Fréttablaðið - 15.04.2017, Qupperneq 32
skyldan bjó þó lengst af í Kópavogi.
„Íþróttir voru alltaf uppáhaldsfagið
mitt í skóla. Ég æfði fótbolta í sjö
ár, prófaði sund, handbolta og æfði
íshokkí. En ég hef aldrei fundið fyrir
jafn mikilli ástríðu fyrir neinu eins
og því sem ég er að gera í dag.“
Sunna sat ekki auðum höndum
eftir að dóttir hennar fæddist. „Hún
var ekki nema sex vikna þegar ég
fékk vinnu við barnagæslu á heilsu-
ræktarstöð. Það hentaði vel enda
fékk ég klukkutíma í mat sem ég
gat nýtt til að fara í ræktina og fékk
pössun á meðan.“ Síðar fór hún að
vinna um helgar og á kvöldin sem
barþjónn, dyravörður og leigubíl-
stjóri en hún leysti af föður sinn sem
var leigubílstjóri. „Í þessum störfum
lenti ég stundum í aðstæðum þar
sem mér var ógnað og upplifði van-
mátt í því að kunna ekki að verja
mig.“
Vinur Sunnu þjálfaði á þessum
tíma muay thai og hvatti hana til að
koma og æfa. „Ég átti lítinn pening
á þessum tíma en hef alltaf prjónað
mikið. Ég samdi því við hann að
prjóna á hann lopapeysu í staðinn
fyrir æfingagjöldin og endaði á að
prjóna á kærustu hans og dóttur
líka,“ segir Sunna brosandi. Hún
féll algerlega fyrir íþróttinni og
fékk fljótlega löngun til að fara út í
keppni.
Skokkaði inn í Mjölni
Ári síðar hafði Sunna tekið sér frí
úr muay thai og hugleiddi fram-
haldið. Gunnar Nelson og MMA
höfðu verið nokkuð til umfjöllunar
í fjölmiðlum og því var það einn
daginn sem hún var úti að hlaupa á
Mýrargötunni að hún hoppaði inn í
Mjölni til að forvitnast. Hún endaði
á að skrá sig í grunnnámskeið í
brasilísku jiu-jitsu sem reyndist
síðan vera eitt það skemmtilegasta
sem hún hafði gert. „Maður kynntist
svo mörgum og andinn í Mjölni var
svo góður að ég vissi strax að ég væri
velkomin.“ Sunna prófaði allt sem
í boði var, víkingaþrek, kickbox og
síðar ólympískt box.
Hún fór fljótlega að keppa. „Ég
hef aldrei verið hrædd við að keppa
enda lít ég á það sem prófraun og
áskorun á sjálfa mig.“
Í taílenskum æfingabúðum
Sunna hafði hug á frekara námi
og skráði sig á frumgreinabraut í
Háskólanum í Reykjavík. „Ég missti
pabba minn rétt fyrir skólabyrjun
og byrjaði því heldur brösuglega
í skólanum en með því að fá mér
einkakennara í stærðfræði náði ég
að klára tvær annir. Það einkenndi
þó allan þennan tíma að Taíland og
muay thai voru mér ofarlega í huga
enda fjölluðu öll mín verkefni um
draumaferð mína til Taílands að
æfa þjóðaríþróttina með heima-
mönnum.“
Það var svo ári eftir lát föður síns,
í janúar 2013, að Sunna ákvað að
láta drauminn rætast og skipulagði
þriggja mánaða æfingaferð í Tiger
Muay Thai æfingastöðina í Phuket
sem átti eftir að breyta miklu fyrir
hana. „Ég bjó í ódýru herbergi, sem
var ekki upp á marga fiska, og í
þokkabót staðsett í miðjum æfinga-
búðunum þannig að ég vaknaði á
morgnana við höggin í púðunum.“
Sunna vann sig fljótlega upp, byrj-
aði í byrjendahópi, var sama dag
send í miðlungshóp og nokkrum
dögum síðar í framhaldshóp. „Þá var
ég strax spurð hvort ég vildi keppa
og fyrsti muay thai-bardaginn
ákveðinn viku eftir að ég kom út.“
Sunna vann bardagann en endaði
þó á spítala skömmu síðar, þó af
allt öðrum ástæðum. Flugnanetið á
herberginu hennar var með stórum
götum og moskítóflugurnar höfðu
greiðan aðgang inn. Sunna var því
öll bitin, fékk sár um allan líkamann
og sýkingu þannig að hún þurfti að
komast undir læknishendur. Þar
sem sárin voru svo slæm var henni
meinað að æfa á stöðinni í heilan
mánuð. „Ég þurfti því að læra með
því að fylgjast með en stalst til að
kýla í púða eftir lokun á kvöldin.“
Hún fékk leyfi til æfinga daginn
fyrir fyrsta MMA bardaga sinn. „Ég
vann þann bardaga í fyrstu lotu
með uppáhalds hengingartaki
Gunna Nelson,“ segir Sunna sem
æfði eftir þetta með keppnishópi
stöðvarinnar og fékk við það mikla
keppnisreynslu utan stöðvarinnar
og kom heim með belti eftir fjögurra
mánaða veru úti, en hún fékk að
framlengja dvölina um mánuð í stað
tímans sem hún missti úr.
