða á lágum launum og vanmati á kvennastörfum. Þeirra er miklu fremur að leita í menningarlegri og félagslegri arfleifð. En svona er staðan í dag. Kynbundið launamisrétti viðgengst á vinnumarkaðnum í skjóli verðmætamats sem metur hefðbundin karlastörf meira en hefðbundin kvenna- störf. Þetta launamisrétti er ekki náttúrulögmál. Það er löngu tímabært að endurmeta störf kvenna þannig að ábyrgð og gildi umönnunar-, uppeldis- og þjónustustarfa verði metið til jafns við ábyrgðar- og frum- kvæðisþætti hefðbundinna karlastarfa. Það er líka löngu tímabært að hækka taxta- kaupið, svo hægt sé að fram- fleyta sér á umsömdum laun- um og ekki sé þörf á dulbún- um launagreiðslum. Og það er löngu tímabært að konur neiti að láta „klifra upp bök sín“ í kjarabaráttunni. Við ríkjandi ástand geta konur ekki verið sáttar. KRISTÍN A. ÁRNADÓTTIR Höfundur er starfskona þing- flokks Kvennalistans og skipar 32. sæti framboðslistans í Reykja- vík í komandi kosningum.

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.