Fréttablaðið - 15.04.2017, Side 18

Fréttablaðið - 15.04.2017, Side 18
Ég sit í sólbaði í 20 stiga frosti,“ segir Róbert Lagerman, varafor-seti og  leiðangursstjóri skákfélagsins Hróksins í Grænlandi, en ellefta árið í röð slá Hróksmenn upp skák- og vinahátíð í Ittoqqortoormiit, einu afskekktasta þorpi þar í landi. Bærinn er við Scoresby-sund, sem er á 70. breiddargráðu, er næstum þús- und kílómetra frá næsta byggða bóli. Það fór þó ekki illa um Róbert þótt símasambandið hafi oft verið betra. Íbúar í Ittoqqortoormiit eru á fimmta hundrað og taka að jafnaði öll börn bæjarins þátt í hátíðinni sem hófst á miðvikudag og lýkur á mánudag. „Það er alltaf jafn gaman að koma hingað og þessi bær slær í takt við Hrókshjartað. Þetta eru ell- eftu páskarnir okkar hér í röð og hér hefur skapast mikil skákmenning og hefð.“ Á miðvikudag heimsóttu Hróks- menn  leikskóla og dvalarheimili eldri borgara klyfjaðir gjöfum frá velunnurum á Íslandi, m.a. prjóna- og ullarfatnaði frá prjónahópum Gerðubergs og Rauða krossins í Reykjavík.  Á fimmtudag tefldi Róbert fjöltefli við börn og fullorðna í grunnskóla bæjarins og samhliða hófst myndlistarsamkeppni Hróks- ins og Pennans fyrir börn. Í gær var Páskaeggjaskákmót Hróksins og Bónuss þar sem allir þátttakendur fengu páskaegg og annan glaðning. Í dag, laugardag, verður Norlandair- mótið, sem jafnframt er meistara- mót Ittoqqortoormiit. Á mánudag verður svo haldinn Dagur vináttu Íslands og Græn- lands í grunnskólanum, þar sem m.a. verða kynnt úrslit myndlistar- samkeppninnar og efnt til einvígis í blindskák milli Róberts og Paulus Napatoq. Paulus er 23 ára heimamaður og  einn besti skákmaður Græn- lands. Hann er blindur en lærði að tefla í fyrstu heimsókn Hróksins til þorpsins árið 2007 og náði strax undraverðum tökum á skáklistinni. Paulus var gerður að heiðursfélaga Hróksins 2010. „Við eigum að koma heim snemma í næstu viku en ég hef nú verið veðurtepptur hér í meira en viku þannig að kannski er best að vera ekkert að segja hvenær við komum heim. Við komum klyfj- aðir gjöfum og með rúmlega 120 páskaegg fyrir börnin. Nánast hvert einasta barn mætir til leiks undir kjörorðum Hróksins: Með gleðina að leiðarljósi. Eftir að við erum farnir þá heyrir maður af því að það sé beðið eftir næstu páskum.“ Fjölmargir leggja Hróknum og KALAK, vinafélagi Grænlands og Íslands, lið við hátíð- ina, meðal annars nokkur íslensk stórfyrirtæki eins og Flugfélag Íslands, Bónus, Brim og Mannvit. Róbert er leiðangursstjóri og með honum eru Hróksliðarnir Máni Hrafnsson og Joey Chang. Auk þeirra voru í undirbúningshópi leiðangurs- ins Hrafn Jökulsson, Kristjana Guð- mundsdóttir Motzfeldt og Jón Grét- ar Magnússon. benediktboas@365.is Snýst um meira en bara skák Skákfélagið Hrókurinn er nú ellefta árið í röð í þorpinu Ittoqqortoormiit á Grænlandi. Hróksmenn fóru með yfir 100 páskaegg til barnanna enda slær bærinn í takt við Hrókshjartað, segir varaforseti félagsins og leiðangurstjóri. Grunnskóli bæjarins, sem ber nafn landkönnuðarins Ejnars Mikkelsen, er miðstöð skákhátíðarinnar. Á fimmtudag tefldi Róbert Lagerman fjöltefli þar við börn og fullorðna. Mynd/HRókuRinn Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is NáNast hvert eiNasta barN mætir til leiks uNdir kjörorðum hróksiNs: með gleðiNa að leiðarljósi. róbert lagermaN, vara- forseti hróksiNs 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r18 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð helgin 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A A -0 0 A 8 1 C A 9 -F F 6 C 1 C A 9 -F E 3 0 1 C A 9 -F C F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.