Fréttablaðið - 15.04.2017, Qupperneq 56
Margrét Þórhildur Dana-drottning heldur upp á 77 ára afmæli sitt á morgun.
Hún er fædd 16. apríl 1940. Danir
velta því nú fyrir sér hvort maður
hennar, Hinrik prins, muni fagna
með henni.
Margrét er elsta dóttur Friðriks
konungs en hún tók við krúnunni
af honum í janúar 1972 eða fyrir
45 árum. Hinrik prins, sem er 82
ára, ákvað að fara á eftirlaun fyrir
nokkrum árum og taka ekki frekari
þátt í opinberum erindagjörðum.
Hann nýtur sín best í sólarlöndum og
dvelur mikið á Mallorca, Tenerife og
í Frakklandi. Tekið var eftir því þegar
belgísku konungshjónin, Philippe og
Mathilde, komu í opinbera heimsókn
til Danmerkur fyrir nokkrum vikum
að Hinrik var hvergi sjáanlegur. Hann
mun hafa verið á Tenerife á þeim
tíma ásamt nokkrum nánum vinum,
að því er netsíða sænska blaðsins
Expressen greinir frá. Sumir hafa
kallað hegðun prinsins vandræðalega
fyrir hina konunglegu fjölskyldu.
Þetta var þó ekki í fyrsta skipti sem
Hinrik er fjarstaddur gleðina í höll-
inni. Þegar Margrét varð 75 ára fyrir
tveimur árum hélt hún heilmikla
veislu og bauð gestum víða að úr
heiminum. Hinrik mætti hins vegar
ekki mörgum til undrunar. Þá var
talað um að prinsinn væri með flensu.
Hins vegar náðist mynd af honum á
sama tíma að njóta lífsins í Feneyjum.
Hinrik hefur oft látið í ljós óánægju
sína með að vera ekki kallaður
kóngur. Honum finnst ekki nógu
mikil virðing fólgin í því að vera
danskur prins. Margir hafa velt því
fyrir sér hvort einhverjir brestir séu í
sambandi þeirra hjóna. Að minnsta
kosti er hann mikið fjarri konungs-
höllinni.
Vinir hans segja að hann vilji ráða
sér sjálfur og gera það sem hann
langar til, nú á efri árum. „Hann gerir
nákvæmlega það sama og margir
aðrir ellilífeyrisþegar, að ferðast og
hitta vini sína. Hinrik hefur lagt alla
sína krafta í prinshlutverkið og hann
á skilið að fá að taka lífinu aðeins
rólega,“ segja vinir hans.
Kýs sólina
Einfaldar og góðar pönnukökur sem henta vel um
hátíðir, til dæmis í sumar-
bústaðnum. Með þessum
pönnukökum er annað-
hvort hægt að hafa sultu
og bláber eða beikon, egg
og hlynsíróp. Uppskriftin
miðast við tvo.
1 vel þroskaður banani
2 egg
1 msk. smjör til steikingar
Skerið bananann í bita
og maukið hann síðan og
stappið með gaffli. Hrærið
eggin saman og og hrærið
þau síðan saman við með
bananamaukið.
Bræðið smjör á pönnu og
bakið litlar pönnukökur
úr deiginu. Pönnukökurn-
ar eiga að verða gullnar og
fallegar á báðum hliðum.
Deigið ætti að nægja í að
minnsta kosti átta litlar
pönnukökur.
Bananapönnukökur
Hvaða hæfileiki býr í hendinni þinni? er yfirskrift lista-smiðju sem haldin er í dag í
Norræna húsinu. Smiðjan er hluti af
sýningunni Interwoven og verður í
umsjá Thelmu Bjarkar Jónsdóttur,
meistaranema í listkennsludeild
Listaháskóla Íslands.
„Leggðu hönd þína á dúkinn
og saumaðu hana út. Gefðu þér
tíma og upplifðu flæði með nál í
hönd. Engin ein aðferð er réttari en
önnur og allt leyfilegt með nálina
og þráðinn í höndum.“ Svo hljómar
lýsing á smiðjunni á viðburðinum á
Facebook. Þar segist Thelma einnig
oft hafa spurt sig af hverju handverk
sé henni svo kært og það „fléttað
inn í allt sem ég geri í dag? Svarið er
einfalt, það er þessi sterka tilfinn-
ing sem blossar alltaf upp hjá mér
þegar ég er að bródera. Tilfinningin
sem tengist minningu sem hleður
mig af vellíðan, hugarró og sterkri
tengingu milli hugar og handar.“
Aðgangur er ókeypis.
Smiðja í
Norræna húsinu
tt
Opnunartímar yfir páska
Laugardagur kl. 10-22
Páskadagur kl. 10-18
Annar í páskum kl. 10-22
Fermingin byrjar
með bók!
Tilboð
19.990 kr.
Áður 24.990 kr.
Tilboð
5.990 kr.
Áður 7.299 kr.
Tilboð
5.490 kr.
Áður 7.290 kr.
Tilboð
7.990 kr.
Áður 10.490 kr.
Tilboð
10.990 kr.
Áður 12.990 kr.
Tilboð
1.990 kr.
Áður 5.690 kr.
Tilboð
8.690 kr.
Áður 11.190 kr.
Tilboð
5.490 kr.
Áður 7.990 kr.
Tilboð
5.390 kr.
Áður 14.590 kr.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
A
-4
0
D
8
1
C
A
A
-3
F
9
C
1
C
A
A
-3
E
6
0
1
C
A
A
-3
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K