Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 5

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Blaðsíða 5
og mér er sama hvort það hvín meira í andstæðingum okkar í dag en í gær. Það skiptir engu meginmáli." En fylgið hlýtur þó að skipta hreyfingu eins og Kvennalist- ann máli? .Auðvitað er nauðsjmlegt fyr- ir hreyfingu eins og Kvenna- listann að hafa fylgi. Annars kemst hún ekki þangað sem hún ætlar sér. En ef okkur sem störfum í hreyfingunni finnst við ekki eiga erindi og höfum ekki sannfæringu fyrir því sem við erum að gera þá er engin hreyfing. Það er svo hluti af okkar starfi að vinna hreyfingunni fylgi." Tengsl Kvennalista við fjöl- miðla hafa um nokkurt skeið verið talsvert erfið. Al- gengt er að frétta- og blaða- menn leggi Sjálfstæðisflokkinn og stjórnarandstöðuna að jöfnu og Kvennalistinn gleym- ist. Þetta er talsverð breyting frá fyrstu dögum Kvennalist- ans. Hvernig stendur á þessu? „Við getum ekki alltaf verið jafnmikil nýjung og þegar nýja- brumið er farið af okkur hafa fjölmiðlamenn tilhneigingu til að gleyma okkur vegna þess að gömlu flokkamir og fulltrúar þeirra em álitnir vera lögmálið og spámennimir og rótgróin hefð að konumar tala ekki í samkunduhúsum. Það sem konumar segja svo þegar þær hafa gengið inn í samkundu- húsin er ekkí talið eins merki- legt af því að þær ráða ekki eins mfldu. Tilhneigingin er að hlusta á þá sem ráða og þann- ig má segja að fjölmiðlamenn séu bara böm síns tíma, gegni sínu uppeldi og hegði sér sam- kvæmt því. Mér finnst fjöl- miðlamenn almennt beina sjónum sínum of mikið að valdhöfum og því sem þeir hafa að segja en gæta oft ekki að því að sjónarmið andstæðra skoðana komist til skila en þær em mikilvægur hluti lýð- ræðlslegrar umræðu. Stund- um jaðrar þetta við dekur. Þeir em þó ekki allir sama markinu brenndir og það em til góðir fréttamenn, sem betur fer.“ Þú talar um að menn hlusti á og hampi þeim sem völdin hafa og það em ekki konur. En af hveiju em konur valdalaus- ar og hafa verið það í árþús- undir? „Þegar sjaldgæft næði gefst frá daglegu amstri hvarflar hugurinn oft að því að reyna að skilja ástæðurnar íyrir hinu aldagamla, almenna valdaleysi kvenna. Það er undarleg stað- reynd sem sagan greinir frá og samtíminn sýnir að helmingur hvers samfélags skuli vera jafn valdalaus og konur em. Þó að konur séu ekki áhrifalausar virðast áhrif þeirra samt sjaldnast duga til að bæta eig- ln hag. Orsakirnar hljóta að vera fjölþættar og samofnar úr félagslegum og líffræðilegum þáttum. Ég hef alltaf haft áhuga á atferlisfræði og sam- skiptum fólks, og barátta fyrir bættum hag kvenna og bama leiðir hugann að því hvernig samskipti einstaklinganna þróist þannig að konur og börn verði valdalaus og oft beitt óréttlæti. Hún leiðir hug- ann að valdi og valdbeitingu og ofbeldi, sem fer vaxandi og verður bæði grófara og opin- skárra í þjóðfélaginu dag frá degi. Það er mikilvægt að reyna að skilja eðli valds og þörf fólks fyrir það í samskiptum sín á milli og reyna að rekja rætur ofbeldisins til orsaka sinna. Þannig er von til að geta komið í veg fyrir valdbeitingu og of- beldi og að jafna megi valda- hlutföllin milli kynjanna þann- ig að bæði njóti styrks síns án þess að halli á hitt.