Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Qupperneq 4

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Qupperneq 4
2 HJÚKRUNARKVENNABLAÐIÐ sen nokkur ár í stjórn Fél. ísl. hjúkrunar- kvenna, og svo mikið traust bárum við samstarfskonur til dómgreindar hennar, að ekki þótti framfaramálum hjúkrunar- kvennastéttarinnar vel borgið, nema henn- ar álits og ráða væri leitað. Á þann hátt áttum við saman margþætta samvinnu, og er mér nú mikill söknuður að því að ekki er lengur holl ráð og skilning að sækja til hennar um okkar sameiginlegu liugðarmál. — Þótt Jóhanna væri frábær hjúkrunarkona við sjúkrabeð, varð það hlutskipti hennar að taka að sér heilsu- gæslustörf um skeið í lögreglu Reykja- víkur, en síðustu árin hvarf hún frá hjúkrunarstörfum og gerðist þá ritstjóri og útgefandi tímaritsins Syrpu um leið og lnin hóf nýjan listiðnað til vegs, en það var skreyting hennar úr þurrkuðum íslenzkum blómum á heillaóskakort og minjagripi. — Heilsugæslan í lögreglu Reykjavíkur, útgáfa Syrpu og minja- gripaskreytingin voru 3 samslungnir þætt- ir, er áttu rót sína að rekja til sterkrar ættjarðarástar. Jóhanna var í hópi þeiiæa Islendinga, sem á hernámsárunum sá glöggt hættur þær er steðjuðu að íslenzku þjóðinni með hérvist hins fjölmenna her- liðs. Hana tók sárt afdrif ungra stúlkna í þeirri viðureign og ósæmandi samskipti landa sinna við hernámsliðið. Og henni fannst mikil vansæmd vera í því, að land og þjóð var kynnt út á við með sölu ósmekklegs varnings, undir nafninu is- lenzkir minjagripir. Loks fannst henni dekur margra Islendinga í ræðu og riti við hernámsliðið í senn niðrandi og hættulegt fyrir islenzkt þjóðerni. — Þess- vegna réði Jóhanna Knudsen sig til lög- reglu Reykjavíkur og fullyrði ég að hún vann þar þjóðþrifastarf og bjargaði margri ungri stúlku frá glötun. Heilslu- gæzla sem þessi var óþekkt hér á landi og mjög erfitt starf. Jóhanna eignaðist marga samstarfsmenn, en því miður varð líka á vegi hennar skilningslaust fólk, sem réðist gegn henni. Sjálfsagt hafa þær árásir sært djúpt og orðið til þess, að hún dró sig í hlé. En þá hófst sá þáttur í lífi Jóhönnu Knudsen, sem ég tel hafa orðið giftudrýgstan. Með snilldargreinum sínum í tímaritinu Syrpu tókst henni að ná til þjóðarinnar til vakningar og hvatn- ingar að vaka á verðinum. Syrpa var eitt vandaðasta og bezt ritaða tímarit, sem út kom um þessar mundir, í senn fróðleikur og hispurslausar rökfastar greinar um vandamál líðandi stundar. Þegar Jóhanna fékk frétt um að henni hefðu verið veitt 1. verðlaun í keppni um minjagripagerð, gladdist hún mjög. Sagði hún eitt sinn við mig, að nú styrktist hún í trúnni á það, að unnt yrði að útrýma öllu því, sem selt væri úr landinu því til vanvirðu, og bæri ósmekkvísi og menn- ingarleysi vott. Taldi hún blómagerð sína tákna hreinleika ættjarðarinnar, en svo þyrfti önnur þjóðleg minjagripateg- und að rísa upp, sem táknaði manndóm og staðfestu sjálfstæðrar þjóðar. Island hefir mist einn sinna beztu þegna, en þess er að vona, að merki Jóhönnu Knudsen verði haldið hátt á loft og er þá vel borgið minningu óvenju mikilhæfrar og heilsteyptrar konu. Ég þakka viðkynninguna, samstarfið, styrk og uppörfun á erfiðum stundum. Og ég á ekki betri ósk til ættlands míns og þjóðar en þá, að sem flestir þegnar hennar lifi og starfi í anda Jóhönnu Knudsen. Sigríður Eiríksdóttir. Jóhanna Knudsen er horfin af sjónar- sviðinu. — Hún andaðist 8. september s. 1. eftir nokkurra mánaða erfiða sjúk- dómslegu, 52 ára að aldri. Þótt hennar sé sárt saknað af vinuni og vandamönnum, munum við þó gleðj- ast yfir, að hún er nú laus frá þrautunum

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.