Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Síða 8

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.10.1950, Síða 8
H J Ú KRUN ARIv VEN N ABLAÐIÐ tæk, eru oft og tíðum læknuð með geislum, ef batahorfur eru jafn góðar eða betri þannig. önnyndarnir eftir geislameðferð, eru oft litlar og ekki lýtandi, eins og orðið getur eftir skurðaðgerð ef hún er gagnger. Eins og áður var rakið, er all mikill munur á geislanæmi ýmissa vefja líkam- ans. Á sama hátt er mikill munur á geislanæmi hinna ýmsu illkynjuðu æxla. Næmi þeirra er venjulega nokkuð svip- að eða öllu meira en þess vefjar, sem æxlið er vaxið út frá. Það má með nokkr- um sanni deila þeim í 3 flokka, eftir geislanæmi: mjög- næm, miðlungsnæm, og ónæm æxli. Að sjálfsögðu er aðeins hægt að beita geislameðferð við 2 fyrstu flokkana. Maður skyldi ætla að mestar vonir stæðu til þess, að vinna bug á hinum mjög næmu æxlum með geislum. Þvi er þó ekki að heilsa. Þetta eru mjög illkynjuð æxli, sem sá sér fljótt til annarra líffæra, svo að horfur eru slæmar frá byrjun. 1 þess- um flokki mjög geislanæmra æxla eru ýmis sarkmein, sérstaklega vaxin út frá beinmerg, lymfueitlum eða lymfatiskum vef, t.d. í koki eða nefkoki. Einnig telj- ast þarna til sumar æxlistegundir í kyn- kirtlum (testes og ovaria). Ilvítblæði eða leukæmi heyra einnig hér til. Það er undravert að sjá, hvernig æxli í þessum flokki getur bráðnað niður við geislameð- ferð, á örskömmum tíma. Æxli á stærð við mannshöfuð getur horfið að mestu á nokkrum dögum, og líðan sjúklingsins breytist á sama hátt til hins betra á stutt- um tíma. Bata er þó ekki að vænta til frambúðar, en kannske um árabil, við þessar hraðvaxandi æxlistegundir. 1 næsta flokki æxla, sem eru í meðal- lagi næm fyrir geislum, næst beztur ár- angur með geislameðferð. Þau vaxa hæg- ar og sá sér ekki eins fljótt og mjög geislanæmu æxlin. Vegna þess að geisla- næmið er oft mjög takmarkað, þarf tíð- um mjög stóra geislaskammta til þess að eyða æxlinu, svo að nálgast geislaþol húð- arinnar. 1 þessum flokki er krabbamein í húðinni, sum slímhúðarkrabbamein, sér- staklega í mimni, og einnig legkrabba- meinið. Við röntgengeislun á krabbameini, reynir venjulega mikið á geislaþol húðar- innar, þvi að óhjákvæmilega verða geisl- arnir að fara í gegnum hana þótt' æxlið sé dýpra. Það hefur komið í ljós, að það má margfalda þann geislaskammt, sem hægt er að koma í innvortis æxli, frá því sem var fyrr meir, án þess að mis- bjóða geislaþoli húðarinnar. Eftir þeirri röntgentækni, sem nú tíðkast mjög, er geislaskammtur tiltölulega lítill hverju sinni, en geislunin dregin á langinn. Heild- ar-geislaskammtur, sem nær æxlinu, get- ur þannig orðið æskilega stór, án þess að misbjóða húðinni. Ef þannig er geislað í smáskömmtum, verða breytingar í húð- inni á annan veg. Eftir þriggja vikna tíma eru þær mestar. Húðin er þá mjög rauð og pigmenteruð, kannske með vessandi fleiðrum, vegna röntgenbruna. Húðin jafnar sig þó fyllilega, þegar geisl- unin er gel'in á þennan hátt, en ekki í fáum stórum skömmtum, eins og áður tíðkaðist. Þegar geislameðferðin tekur svo lang- an tíma, er talið að hkurnar fyrir því aukist mjög, að geislarnir hitti æxlisfrum- urnar, þegar þær eru að skipta sér og eru næmastar fyrir geislunum. Þessi geislatækni, sem nú var lýst (kennd við H. Coutard), er ein aðal- framförin í geislameðferð hin síðari ár, og hefur bætt mjög árangur við ýmsar krabbameinstegundir, sem áður voru lítt eða ekki viðráðanlegar með geislun (Ca. laryngis). Radium og röntgengeislar eru notaðir jöfnum höndum. Við útvortis krabbamein, sem ekki er mjög stórt um sig og afmark- að, t.d. í húðinni, er notað radium. Einn-

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.