Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 43

Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 43
Fasteignasalan Stakfell óskar eftir að ráða starfmann í skjalvinnslu Fasteignasalan Stakfell óskar eftir að ráða starfsmann í 50% starf á skrifstofu. Starfið felst í utanumhald við skjalavinnslu, bakvinnslu, útreikning á uppgjörum samninga ásamt öðru sem til fellur við frágang samninga. Gerð er krafa um menntun og reynslu sem nýtist í starfinu. Umsóknarfrestur er til 29. apríl n.k. Ferilskrá ásamt kynningarbréfi berist á netfangið thorlakur@stakfell.is. Allar nánari upplýsingar veitir Þorlákur Ómar Einarsson löggiltur fasteignasali, thorlakur@stakfell.is Þrífst þú á ánægju annara? Activity Stream, þróar og selur hugbúnað á sviði rekstrargreindar (Operations Intelligence) sem gagnast meðalstórum og stórum fyrirtækjum sem vilja nýta vitvélar (gervigreind) til að bæta daglegan rekstur og þjónustu. Activity Stream er fullfjármagnað nýsköpunarfyrirtæki með vaxandi starfsemi á Íslandi og í Danmörku. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur sérfræðinga á sviði hugbúnaðargerðar, rekstrargreindar, gervigreindar, kerfisrekstrar, sölu og þjónustu. • Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fyrst of fremst í Evrópu og Bandaríkjunum. • Mjög góð verkefnastaða meðal núverandi og verðandi viðskiptavina. • Í boði eru samkeppnishæf laun, góð vinnuaðstaða, hvetjandi starfs- umhverfi og góður starfsandi. • Lögð er áhersla á jafnvægi vinnu og einkalífs. Framúrskarandi hópur sérfræðinga vill bjóða metnaðarfullum snillingi þátttöku í bráðskemmtilegu ævintýri. Árangurstrygging Viðskiptavina (Customer Success) Starfið heyrir undir rekstrarstjóra og fellst í að tryggja ánægju viðskiptavina Activity Stream með forvirkum samskiptum sem ýta undir árangursríkari notkun vörunnar og að safna og miðla ábendingum notenda um úrbætur, breytingar og viðbætur við vöruna. Helstu verkefni: • Gerð, framkvæmd og eftirfylgni áætlunar um aukinn árangur viðskiptavina. • Að vera rödd viðskiptavina og standa vörð um hagsmuni þeirra í þróun vörunnar. • Skilgreining árangurstryggingar viðskiptavina og uppbygging þjónustu. • Framkvæmd og síðar eftirlit með aðstoð við notendur og farsælli úrlausn þeirra mála. Kjörið viðfangsefni fyrir fólk með ofvaxna þjónustulund og brennandi áhuga á árangri annara. Viðkomandi þarf að búa yfir ómótstæðilegum persónutöfrum, vera ósérhlífin(n), hafa framúrskarandi samskiptahæfileika, geta haft stjórn á krefjandi aðstæðum og nærast á því að gera alltaf aðeins meira. Enskukunnátta af sverustu sort er algjört skilyrði og dönskukunnátta mikill kostur. Umtalsverður hluti starfsins byggir á forvirkum aðgerðum og kallar á töluverðan skilning á sjálfvirkni. Umhverfi starfsins er mjög spennandi og býður, ef fram fer sem horfir, mikla möguleika til vaxtar. Nánari upplýsingar á www.activitystream.com/storf Fyrirspurnir og umsóknir sendist á jobs@activitystream.com www.activitystream.com Til hvers að auglýsa ? Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma í úrvinnslu innsendra umsókna. Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni. Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Með starf fyrir þig Starfsemi STRÁ ehf. býr að aldarfjórðungs reynslu og þekkingu á sviði starfs- manna- og ráðningarmála en stofan hefur unnið fyrir mörg helstu og leiðandi fyrirtæki landsins um árabil. Rík áhersla er lögð á trúnað varðandi vörslu gagna og upplýsinga bæði gagnvart umsækjendum, sem og vinnuveitendum. Ánægðir viðskiptavinir til margra ára hafa notið þjónustu STRÁ, en stofan hefur jafnframt umsjón með ráðningum í sérfræði- og stjórnunarstöður. www.stra.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A A -6 3 6 8 1 C A A -6 2 2 C 1 C A A -6 0 F 0 1 C A A -5 F B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.