Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 6

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 6
4 HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ að Reykjum aftur, enda var hælið lagt niður nokkru síðar. Aðstaða þar var víst aldrei sem heppilegust. Árið 1934 varð Jóhanna Knudsen yfir- hjúkrunarkona á Isafjarðarsjúkrahúsi, og gegndi því starfi til ársloka 1940. Aldrei hefi ég j)angað komið, en sá orðrómur gekk, að mörgu hefði hún breytt til betri vegar, þótt kannske hafi það þótt full lcostnaðarsamt. Hjúkrunarnemar sem á Isafjarðarsjúkrahúsi voru,dáðust mjög að kennslunni sem þeim var þar látin i té, og efast ég ekki um, að Jóhanna hafi verið afbragðs kennari. Jóhanna tók sér frí um stund frá Isa- fjarðarsjúkrahúsi árið 1939 og fór þá að athuga möguleika á því að koma upp barnaspítala í Reykjavík, svo sem var — og er — engin vanþörf á. Rauðst hún til að leggja fram húsið Hellusund 6, en sótti um 30.000 kr. styrk til bæjarsjóðs fyrir hús- munum, breytingum á húsnæði o. s. frv. Þessu var því miður neitað. Svo barngóð sem hún var og framúrskarandi samvizku- söm og vel að sér, er líklegt að barna- spítala hefði verið l)orgið í höndum henn- ar. Hefði hún og eflaust leitað sér fram- haldsmenntunar, ef úr þessu hefði orðið. Ég minntist þess í upphafi þessarar greinar, að Jóhanna hefði haft með hönd- um ungmennaeftirlit á hemámsárunum. Það var hennar síðasta opinbera þjónusta, vandasamt og vanþakldátt starf, sem hún gekk að með þeim dugnaði og ósérhlífni er einkendi alla hennar framkomu. Hrædd er ég um, að það hafi slitið kröftum hennar meira en góðu hófi gegndi. Læt ég svo staðar numið, en minning Jóhönnu Knudsen mun lifa í hugum þeirra sem kynntust gæðum liennar og mann- kostum. Margrét Jóhannesdóttir. Það var síðla hausts fyrir 10 árum, að ég var send sem hjúkrunarnemi frá Landspítalanum vestur til Isafjarðar. — Fröken Jóhanna Knudsen var yfirhjúkrun- arkona á Isafjarðarsjúkrahúsinu. Ég hafði heyrt hjá einhverjum starfssystrum mínum, að fröken Knudsen væri mjög ströng. Og þeir einir hjúkrunarnemar, sem hafa farið svipaðar ferðir, geta skilið hvernig mér, með aðeins 4 mánaða starfs- feril að baki, var innanbrjósts. Mér stendur enn sú stund fyrir hug- skotssjónum, er ég gekk fyrir fröken Knudsen að heilsa henni. Hún kom til móts við mig, há, tíguleg og björt yfirlitum, rétti mér höndina og sagði: Velkomnar. — Handtakið var fast og innilegt. Mér fannst þyngsta steininum létta af hjarta mér, og frá þeirri stundu bar ég djúpa virðingu fyrir henni, og ávallt síðar. Hún var sem kjörin til þess að vera kennsluhjúkrunarkona. Hún kenndi með slíkri alúð og brennandi áhuga. Ströng var hún, og meira að segja mjög ströng, en á þann hátt, sem kennslu- og yfirhjúkrunar- kona á að vera. Aldrei man ég til þess, að hún skipti skapi, enda hefði mér án efa fallið það þungt. Hún fann oft að við mig, en ávallt hjálpandi og leiðbeinandi. Ég minntist þess, að þennan vetur var, eins og víst oft og endranær, afar erfitt á sjúkrahúsinu, vantaði hjúkrunarkonur og starfslið, og það komu fyrir stundir, að mér fannst starfið ætla að verða of erfitt, en þegar fröken Knudsen birtist og leit brosandi til okkar, kom ekki til greina að örmagnast. Og eitt atvik, sem kom fyrir síðustu dagana, er ég var á sjúkrahúsinu, lýsir því betur enn nokkuð annað að fröken Knudsen var ekki einungis yfirhjúkrunar- kona, sem gerir strangar kröfur. Það höfðu komið hoð frá Landspítalanum um að ég ætti að koma með strandferða- skipi, sem átti að leggja af stað á mið- vikudag fyrir páska og vera komið til Rvíkur á páskadagsmorgun. Fröken Knud- sen vissi að ég var sjóveik og kveið fyrir sjóferðinni. Nú vildi svo til, að einn Foss-

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.