Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 9

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 9
FRAMTÍÐARSTAÐA FISKVINNSLUKVENNA Einn mikilvæg- asti þátturinn í verðmætasköp- un í sjávarút- vegi og þar með í íslensku efnahagslífi er fisk- vinnslan. Aukin atvinnuþátt- taka kvenna á síðustu áratug- um, ekki síst í fiskvinnslunni, hefur átt stóran þátt í þeim aukna hagvexti sem þjóðin hefur búið við fram að þessu. Með kvótakerfi og aukinni vél- væðingu hefur störfum hins- vegar fækkað, sem hefur ekki síst komið niður á konum. Þær hafa orðið í sífellt ríkari mæli varavinnuafl, en því fylgja bæði lág laun og óvissa um vinnu og afkomu. Sjávarútvegur snýst um það verkefni að sækja fiskinn í sjó- inn og koma honum á disk neytandans, þannig að hann (neytandinn) verði ánægður. Gæði eru ókeypis. Það kostar peninga að gera mistök, láta aflann rýma í meðferð eða að kasta til höndunum við fram- leiðsluna. Til að ná fram há- marksgæðum þarf sífellda end- urmenntun og þekkingaröflun á öllum sviðum sjávarútvegs- ins og hér gegnir starfsfólkíð í fiskvinnslunni lykilhlutverki. í fiskvinnsluhúsum um allt land eru unnin vandasöm störf, sem ekki eru metin í samræmi við þá þjálfun og ábyrgð, sem krafist er. Þessi störf eru að stærstum hluta unnin af konum, sem búa við afkastahvetjandi launakerfi, sem hefur í för með sér óhóf- legt vinnuálag, bæði andlegt og líkamlegt. Nauðsynlegt er að breyta þessu kerfi þannig að nýting og gæði framleiðsl- unnar skipti meira máli en af- köstin ein. Það er líka sjálfsögð krafa að dagvinnulaunin dugi til framfærslu. Tugum milljóna króna hefur verið varið í rannsóknir og þró- un á tækjabúnaði fiskvinnsl- unnar undanfarin ár og hefur þróunin verið geysilega ör, eins og sjá má af öllum þeim úreltu tækum sem eru víða í geymslum fiskvinnsluhúsa. Tölvukerfi, vinnsluhermar og flæðilínur hafa ótvíræða kosti, en spyija má hvort þau hafi í einhveiju bætt vinnuaðstöðu starfsfólksins. Ennfremur má spyija hvernig aukin fram- leiðni og hagræðing hafi skilað sér til starfsfólksins. Aðbúnað- ur starfsfólks í fiskvinnslunni hefur vissulega batnað á síð- ustu árum, en betur má ef duga skal. Það er með ólíkind- um að ekki skuli enn hafa tek- ist að hanna vinnuaðstöðu, t.d. við snyrtingu, sem hentar jafnt hávöxnu sem lágvöxnu starfsfólki. Ennfremur virðist véla- og færibandaframleiðend- um alls ómögulegt að skilja að öll þessi tæki þarf að vera auð- velt að þrífa. Þar er greinilegt að konur eru ekki hafðar með í ráðum. Tillögur Kvennalistans um stjórnun fiskveiða fela í sér að í fyrsta lagi verði 80% heildarafl- ans skipt milli byggðarlaga eða útgerðarstaða með hliðsjón af lönduðum aila undanfarinna ára. í öðru lagi renni 20% heildaraílans í sameiginlegan sjóð og verði til sölu, leigu eða sérstakrar ráðstöfunar eftir ákveðnum reglum. Tekjum af sölu eða leigu veiðiheimilda verði varið til eft- irtalinna verkefna: 0 Fræðslu sem nýtist sjávar- útvegi, fiskvinnsluskóla, sí- menntunar fiskvinnslufólks, sjómannaskóla og öryggis- fræðslu sjómanna. 0 Rannsókna í tengslum við sjávarútveg, m.a. grunn- rannsókna á lífríki sjávar, vöruþróunar og markaðsöfl- unar fyrir sjávarafurðir. • Verðlauna til þeirra sem veiðiheimildir hafa fyrir sér- staka frammistöðu við nýt- ingu og meðferð aflans eða fyrir lofsverðan aðbúnað starfsfólks. í þessum tillögum felst raun- hæfur möguleiki á að bæta markvisst kjör starfsfólks í fiskvinnslu. Stjómunin væri heima í héraði þannig að hag- ur sveitarfélagsins sæti í fyrir- rúmi og þar með væri að sjálf- sögðu tryggð atvinna land- verkafólks ekki síður en sjómanna. Ennfremur gefst stjómvöldum tækifæri til að umbuna þeim sem em til fyrir- myndar varðandi gæði fram- leiðslunnar og aðbúnað starfs- fólks. Framtíðarstaða fiskvinnslu- kvenna í íslenskum sjávarút- vegi er mjög óljós. Eins og mál- um er háttað í dag er eins víst að stéttin deyi út. Ráðandi öfl í þjóðfélaginu sem leyfa ótak- markaðan fjölda fiystitogara og gegndarlausan útflutning á ísfiski em þess valdandi að fiskvinnslukonur em mjög uggandi um sinn hag. Þær vita margar hveijar ekki hvort þær hafa vinnu á morgun, hvað þá eftir ár. Eitt er víst að íslensk- ar verkakonur koma ekki til með að njóta góðs af evrópska fjórfrelsinu - frelsi fjármagns, vöm, þjónustu og vinnuafls - EF við tengjumst EB á ein- hvem máta. Ágústa Gísladóttir Höfundur er útibússtjóri Rann- sóknastofu fiskiðnaðarins á fsa- firði og skipar 3. saeti Kvennalist- ans á Vestfjörðum í komandi kosningum. Lokaátak hafið til að koma söluskráningu í fullkomið lag Eftirlitsmenn heimsækja fyrirtæki og verslanir. Undanfama mánuði hafa fjármálaráðuneytið og embætti ríkisskattstjóra beitt sér fyrir kynningarátaki til að bæta úr vanköntum á söluskráningu í verslun og þjónustu. Nú er hafinn lokaþáttur átaksins til að koma þessum málum í fullkomið lag. Næstu sex mánuði heimsækja eftirlitsmenn skatt- rannsóknarstjóra verslunar- og þjónustufyrir- tæki um allt land til að kanna ástand og notk- un sjóðvéla og sölureikninga. Ef í ljós kem- ur að söluskráningu er verulega áfátt hefur viðkomandi fyrirtæki 45 daga til að kippa sínum málum í liðinn. Að öðrum kosti verð- ur því lokað í samræmi við lög sem nýlega voru samþykkt á alþingi. Mikilvægi löglegra sjóðvéla og fullkom- inna sölureikninga er augljóst: Þetta er vís- bending um full og heiðarleg skattskil og neytandinn nýtur sjálfsagðs réttar og öryggis í viðskiptum sínum. Ef allir skila sínu í sam- eiginlegan sjóð landsmanna verður byrðin léttari á hverjum og einum. Full skattskil samkvæmt settum reglum eru grundvallar- forsendur heilbrigðs viðskiptalífs þar sem fyrirtækin standa jafnfætis á samkeppnis- grundvelli. Forsvarsmenn í verslun og viðskiptum! Takið vel á móti staifsmönnum skattrannsóknarstjóra - með ykkar mál á hreinu. lí ími ■ M i FIARMALARAÐUNEYTIÐ Lm ■i UO ri

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.