Fréttablaðið - 15.04.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 15.04.2017, Síða 2
Passíusálmalestur í Hallgrímskirkju Það var að vanda tilfinningaþrungin stund þegar Passíusálmarnir voru lesnir í Hallgrímskirkju í Reykjavík í gær. Breiður hópur rithöfunda las sálmana, þar á meðal voru Ármann Jakobsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Einar Kárason og Kristín Steinsdóttir. Nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands léku á Klais-orgel kirkjunnar eftir fimmta hvern sálm. Fréttablaðið/SteFán Veður Norðangola eða kaldi í dag og él norðan til á landinu en léttskýjað um landið sunnanvert. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 5 stig sunnan og suðvestan til. sjá síðu 42 Grand Indókína Víetnam, Laos og Kambódía | 14.- 31. okt. Verð frá: 655.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi. Verð án Vildarpunkta: 665.900 kr. Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS samfélag „Draumurinn er að endur­ lífgun verði að skólaskyldu í fram­ tíðinni á Íslandi,“ segir Elín Freyja Hauksdóttir, læknir og meðlimur í Björgunarfélagi Hornafjarðar, en bæjarráðið þar samþykkti að kaupa þrjátíu endurlífgunardúkkur á fundi sínum. Endurlífgun hefur verið skylda í grunnskólum í Danmörku í nokkur ár og þegar tölur eru bornar saman um hversu margir fengu endurlífgun við hjartastopp utan spítala fyrir og eftir að verkefnið byrjaði, var niðurstaðan sláandi. Í ljós kom að helmingi fleiri í hjartastoppi fengu endurlífgun en áður og þriðjungi fleiri lifðu af. Verkefnið ber heitið Kids save lives og er kjarni þessa verkefnis að kenna árlega börnum frá 12 ára aldri endur­ lífgun, helst sem hluta af skólaskyld­ unni og þannig stuðla að því að fleiri fullorðnir kunni rétt viðbrögð þegar á reynir. „Þetta kostar lítið og að kenna krökkunum réttu handtökin fylgja engar aukaverkanir sem slíkar. Ég greip þetta á lofti eftir að hafa setið ráðstefnu hér á landi í september þar sem fjallað var um verkefnið. Draumurinn er að fleiri sveitarfélög taki þetta upp og þetta verði hluti af skólaskyldunni. Þegar á reynir verður þetta eðlilegt að kunna og að hjálpa náunganum,“ segir Elín. Hún segir að sveitarfélagið sé það fyrsta á landinu sem taki verkefnið upp samkvæmt þeim skilgreining­ um sem það hefur. „Ég veit að það hefur verið farið í einstaka bekki í Reykjavík en ekki í alla bekki í öllum skólunum. Við tókum sjöunda, átt­ unda og níunda bekk á einum degi. Tíundi bekkur fær heilan dag með Rauða krossinum í maí eins og venjulega og því var hann undan­ skilinn.“ Hún segir að börnin hafi staðið sig gríðarlega vel og það hafi verið skemmtilegt að sjá hvað þau náðu tækninni og taktinum fljótt. „Maður getur því ímyndað sér hvað þau væru orðin góð ef þetta væri gert árlega. Það voru unglingar, sem ég hafði þjálfað í þetta verkefni, sem sáu um kennsluna. Jafningjafræðsla gefur í mörgum tilfellum betri árangur og þótti mér því upplagt að reyna það hér. Við vorum þeim svo þarna til halds og trausts og til tryggja að öll mikilvægu atriðin væru með.“ benediktboas@365.is Dúkkurnar lífguðu upp á skólastarfið Hornafjörður samþykkti að kaupa 30 endurlífgunardúkkur fyrir grunnskólann. Elín Freyja Hauksdóttir læknir sat ráðstefnu um endurlífgun í september og tók málin í sínar hendur. Hún vill að endurlífgun verði hluti af skólaskyldu. Dúkkurnar eru einfaldasta útgáfan af endurlífgunardúkkum og hnoða allir nemendur í einu. MynD/elín Freyja Ég veit að það hefur verið farið í einstaka bekki í Reykjavík en ekki í alla bekki í öllum skólunum. Elín Freyja Hauksdóttir læknir fiskeldi Hafrannsóknastofnun, Náttúrustofa Vestfjarða, Matís, Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum og Landssamband veiði­ félaga fengu úthlutað styrkjum úr Umhverfissjóði sjókvíaeldis – sjóðs sem er ætlað að stuðla að því að lág­ marka umhverfisáhrif sjókvíaeldis. Alls var úthlutað tíu styrkjum að upphæð 86,6 milljónir króna. Þau verkefni sem unnið verður að eru flest á vegum Hafrannsókna­ stofnunar. Stofnunin fær, ásamt Matís, styrk til að kanna erfðafræði­ leg áhrif laxeldis á villta laxastofna annan til vöktunar á umhverfis­ áhrifum sjókvíaeldis. Einnig til að meta burðarþol fjarða og sjókvía­ eldissvæða og útbreiðslu laxfiska og umhverfisþátta vatnsfalla á Aust­ fjörðum, þar sem áform eru um eldi upp á tugi þúsunda tonna af laxi. Náttúrustofa Vestfjarða fær styrk til vöktunar á lús á villtum laxfisk­ um á Vestfjörðum. Tilraunastöðin að Keldum til rannsókna á veirusýk­ ingum í hrognkelsum og Landssam­ band veiðifélaga til að kanna efna­ hagsleg áhrif lax­ og silungsveiða á Íslandi. Akvaplan­niva fær styrk til að rannsaka hrognkelsi sem nýtt eru til að éta laxalús í sjókvíum. – shá Rannsóknir á fiskeldi styrktar um 86 milljónir Flestir styrkirnir eru vegna nei- kvæðra áhrifa fiskeldis, eða ótta við áhrif þess. Fréttablaðið/Pjetur samfélag Hljómsveitin Sigur Rós hefur í samstarfi við kannabisfram­ leiðandann Lord Jones hannað kannabissælgæti að nafni Wild Sigur­ berry. Er um að ræða hlaup með virku efnunum í kannabis, THC og CBD.  Er það til í þremur tegundum, með brómberja­, jarðarberja­ og bláberja­ bragði. Frá þessu greina erlendir miðlar á borð við Pitchfork og Rolling Stone. Ekki verður hægt að nálgast namm­ ið í verslunum hér á landi enda er sala kannabisefna ólögleg á Íslandi. Til stendur að selja nammið í verslunum í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem og á vefsíðu Lord Jones en kannabis er lög­ legt í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna. Til að fagna nýju vörunni munu Sigur Rós og Lord Jones standa fyrir tónleikum í Hollywood á þriðjudag. Verður gestum boðið að smakka sæl­ gætið. – þea Sigur Rós hannar kannabisnammi 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 9 -F 6 C 8 1 C A 9 -F 5 8 C 1 C A 9 -F 4 5 0 1 C A 9 -F 3 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.