“ ó oftast nær sé talað um kvennahreyfinguna í ein- tölu þá er hún engu að síður fjölþætt og síbreytileg og hug- myndir hennar hafa tekið margvíslegum breytingum í tímans rás. Guðrún lagði áherslu á að einmitt þess vegna þyrftu konur í kvenna- hreyfingunni töluvert mikið á umburðarlyndi að halda: „Kvennahreyfingin saman- stendur af mjög ólíkum ein- staklingum sem allar em á sinn hátt í kvennabaráttu. Víð leggjum áherslu á að við hlust- um á okkar innri rödd en allar þessar innri raddir em ein- stakar. Við emm mjög ólíkar en getum samt allar verið á sömu leið. Kenningin eða hug- myndafræðin á að vera n.k. samnefnari og gildi hennar hlýtur að liggja í því hversu lík- leg hún er til að sameina allt þetta ólíka fólk til átaka fremur en það hvort hún getur lifað ein og hrein. Ég held líka að það sé jafn mikilvægt hvemig fólk sameinast um að fram- kvæma hugsjónir eins og hitt hvemig hugsjónimar em skil- greindar. ÖUu máli skiptlr hvemig hugmyndafræðin llfir í verkum fólksins því eins og við vitum geta hópar unnið mjög slæm verk í nafni einhverra hugsjóna eða gilda.“ Þú átt væntanlega við að markmið og leiðir hafi áhrif hvort á annað? „Já það er víxlverkun þar á miUi. Þetta verður aUtaf að vera lífrænt ferli og síbreytilegt. Við konur emm sjálfar að blðja um að okkar „öðmvísilelki“ sé met- inn jafnglldur og það er jafn mlkilvægt fyrir okkur að muna eftir því hver gagnvart annarri. Við verðum að vinna eftir því sem við boðum.“ Þegar talið berst að því að konur verði að vera umburðar- lyndar þá vaknar óneitanlega sú spumlng hvort umburðar- lyndi gagnvart konum sé að minnka? Hvort viðhorfin gagnvart konum og kvenna- baráttu séu að harðna? „Sumir segja það en mér finnst ég ekki skynja það mjög sterkt og ég held að enn sé það í okkar höndum hvað við lát- um yfir okkur ganga. Ég er enn sannfærð um að við búum yfir feikilegu afli til jákvæðra breytinga. Ég held að velvilji kvenna til tegundarinnar manns sé svo margsannaður í kynslóðanna rás að það þurfi ekki að efast um að þær breyt- ingar sem þær beiti sér fyrir verði uppbyggilegar og jákvæð- ar fyrir heildina. Ég held að það þurfi lágmarksfjölda fólks til að valda breytingum og ég held að þessi fjöldi sé að mynd- ast. Ég er reyndar sannfærð um að aukin þátttaka kvenna í stefnumótun jafnt í heima- löndum og á alþjóðavettvangi er bjargarvon mannkyns út úr ógöngum lífshátta sem byggja á og leiða til mengunar og ófriðar. Helmingur mannkyns getur ekki og mun ekki láta leiða sig og böm sín í glötun án þess að bregðast við. Aukin þátttaka kvenna er það sem koma skal, það er óhjákvæmi- legt. Þeir sem vinna gegn henni skilja ekki framvindu þróunarinnar. Þó má búast við að þær breytingar sem við vinnum að ver.ði í áföngum, stig af stigi. Okkur mun ekki takast að ná fram öllu í senn. Þó okkur virð- ist 9 ár langur tími emm við bara rétt að byija þessa lotu. Árið 1975 var líkt og í gær. Þetta er aldagamall arfur sem við emm að kljást við og vlð tökum hann ekkert á hælkrók. Og það er eitt sem við verðum helst að reyna að muna, finnst mér, og það er að hafa gaman af þessu brölti. Það skiptir mildu máli.“ Þú talar um að ná hlutunum fram stig af stigi. En trúir þú að hægt sé að ná fram raun- vemlegum breytingum á stöðu kvenna innan allt of langs tíma? „Já það geri ég. Ég var í heimsókn í Bandaríkjunum í tæpan mánuð nú í haust, ferð- aðlst um, hitti marga og skoð- aði stofnanir og starfsemi. Þeim mun meira sem ég sá af þessu margbreytilega 250 milljón manna þjóðfélagi, sem minnir meira á meginland en eítt samfélag, og þeim mun meira sem ég heyrði, þeim mun ljósara varð mér að það er mögulegt og ætti að vera leikur einn að koma upp fyrirmynd- arþjóðfélagi á íslandi. Mér finnst eiginlega alveg ófyrirgef- anlegt ef við reynum það ekki. Og við berum öll ábyrgð á að það takist og enginn má sker- ast úr leik.