Pilsaþytur: afmælisblað Kvennalistans - 19.06.1991, Síða 18
KYNNING Á FRAMBJÓÐENDUM
komandi kosningum verða 126 konur í framboði fyrir Kvennalistann í kjördæmum landsins. Til að æra ekki óstöðuga blaða-
lesendur er látið duga að kynna aðeins 14 þeirra í þessu blaði. Valin var sú leið að kynna Qórar efstu konurnar í Reykjavík en
þar á Kvennalistinn nú þrjár þingkonur. tvær efstu konurnar á Reykjanesi, Vesturlandi og í Norðurlandskjördæmi eystra en í
hverju þessara kjördæma situr ein kona á þingi fyrir Kvennalistann. í Norðurlandskjördæmi vestra, á Suðurlandi, Austurlandi
og Vestfjörðum er engin kona nú á þingi fyrir Kvennalistann. Á þessu þarf að verða breyting í komandi kosningum og við
kynnum hér efstu konur á Kvennalistum þessara kjördæma. Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir alla frambjóðendur:
1 Hvað hefur þú verið að fást við undanfarin ár?
2 Hvers vegna ert þú í framboði fyrir Kvennalistann?
3 Á hvaða mál vilt þú leggja áherslu í komandi kosningum og á næsta kjörtímaþili?
REYKJAVÍK
1. SÆTI: INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, blaðakona. Börn: Sveinbjörn 8 ára og Hrafnkell
5 ára.
1 Frá því ég kom heim frá námi í sagnfræði árið 1981 hef ég notað tíma minn í kvennapólitík,
borgarmál og barnauppeldi. Ég var borgarfulltrúi í Reykjavík 1982-'88, rítstýrði kvennablað-
inu VERU 1988-’90 og hef síðan verið í ýmiss konar lausamennsku.
2 Hvar annars staðar ætti ég að vera? Ég tók þátt í að stofna framboðshreyfingu kvenna 1981-
'82 til þess að við konur ættum góðra kosta völ í stjórnmálum. Ég vil sjá breytingar á samfé-
laginu og ég trúi að þegar konur leggja saman búi þær yfir þeim hugmjmdum og afli sem til
þarf.
3 Öll mál sem geta stuðlað að auknu sjálfstæði og valfrelsi kvenna og bætt aðbúnað barna.
Aukinn jöfnuður stendur líka hjarta mínu nærri en mér finnst bilið vera að breikka milli
þeirra, sem þurfa að lifa á þeim launum sem taxtar kveða á um, og hinna, sem verðleggja sig
sjálfir. Þá vil ég valddreifingu í stað þess valdboðs sem ríkir og drepur allt í dróma.
2. SÆTI: KRISTÍN EINARSDÓTTIR, þingkona. Börn: 2 synir.
1 Undanfarin fjögur ár hef ég verið þingkona Kvennallstans en áður var ég við rannsóknir og
kennslu í lífeðlisfræði vlð Háskóla íslands.
2 Allt frá því að Kvennaframboðið kom fram fyrir borgarstjómarkosningarnar 1982 hef ég ver-
ið sannfærð um að sú leið í kvennabaráttunni var rétt sem við völdum. Ég tel það mikil for-
réttindi að fá að vera fulltrúi Kvennalistans á Alþingi.
3 Mjög mikið vantar á að kvennasjónarmiða gæti í fjölmörgum málaflokkum sem fjallað er um
á Alþingi. Ég lendi strax í vandræðum með að velja úr einstök mál en get nefnt launamál, at-
vinnumál, umhverfismál, mennta- og menningarmál, sem dæmi um málaflokka þar sem erf-
itt hefur verið að koma að nýjum sjónarmiðum og nýrri sýn. Þess vegna tel ég að leggja þurfi
sérstaka áherslu á þá málaflokka.
3. SÆTI: KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR, sagnfræðingur og kennari.
1 Undanfarna sex vetur hef ég kennt sögu við Kvennaskólann í Reykjavík en á sumrin hef ég
fengist við lestur og kvennarannsóknir, auk starfs fyrir Kvennalistann.
2 Af því ég vil beita mér innan Kvennafistans í baráttunni fyrir kvenfrelsi og betra þjóðfélagi.
Ég tel að með pólitískri baráttu og að þoka málum áfram á Alþingi megi stíga skref í kven-
frelsisátt, þó það sé auðvitað ekki nóg. Kvennabaráttan þarf að fara fram afltaf og alls staðar.
3 Ég vil leggja áherslu á baráttu fyrir auknu lýðræði í þjóðfélaginu. f því felst aukið frelsi
kvenna og aukin áhrif þeirra á þjóðfélagið. Ég hef verulegar áhyggjur af framtíðinni, ekki síst
hvað varðar konur. Það er fátt um tillögur í atvinnumálum sem öðrum málum, enda hafa
stjórnvöld algjörlega brugðist hvað varðar þróun og nýsköpun. Loks vif ég nefna stöðu fjöl-
skyldunnar, náttúruvernd og baráttu fyrir friði í heiminum.
