Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 12

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 12
10 HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ gren frá Finnlandi, Sigríður Eiríksdóttir frá Islandi og Guðrún Arentz frá Noregi. Á deildarfundunum höfðu 4 íslenzkar hjúkrunarkonur samið erindi til flutnings. eins og hér segir: Guðriður Jónsdóttir: Um starfssvið geð- veikrahjúkrunar. Margrét Jónhannesdótt- ir: Um heilsuverndarnám i. hjúkrunar- kvennaskóla. Rósa Sigfússon: Um starfs- svið skólahjúkrunarkonunnar. Sigríður Eiríksdóttir: Um samvinnu á sjúkrahús- um og heilbrigðisstofnunum (framsögu- erindi) og um samstarf fagfélagasam- banda og hjúkrunarkvennafélaga. Ég get [)ess að gamni sínu, að islenzku hjúkrunarkonurnar höfðu á þessu móti langflest sjálfstæð erindi „í hlutfalli við meðlimafjölda“ og raunar fólksfjölda líka. Tekið er fullt tillit til hinnar fámennu íslenzku hjúkrunarkvennastéttar, hæði á orrænum og alþjóðlegum vettvangi. Var t.d. mjög ánægjulegt á alþjóðahjúkrunar- kvennamótinu í Stokkhólmi síðastliðið ár, þar sem mættir voru fulltrúar frá yfir 30 löndum heims, að þar flutti Sigriður Bachman framsöguerindi og gerði hún það með hinni mestu prýði, eins og vænta mátti. Auk þess var Guðrún Marteinsson val- in ásamt dönskum hjúkrunarnema til þess að hafa orð fyrir hjúkrunarnemum á lokahátíðinni, sem fór fram í stórum trjágarði í útjaðri Gautaborgar. Fói-st henni það prýðilega og þótti okkur sómi að. Á mótum sem þessum er, eins og gefur að skilja, fleira gert en sitja fundi. Reynt er eftir megni að kynna land og þjóð. T.d. bauð Svensk Sjuksköterskeförening til ferðadags, og var þinginu skipt í hópa og farið með hjúkrunarkonurnar til ná- grannaborga og þekktra staða. Góðgerðir voru veittar af rausn og sjúkrahús, heilsu- verndarstofnanir og hjúkrunarkvenna- skólar sýndir. Geta slikir dagar vegið á móti mörgum fundum, því þar gefst manni lcostur á að sjá, hvernig vinnan er framkvæmd. Þegar eg skoða slíkar stofn- anir, rennur mér oft til rifja allsleysi okkar hér heima á ýmsum sviðum, sem því miður stafar ekki alltaf af smæð okkar né fátækt, heldur miklu fremur af einhverju sinnuleysi — eða skihiingsleysi á högum hjúkrunarkvenna og þörfmn sjúklinga. Væri vel, að karhnenn — for- ráðamenn okkar á æðri stöðum, reyndu að kynna sér meir starfshætti sjúkra- hjúkrunar og lieilsuverndar i öðrum lönd- um og gerðu síðan samanburð á hinum ei’fiðu starfsskilyrðum okkar íslenzkra hjúkrunarkvenna við nágrannaþjóðirnar. 1 sambandi við ferðalög okkar islenzku hjúkrunai’kveimanna get ég ekki stillt mig um að geta heinisóknar á geðveikra- hælið Lillhagen í Gautaborg, en þangað hefir F.I.H. haft milligöngu um ráðningu nokkurra íslenzkra lijúki’unarkvenna. Eft- ir að hafa skoðað hælið, bauð ein gift deildarhjúkrunarkona okkur heim á yndislegt heimili sitt til kaffidrykkju. Hún var Islandsvinur, vegna kynningar sinnar við íslenzku hjúkrunarkonurnar, sem starfað höfðu á hælinu, og bar þeim vel söguna. Þarna áttum við góða íslenzka stund hjá sænskum gestgjafa og lauk henni með íslenzkum söng. Auk hinnar sérstæðu lokahátíðar þings- ins í trjágarði Renströmska sjúkrahúss- ins, þar sem 1100 lijúkrunarkonur reikuðu um meðal blóma og trjálunda og blóm- vöndum rigndi yfir hópinn úr flugvél, sem sveimaði yfir, var okkur boðið til mik- illar móttöku í stórhýsinu Börsen. Það var bæjarstjórn Gautaborgar, sem bauð heim. Allar hjuggum við íslenzku hjúkr- unarkonurnar ókeypis á meðan við dvöld- um í Gautaborg, sumar í sjúkrahúsum, aðrar lijá fjölskyldum eða stallsystrum. öllum leið okkur vel og nutum í ríkum mæli ánægjulegs ferðalags, fróðleiks og viðkynningar við sænska starfsfélaga. Ekkert óhapp kom fyrir og við komum

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.