“ Kvennalistinn hefur mjög ákveðnar hugmyndir um valddreifingu og ríkur þáttur í þeim er að engin kona skuli sitja lengur en 4-8 ár á þingi. En er valddreifingin eins mik- ilvæg og Kvennalistakonur vilja vera láta? „Ég held að mesti styrkur Kvennalistans sem hreyfingar liggi í því að við höfum mörg andlit, margar raddir og erum ólíkar. Þó að ákveðin krafa sé um að sömu konurnar sitji áfram þá liggur styrkur okkar samt í þessu. Við verðum því að stunda skipulega valddreif- ingu og hún verður að vera yf- irveguð og í samræmi víð eðli hvers starfs eða hlutverks þannig að hún sé bæði hverri konu og málstað okkar til gæfu. Þó að við verðum alltaf að taka ákveðna áhættu, bæði sem hreyfing og einstaklingar, þá stundum við ekki kvenfórn- ir. Við viljum ekki setja konur í hlutverk sem þær ráða ekki við. Engu að síður er nauðsyn- legt að vera hæfilega djarfar í þessum efnum því það veit engin kona hvað hún getur fyrr en hún reynir. Aldrei hefði mér dottið í hug upp á eigin spýtur að fara á þing og ég hef gert mjög margt á vegum Kvennalistans sem ég hafðl ekki hugmynd um að ég gæti gert. En það sem er svo mikil- vægt er að efla almennt sjálfs- traust kvenna því þá leysast málin svo mikið af sjálfu sér. Kvennalistinn er ekki kominn til að leysa öll mál. Við erum miklu fremur komnar til að tryggja að konum standi til boða lyklar að öllum þeim dyr- um sem þær þurfa að ljúka upp fyrir sjálfum sér.“ Valddreifing innan Kvenna- listans hefur m.a. verið fram- kvæmd á þann veg að konum hefur verið skipt út á miðju kjörtímabili. Þetta hefur sætt mikilli gagnrýni, innan Kvennalistans sem utan. Guð- rún hætti sjálf þingmennsku með þessum hætti. Er hún sátt við þessa framkvæmd? „Já ég sætti mig við hana og tel að það sé nauðsynlegt að þingmenn sitji ekki of lengi. Hins vegar er ég ekki sannfærð um að við séum búnar að finna réttu leiðina. En það ger- ir ekkert til. Við finnum hana þá bara seinna. Ég held að það hafi verið skynsamlegt sem samþykkt var á síðasta lands- fundi að hætta útskiptingum á miðju kjörtímabili. Mér finnst ekki mjög alvarlegt þó okkur verði á einhver mistök en það væri alvarlegt ef við gætum ekki lært af þeim. Það sýndi dómgreindarleysi. Við erum leitandi afl en ekki fullmótað enda værum við þá líklega búnar að ljúka erindi okkar." En hvað tekur nú við? Um hvað fjallar nýi kaflinn í lífi Guðrúnar? „Ég hef verið ráðin sem framkvæmdastjóri alþjóðlegrar kvennaráðstefnu sem verður væntanlega haldin á íslandi í júní 1992. {tengslum við þessa ráðstefnu hafa konur úr ólík- um stjórnmálaflokkum fundið samvinnugrundvöll sem við getum kannski haldið áfram að breikka. Við eigum allar svo svipuð erindl í því að breyta þjóðfélaginu, konum og böm- um í hag, þó svo við kjósum kannski að ganga eitthvað ólíkar leiðir. Það vakir svo svip- að fyrir okkur öllum. Þeim mun fleiri gagnvegi sem við getum opnað á milli okkar kvenna, þeim mun stærri sem okkar sameiginlegi grundvöll- ur verður, þeim mun líklegra er að við getum styrkt hver aðra og að við fáum einhverju áorkað. Eða etns og Auður Eir sagði nýlega. „sterk vinátta sterkra kvenna getur breytt heiminum“ og það þarf enginn að efast um að sú breyting verður til batnaðar fyrir alla.“ INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR. Þetta viðtal birtist nýlega í kvennablaðinu VERU sem góð- fúslega heimilaði að bað yrði birt í PILSAÞYTI örlítið breytt og nokk- uð stytt. 15 MÁNAÐA VERÐTRYGGÐ MEÐ 5,75% VÖXTUM L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans
https://timarit.is/publication/1231

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.