Fréttablaðið - 15.04.2017, Síða 34

Fréttablaðið - 15.04.2017, Síða 34
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Flottir toppar Toppur á 6.900 kr. - einn litur: blátt/beige/ljósbrúnt - stærð: 36 - 46 Toppur á 7.900 kr. - 3 litir: olivugrænt, svart, kremhvítt - stærð: 36 - 46 Sumargjöfin fæst í Safnbúðinni Forvitnir ferðalangar, valkyrjur og víkingar Mikið úrval af vönduðum miðalda- og víkingabúningum og leikföngum. Lærðu að binda hnúta 1.550 kr. Sippuband 1.495 kr. Origami hundar og kettir 1.295 kr. Tölvuúr með sterkri pappírs-ól sem má skreyta eftir eigin höfði 1.495 kr. Teygjubyssa með 10 mjúkum kúlum 2.495 kr. Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · Sími 530 2203 · www.thjodminjasafn.is Hverfisgata 15 · 101 Reykjavík · Sími 530 2210 · safnahusid.is Njósnapenni 850 kr. Eftir að hafa stundað nám í Bandaríkjunum og starfað þar um rúmlega tveggja áratuga skeið sneri tónlistarmaðurinn Atli Örvarsson aftur heim til Íslands fyrir tæplega tveimur árum síðan. Hann hefur komið sér vel fyrir í sínum gamla heimabæ, Akureyri, ásamt fjölskyldu sinni og sinnir þar tónsmíðum fyrir vinsæla banda- ríska sjónvarpsþætti og Hollywood- kvikmyndir auk annarra verkefna. Í lok mánaðarins mun hann halda stórtónleika í Hofi á Akureyri þar sem úrval bestu verka hans verða flutt með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kór og einsöngvurum. Atli hóf nám í Berklee College of Music í Boston í Bandaríkjunum árið 1993. Þar tók hann m.a. áfanga í kvikmyndatónlist sem heillaði hann algjörlega upp úr skónum að eigin sögn og lagði svolítið línurnar fyrir líf hans þar eftir. Hann segist ekki hafa ákveðið að setjast að í Bandaríkjunum eftir útskrift en svo ákvað hann að stefna í vesturátt og reyna fyrir sér í Hollywood. „Á þeim tíma þurfti maður svolítið mikið bara að vera þar ef mann langaði til að vinna í kvikmyndatónlist. Nú er landslagið orðið allt annað og þetta er orðinn miklu alþjóðlegri bransi.“ Árin fram undan voru við- burðarík þar sem hann vann m.a. með frægum tónsmiðum á borð við Mike Post og Hans Zimmer og kom að gerð tónlistar við kvik- myndir á borð við Pirates of the Caribbean, The Simpsons Movie og The Holiday auk þriðju kvik- myndarinnar um Stúart litla sem var fyrsta stóra tækifærið hans. „Á þessum tíma kynntist ég líka og vann með mörgum frábærum kvik- myndagerðarmönnum eins og Ron Howard og Jim Brooks, aðalfram- leiðanda Simpsons-þáttanna.“ Næg verkefni Verkefnin eru næg um þessar mundir hjá Atla. Þessa dagana er hann að leggja lokahönd tónlist við kvikmyndina The Hitman’s Bodyguard með stórleikurunum Ryan Reynolds og Samuel Jackson í aðalhlutverkum. Svo tekur við metnaðarfull íslensk teiknimynd sem ber nafnið Lói, eða Ploey fyrir alþjóðlegan markað. „Þetta er falleg saga um lóuunga sem verður eftir á Íslandi og þarf að lifa af veturinn eftir að fjölskyldan flýgur til heitu landanna. Myndin er frá sömu framleiðendum og gerðu Þór – Hetjur Valhallar og er nú þegar búið að selja hana til tuga landa. Svo má nefna að ég er með fjórar sjónvarpsseríur í gangi á sjónvarps- stöðinni NBC í Bandaríkjunum. Þær heita Chicago Fire, Med, Justice og Chicago P.D. og njóta gríðarlegra vinsælda vestra þar sem meðaláhorf á hvern þátt er á bilinu 6-10 millj- ónir manns. Þættirnir eru sýndir víða um heim, m.a. hér á Íslandi.“ Sjónræn upplifun Stóra verkefni Atla þessa dagana er þó undirbúningur stórtónleika með eigin verkum sem verða haldnir í Hofi á Akureyri, sunnudaginn 30. apríl. „Þar ætla ég að leiða Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands, kór og ein- söngvara í gegnum smá þverskurð af kvikmynda- og sjónvarpstónlist minni. Einnig verður flutt svíta úr tónlistinni sem ég gerði fyrir kvik- myndina Season of the Witch með Nicolas Cage, á stórri kvikmynda- tónlistarhátíð á Tenerife í septem- ber. Það er greinilega mikill áhugi á lifandi flutningi á kvikmyndatón- list þessa dagana og ég held að oft sé hún einu eða fyrstu kynni ungs fólks af sinfónískri tónlist nú orðið.“ Hann segir að dagskráin verði fjölbreytt. Í grunninn verði þetta sinfónískir tónleikar en tón- listin hafi blæ allt frá stórum kór og hljómsveitarverkum yfir í viðkvæma þjóðlagaskotna þætti með viðkomu í rokki og dægurtón- list. „Í raun held ég að allir muni finna eitthvað við sitt hæfi enda efni úr jafn fjölbreyttum áttum og Chicago Fire, Hansel & Gretel: Witch Hunters, Hrútum og Stúart litla. Ég legg líka mikið upp úr sjónrænu upplifuninni og munum við sýna myndbrot tengd efninu, grafík og ljós þannig að þetta er svona einhvers staðar mitt á milli klassískra tónleika og popptón- leika, með sterku myndrænu ívafi. Einnig mun ég frumflytja nýtt verk, Lament for the Woods, sem er í raun kafli af stærra verki sem ég er með í smíðum. Það fjallar um lofts- lagsbreytingar og neikvæð áhrif mannsins á náttúruna og móður jörð.“ Mikil gróska í tónlist Eftir rúmlega tveggja áratuga búsetu í Bandaríkjunum voru mikil við- brigði að flytja aftur heim segir Atli. „Stundum líður mér svolítið eins og innflytjanda hér eftir að hafa búið mest af mínum fullorðinsárum erlendis. Við sjáum þó alls ekki eftir þessari ákvörðun og njótum þess sem við sækjumst í hér, sem er friðurinn, kyrrðin og fjölskyldan.“ Þrátt fyrir langa búsetu erlendis hefur Atli reynt að fylgjast með íslensku tónlistarlífi þótt hann viðurkenni fúslega að hann eigi mjög margt eftir ólært. „Það verður að segjast að gróskan í íslensku tónlistarlífi er með ólíkindum og ég er rosalega stoltur af því hvers konar færiband af snilld er að koma frá þessari fámennu þjóð. Það eitt hlýtur að segja eitthvað um gæði þessa samfélags og ég er líka mjög glaður að sjá að ráðamenn þjóðar- innar eru að byrja að átta sig á mikilvægi greinarinnar.“ Gott að komast í kyrrðina heima Atli Örvarsson heldur stórtónleika í Hofi í lok apríl þar sem úrval verka hans úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum verða flutt. MYND/AUÐUNN Atli Örvarsson bjó lengi í Banda- ríkjunum þar sem hann samdi tón- list fyrir vinsæla sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Nú er fjölskyldan búsett á Akureyri og unir sér vel. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . A p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A A -4 5 C 8 1 C A A -4 4 8 C 1 C A A -4 3 5 0 1 C A A -4 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.