Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Síða 3
3. tbl. 1950.
XXVI. árg.
Útgefandi: F. í. H. Form. F. í. H.: Frú Sigríður Eiríksdóttir.
Ritstjórn: Ásvallagötu 79, Reykjavik.
Guðrún Bjarnadóttir, sími 80216. Sími 1960.
Jakobína Magnúsdóttir, simi 80566. Gjaldk.: Frú María Pétursdóttir,
Arngunnur Ársælsdóttir, sími 3556. Garðastræti 8, sími 5097, box 982.
— 3M i n n in yaro rð —
JOHANNA KAUDSEA
/f/ffi*. yiirhjúhruttarhnna.
Þann 8. sept. s. 1. lést Jóhanna Knudsen,
fyrrverandi yfirhjúkrunarkona í Land-
spítalanum, eftir þungbæra sjúkdómslegu.
Hún var fædd 10. okt. 1897, dóttir hjón-
anna Hólmfríðar og Vilhelms Knudsens,
verzlunarstjóra frá Akureyri. Jóhanna
hlaut í æsku ágæta menntun, enda bráð-
gáfuð og listhneigð svo af har. 1 útliti og
framkomu allri einkenndi hana svipur
sannrar menntunar og var öllum ljóst er
sáu hana, að þar fór óvenjuleg kona. 1
nokkur ár vann hún að skrifstofustörf-
um, en brátt kom i ljós, að shk störf full-
nægðu ekki löngun hennar til þess að
vinna þjóð sinni gagn, og hóf hún þá
hjúkrunarnám.
Jóhanna lauk hjúkrunarprófi í Osló
árið 1930 og hvarf þá þegar heim til
starfa þeirra er um getur í annari minn-
ingargrein um hana hér í blaðinu. —
Hjúkrunar- og heilsuverndarstörfum
gegndi hún síðan fram til ársins 1947,
allsstaðar með þeirri vandvirkni og
mannúðarkend, er einkendi hvert það
starf er hún tók sér fyrir hendur. En
Jóhanna var kröfuhörð við sjálfa sig og
um allt það, er orðið gæti til góðs fyrir
skjólstæðinga hennar, óskaði þar ávallt
Jóhanna Knudsen.
hins bezta, en átti erfitt við að fella sig
við hið næst-bezta. Vart verður Jóhönnu
rninnst án þess að geta hinna ágætu
kennsluhæfileika hennar og munu hjúkr-
unarnemar þeir sem dvöldu undir hand-
leiðslu hennar á Isafirði þau ár sem hún
var yfirhjúkrunarkona þar, undantekn-
ingarlaust telja það lán að hafa fengið að
njóla slíkrar hjúkrunar- og siðfræði-
kennslu.
Auk annara starfa sat Jóhanna Knud-