Fréttablaðið - 15.04.2017, Qupperneq 47
Katla UNESCO Global Geopark
Verkefnastjóri
Katla jarðvangur/Katla UNESCO Global Geopark leitar að
kraftmiklum einstaklingi í krefjandi starf verkefnastjóra
sem vinni við hlið framkvæmdasstjóra að fjölbreyttum
verkefnum jarðvangsins.
Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu umhverfi þar sem
sjálfstæði og frumkvæði í starfi er nauðsynlegt. Að baki
Kötlu jarðvangi stendur stjórn og öflugt net fagaðila sem
verkefnastjóri vinnur náið með í teymisvinnu.
Helstu verkefni:
• Markaðs- og kynningarmál jarðvangsins.
• Gerð fræðsluefnis.
• Innlend og erlend samskipti er tengjast jarðvanginum,
m.a. við jarðvangsfyrirtæki.
• Þátttaka í gerð rekstrar- og stjórnunaráætlana
fyrir jarðvanginn.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, en háskólapróf í jarðfræði
eða landfræði er kostur.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfni.
• Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
• Reynsla af rekstri og nýsköpunarstarfi er æskileg.
Jarðvangurinn nær yfir sveitarfélögin þrjú; Rangárþing
eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp, og er gert ráð fyrir
að starfstöð og búseta rekstrarstjórans verði í einhverju
þessara sveitarfélaga.
Gert er ráð fyrir að um fullt starf sé að ræða og um
launakjör fer eftir samkomulagi.
Umsóknir, m.a. með upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu, berist formanni stjórnar jarðvangsins á netfangið
sveitarstjori@vik.is eigi síðar en 2. maí 2017.
Nánari upplýsingar veita Ásgeir Magnússon
(sveitarstjori@vik.is, s. 487-1210) og Brynja Davíðsdóttir
framkvæmdastjóri Kötlu jarðvangs
(brynja@katlajardvangur.is, s. 844-7633), auk þess er bent
á www.katlageopark.is.
Vélskömmtun lyfja
Lyfjaver óskar eftir að ráða traustan starfsmann til
framtíðarstarfa við vélskömmtun lyfja. Viðkomandi þarf að
vera heilsuhraustur, snyrtilegur, reglusamur, nákvæmur og
samviskusamur og hafa hreint sakavottorð.
Kostur ef viðkomandi hefur:
- Reynslu af vinnu við lyfjaframleiðslu
- Innsýn, áhuga og reynslu af vinnu skv. gæðaferlum
- Góða almenna tækni- og tölvukunnáttu
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð a.m.k. 20 ára aldri og
geti unnið yfirvinnu á álagstímum. Í boði er áhugavert starf í
góðum starfsmannahópi hjá framsæknu og vaxandi fyrirtæki.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á alli@lyfjaver.is
fyrir 24.apríl n.k.
Rafvirki-
tæknimaður
Smith & Norland, Nóatúni 4, vill sem fyrst ráða
tæknimann til starfa í þjónustudeild fyrirtækisins.
Starfið felur í sér viðgerðir og þjónustu á heimilistækjum og öðrum
rafbúnaði, afgreiðslu varahluta, símsvörun og ýmis önnur störf á
þjónustuverkstæði okkar.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi, rafvirkja eða aðila
með sambærilega menntun, sem vill takast á við áhugavert starf og
hefur mikinn áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu
fyrirtæki á rafmagnssviði.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru beðnir að senda umsókn til
Smith & Norland með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
fyrir 21. apríl.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, sminor.is,
(undir flipanum UM OKKUR) eða á skrifstofu fyrirtækisins.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem algjört
trúnaðarmál.
Störf við nýsköpun og frumkvöðlastarf
á Norðurlandi vestra
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
A
-6
3
6
8
1
C
A
A
-6
2
2
C
1
C
A
A
-6
0
F
0
1
C
A
A
-5
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K