Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 7

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 7
ANNÁLL KVENNALISTANS 1981 Konur á Akureyri og í Reykja- vík hefja umræður um hugs- anlegt kvennaframboð til sveit- arstjórna á grundvelli sérstöðu kvenna. Ástæður fyrir þessum hugmyndum eru m.a. rýr hlut- ur kvenna í sveitarstjórnum, lítill áhugi stjórnvalda á þeim málum sem heitast brenna á konum, svo og óánægja með starfandi stjórnmálaflokka. 1982 Konur bjóða fram lista við bæj- arstjómarkosningar eftir 56 ára hlé á sérframboðum kvenna og koma tveimur kon- um að á Akureyri og tveimur í Reykjavík. Konum í sveitar- stjórnum fjölgar úr 6.2% í rúm 12%. fslenskar konur standa þó enn langt að baki annarra Norðurlandaþjóða hvað varðar hlut kvenna í stjómum og ráð- um. 1983 Ríklsstjómin springur og boð- að er til Alþingiskosninga. Samtök um kvennalista em stofnuð 13. mars í þeim til- gangi að bjóða fram sérlista kvenna til Alþingis. Boðið er fram í þremur kjördæmum og komast 3 konur á þing. Kon- um á Alþingi fjölgar úr 5% í 15%. Árangur Kvennalistans vekur athygli víða um heim. 1984 Samþykkt er þingsályktunar- tillaga Kvennalistans um end- urskoðun á meðferð nauðgun- armála. Um sumarið fara Kvennalistakonur í rútuferð um landið til að kynna Kvennalistann og hugmyndir hans. Lögð em fram fmmvörp um dagvistarstofnanir fyrir öll börn, lengingu fæðingarorlofs í 6 mánuði og róttækar breyt- ingar á rekstri og stjómun Ríkisútvarpsins þar sem m.a. er gert ráð fyrir stofnun þriðju rásarinnar fyrir félagasamtök og aðra sem vilja reyna sig í þáttagerð. 1985 Samþykktar þingsályktunartil- lögur um námsgagnamiðstöðv- ar í öllum fræðsluumdæmum og um kerfisbundnar mynda- tökur á brjóstum kvenna vegna krabbameinsleitar. Lögð er fram tillaga um fiystingu á framleiðslu kjarnorkuvopna en Kvennalistinn leggur fram slíkar tillögur ár eftir ár. Minnst er 70 ára kosningarétt- ar kvenna m.a. með kaffisam- sæti á Hallærisplani. Kvennalistar em boðnir fram til borgarstjórnar í Reykjavík og bæjarstjórna í Hafnarfirði og á Selfossí. Ein kona kemst að á Selfossi en vegna fækkun- ar borgarfulltrúa úr 21 í 15 kemst aðeins ein kona að í Reykjavík. Á ýmsum öðmm stöðum s.s. á Húsavík em kvennalistakonur í samstarfi við aðra. Konum í sveitar- stjórnum fjölgar í rúm 18%. Á þingi er samþykkt tillaga um að meta störf húsmæðra til jafns við aðra starfsreynslu er þær koma út á vinnumarkað- inn. 1987 Alþingiskosningar. Kvenna- listinn býður fram í öllum kjör- dæmum. Fýlgið tvöfaldast og em sex konur kjörnar af Kvennalistum. Konum á þingi fjölgar nú í 20.6%. Árangur Kvennalistans vekur heimsat- hygli og mikil eftirspurn er eft- ir kvennalistakonum til ræðu- og fundarhalda um heim allan. Fýrir þessar kosningar er ákveðið að eftir tvö ár eigi sér stað skipti á þingkonum, tvær þeirra sem lengst hafa setið skuli víkja og varakonur taka sæti þeirra. í stjórnarmyndun- arviðræðum setur Kvennalist- inn fram þá meginkröfu að lög- fest verði lágmarkslaun. Þeirri kröfu er hafnað og Kvennalist- inn verður utan stjórnar. Á þingi em samþykktar tillögur Kvennalistans um aukna kyn- lífsfræðslu og um endurskoð- un á lögum um ofbeldiskvik- myndir. 1988 Kvennalistakonur, ásamt fjölda annarra íslenskra kvenna, fjölmenna á norræna kvennaráðstefnu í Osló, Nord- isk Fomm. Um haustið spring- ur ríkisstjórnin vegna deilna um efnahagsaðgerðir. Launa- fólk er án samningsréttar og hyggjast gömlu flokkarnir við- halda því banni. Kvennalistinn hafnar því að taka þátt í ríkis- stjórn sem heldur vinnandi fólki í fjötmm og viðheldur sið- lausri láglaunastefnu sem bitnar harðast á konum. Á þingi em m.a. lagðar fram til- lögur um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra, átak í uppbyggingu dagvistar- heimila, lágmarkslaun og tímabundnar aðgerðir til að bæta stöðu kvenna. 1989 Á Alþingi er samþykkt fmm- varp Kvennalistans um kosn- ingarétt íslendinga erlendis. Að auki em m.a. lagðar fram tillögur um að foreldrar geti tekið leyfi frá störfum vegna umönnunar barna, lögfræðiað- stoð vegna hjúskaparmála, út- reikning þjóðhagsstærða, of- beldi í myndmiðlum, tækni- fijóvganir og fræðslu fyrir útlendinga búsetta á íslandi (einkum fyrir erlendar konur sem hingað flytjast). I 1990 Kvennalistar boðnir fram til sveitarstjórna í Reykjavík, Kópavogi og Akureyri en víða annars staðar em kvennalista- konur í samstarfi við aðra. Ein kona af Kvennalista kemst að í Reykjavík en af sameiginlegum listum kemst m.a. ein kona að á Selfossi og ein á Húsavík. Á þingi er lagt fram fmmvarp um breytingar á lögum um fæðingarorlof þar sem t.d. er lagt til að orlofið lengist í 9 mánuði og að konur geti tekið orlof einum mánuði íyrir fæð- ingu. Umræður um Efnahags- bandalagið fara mjög vaxandi í röðum kvennalistakvenna sem hafna aðild að bandalaginu. Á vorþingi er rætt af hreinskilni um stöðu kvennabaráttunnar eftir heldur slæma útkomu í sveitarstjórnarkosningunum. Undirbúningur að kosningum næsta árs hefst. 1991 Alþingiskosningar em fram- undan. Kvennalistar verða boðnir fram í öllum kjördæm- um og munu kosningarnar ekki síst snúast um launakjör kvenna, framtíðarhorfur barna, kvenna og karla þessa lands, atvinnu, byggð og mannlíf í landinu. Þar verða konur að láta til sín taka, láta rödd sína heyrast og krefjast breytinga. Oft var þörf en nú er nauðsyn á kvenlegri sýn á veröldina sem byggist á virðingu fyrir nátt- úm, lífi Jarðarbarna og rétti einstaklinganna til að velja lífi sínu farveg. Annállinn er tekinn saman af Kristínu Ástgeirsdóttur, en hún er sagnfræðingur og skipar 3. sæti á Kvennalista í Reykjavík í komandi kosningum. " •] t mMLn í wWfæ Jf % 1 m : » 8. -i ' ■ %» m ■ ; 1 t ] i! Il iml**f$* f' J: nÉ

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.