Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 9
HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ
7
ig er það notað við krabbamein í legi,
þar sem hægt er að leggja það á eða i
sjálft meinið. Röntgen-geislar eru notaðir
við útbreidd krabbamein, eða æxli í innri
líffærum.
Geislameðferð á illkynja æxlum er mis-
munandi eftir því, hve næm þau eru og
i hvaða líffærum. Sem dæmi má taka
krabbamein i húð og vör. Þau koma
venjulega snemma til meðferðar, enda
auðsæ og vaxa fremur hægt. Meinvarp
(metastases) kemur oft seint og þau eru
tiltölulega geislanæm. Horfur á lækningu
eru góðar, og ef sjúklingar koma snemma,
má búast við lækningu á allt að 100%,
Þótt slík æxli séu skurðtæk er venjulega
talið heppilegra að beita geislum, sérstak-
lega vegna þess, að minni lýti verða að
örmyndun. Venjulega er notað radium
við þessa sjúklinga. Sjaldgæf húðæxli eru
svokölluð melanom, sem vaxa út frá fæð-
ingarblettum og eru dökkleit, — þau eru
mjög illkynjuð og lítt geislanæm.
Við legkrabbamein er notað radium
innvortis. Ef meinið er nokkuð útbreitt,
er siðar gefin röntgenmeðferð útvortis,
sem beint er að eitlasvæðunum í grindar-
holinu. Ef sjúklingar koma til aðgerðar
snenuna í sjúkdónmum, eru batahorfur
góðar — allt að % fá lækningu við
krabbameini í leghálsinum með geisla-
meðferð. Skurði er mjög óvíða beitt við
slík æxli. Ef meinið er í sjálfu legholinu
(corpus) er ýmist beitt geislameðferð eða
skurði.
Sem dæmi um krabbamein, þar sem
beitt er skurði og geislameðferð sameigin-
lega, má nefna krabbamein í brjósti
kvenna. Þar er mjög áríðandi að sjúkling-
ur komi sem fyrst, áður en meinið hefur
náð að sá sér. Tiltölulega snemma kemur
meinvarp í eitla í holhönd eða ofan við-)
beins. Æxlið er venjulega tekið með skurð-
aðgerð, en röntgenmeðferð gefin fyrir eða
eftir. Með því að geisla fyrír skurðaðgerð
verður meinið oft minna og betur afmark-
að, og því hægara að taka það. Auk þess
má búast við því, að krabbameinsfrum-
urnar verði veildaðar og hafi minni vaxt-
armátt eftir geislameðferðina. Það er því
álitin minni hætta á því, að meinið geti
sáð sér út í sárafletinum við skurðaðgerð-
ina. Við geislameðferð eftir skurðaðgerð
er ætlazt til þess að krabbameinsfrumun-
um, sem eftir hafa oi'ðið, sé eytt með
geislum. Jafnframt eru geisluð eitalsvæð-
in, þar sem búast má við meinvarpi eða
sýktum eitlum, sem ekki hafa náðst með
skurðinum.
Fleiri illkynjuð æxli eru læknuð með
röntgen- og radiumgeislum, en hér verður
staðar numið.
NEMADÁLKUR
Hvaða starf ætlarðu að gera að
æfistarfi þínu?
Það ætti að vera hægur vandi fyrir
stúlku, sem er komin undir tvítugt, að
vita, hvaða starf hún ætlar að gera að
æfistarfi sínu. Ég hef, síðan ég var barn,
látið mig dreyma vökudrauma um það,
hvað ég ætli að verða. Fyrst reisti ég mér
bamslegar skýjaborgir um það, sem aldrei
gátu orðið að veruleika. Þær hrundu, og
aðrar komu í staðinn. — Nú er ég búin að
taka ákvörðun um, hvað ég ætla að verða,
en ég er hálf feimin að láta það uppi,
því ég veit ekki, bvort það verður nokk-
urn tíma að veruleika, og er þá illa farið.
Eg veit ekki hvort ég get helgað þessu
starfi lif mitt, þó það sé mín einlæg ósk
og von. Foreldrar mínir eru því mjög
móthverf, af þvi að ég er ekki vel heilsu-
sterk, en þetta starf krefur sterkrar heilsu.
Starfið, sem ég ætla að gera að æfistarfi
mínu, en hjúkrunarstarfið. — Ég ætla að
gefa tilfiningum mínum lausan taum og
skrifa eins og mér býr í brjósti. öll störf
geta verið heiðarleg, ef unnið er að þeim
með trúmennsku. Ekkert starf finnst mér