„Þegar ég kom heim var tekið
á móti mér í Mjölni með rauðri
keppnispeysu og þar með var ég
formlega komin inn í keppnislið
Mjölnis. Það var einstök tilfinning.“
Andlega hliðin skiptir öllu
Sunna segir mikilvægt að þjálfa
hugann ekki síður en líkamann. Það
lærði hún eftir fyrsta bardaga sinn
eftir heimkomuna. „Það er fyrsti og
eini bardaginn sem ég hef tapað en
líka sá sem ég lærði mest af. Ég hafði
kynnst manni í Taílandi sem hafði
ekki góð áhrif á andlegu hliðina hjá
mér. Ég sagði skilið við hann stuttu
fyrir bardagann og var því ekki vel
stemmd og það markaði frammi-
stöðu mína. Þá fann ég hversu
mikilvægt er að þjálfa hugann,“
segir Sunna sem stundar hugleiðslu
daglega.
Vill titilbardaga
Leiðin inn í atvinnuheim MMA
getur verið erfið og flestir þurfa að
heyja nokkra atvinnubardaga áður
en þeir komast að hjá bardagasam-
bandi á borð við Invicta. Sunna
náði að stytta sér leið með því að
fara á Evrópumótið í blönduðum
bardagalistum árið 2015 og vinna
Evróputitil sem varð til þess að
Invicta tók eftir henni og tók hana
inn í sambandið.
En hvert er framtíðarplanið?
„Í lok þessa árs eða byrjun næsta
langar mig að fá titilbardaga hjá
Invicta og berjast um belti í mínum
þyngdarflokki,“ svarar Sunna sem
lætur ekkert stöðva sig enda með
viðurnefnið Tsunami sem þýðir
flóðbylgja.
Sunna kom heim með belti að lokinni Taílandsdvölinni.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Segðu halló
FRÍSKANDI
LÍFRÆNT GOS
FULLKOMNAR
DAGINN
www.wholeearthfoods.com
Yfirfullt af náttúrulegum gæðum
Frískandi bragð - No nonsense
Fæst í heilsuvörubúðum og
öllum helstu matvöruverslunum
Segðu halló
FRÍSKANDI
LÍFRÆNT GOS
FULLKOMNAR
DAGINN
www.wholeearthfoods.com
Yfirfullt af náttúrulegum gæðum
Frískandi bragð - No nonsense
Fæst í heilsuvörubúðum og
öllum helstu matvöruverslunum
Mjölnir er eins
og annað heim-
ili Sunnu enda
bæði aðstaðan
og andinn á
stöðinni til
fyrirmyndar.
Mynd/EyþÓR
Mæðgurnar
Sunna og Anna
Rakel á góðri
stundu.
2 KynnInGARBLAÐ FÓLK 1 5 . a p r Í l 2 0 1 7 L AU G A R dAG U R
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
9
-F
B
B
8
1
C
A
9
-F
A
7
C
1
C
A
9
-F
9
4
0
1
C
A
9
-F
8
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K