4. SÆTI: GUÐRÚN J. HALLDÓRSDÓTTIR, alþingiskona og forstöðukona Námsflokka Reykja-
víkur.
1 Síðastllðin 19 ár hef ég veitt Námsflokkum Reykjavíkur forstöðu jafnframt því sem ég hef
kennt dálítið dönsku o.fl. í vetur hef ég stundað þingstörf fýrir Kvennalistann.
2 Vegna þess að helstu stefnumál hans eru mér að skapí, jafnrétti kynja, virðing fyrir lífinu,
verndun umhverfis, varðveisla óspilltra náttúrugæða og skynsamleg nýting þeirra, jafn rétt-
ur allra til að þroskast og njóta þess að takast á við viðfangsefni tilverunnar.
3 Varðveislu landsins, bæði gagnvart mengun og gagnvart ásælni utanaðkomandi hagsmuna-
aðila, verndun mannlegs samfélags á íslandi og forvarnarstarf í því sambandi, fræðslumál
ungra og fullorðinna.
REYKJANES
1. SÆTI: ANNA ÓLAFSDÓTTIR BJÖRNSSON, þingkona. Böm: Jóhanna Aradóttir 13 ára og
Ólafur Arason 12 ára.
1 Hið ómögulega, eins og flestar aðrar konur. Að vera útivinnandi móðir í námi og vera í
kvennabaráttunnl í leiðinni. Ég fór úr blaðamennsku á þing haustið 1989 og sinni heimili
og myndllstarnámi eftir getu. Lauk cand.mag. prófi I sagnfræði 1985.
2 Vegna þess að mig langar að sjá heiminn breytast, konum og bömum, og þar með auðvitað
öllum, í hag. Ég er tilbúin til að eyða í það öllum mínum vinnukröftum og vonast til að þeir
nýtist áfram í því hlutverki sem ég er nú í, á þingi.
3 Launamál kvenna, friðarmál, fjölskyldumál og baráttuna gegn ofbeldi í öllum myndum.
2. SÆTI: KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, framkvæmdastjóri. Börn: Sæunn og Iðunn Ólafsdætur.
1 Ég hef verlð í námi við Háskóla íslands og lauk nýverið B.A. prófi þaðan I stjórnmála- og við-
skiptafræðum. Með námi hef ég stundað ýmis störf. Verlð sölustjóri einlngahúsa og síðan
deildarstjóri hjá verðbréfafyrirækinu Kaupþingi en þar lét ég af störfum þegar ég tók sæti I
bankaráði Landsbankans fyrír Kvennalistann.
2 Sennilega er það glettnt örlaganna ásamt trausti kvennalistakvenna. Trúlega vegur þó
þyngst einlægur áhugi á þjóðmálum og stöðu kvenna. í málefnum kvenna og barna eru svo
stórkostleg verk óunnin að það er mikil hvatning til virkrar þátttöku.
3 Það er af mjög miklu að taka en ef nefna ætti fátt eitt þá eru það atvinnu- og efnahagsmál
ásamt aðbúnaði barna og foreldra. Fólki er gert illkleift að sinna mikilvægustu þáttum lífsins
og börnin virðast hafa gleymst. Þessu verður að breyta.
SUÐUR-
LAND
1. SÆTI: DRÍFA KRISTJ-
ÁNSDÓTTIR, forstöðu-
maður Meðferðarheimil-
isins Torfastöðum. Börn:
Fannar 12 ára, Björt 8 ára
og Eldur 5 ára, Ólafsbörn.
1 í 12 ár hef ég, ásamt
öðrum, rekið meðferð-
arhelmili fyrir ungl-
inga og aðstandendur
þeirra. í tengslum við
Meðferðarheimilið rek-
um vlð búskap og það
hefur veitt mér ómælda
gleði að vinna við fram-
leiðslu á eigin matvæl-
um. Ég hef eignast
þrjú yndisleg böm á
síðastliðnum 12 árum
og það hefur verið það
dýrmætasta sem ég hef
gert og veitt mér mesta
gleði.
2 Ég hef alla tíð verið
mjög pólitísk og haft
ákveðnar skoðanir á
ýmsum málum en
aldrei getað fundíð mér
farveg með hinum
hefðbundnu flokkum.
Því var Kvennalistinn
mér kærkomln vídd
sem ekki er innan
hinna flokkanna. Ég
ætlaðist reyndar til að
einhver önnur kona en
ég stæði í eldlínunni
en ég vildi ekki skorast
undan ábyrgð þegar
spjótin beindust að
mér.
3 Það er svo margt sem
þarf að laga. Það sem
upp úr stendur er að
staða konunnar er al-
veg hörmuleg og fer
versnandi. Launabilið
breíkkar stöðugt. Stöð-
ugt fleiri konur fara I
langskólanám en það
er ekkt lengur mæli-
kvarði á þau laun sem
greidd eru. Samvinna,
virðing fyrir hver ann-
arri og stuðningur
kvenna innbyrðis er al-
gjör grundvöllur þess
að við getum rétt hag
okkar í þessu samfé-
lagi.
xV