Fréttablaðið - 15.04.2017, Qupperneq 60
Fyrr í þessum mánuði var þess minnst að hundrað ár eru liðin frá því að Bandaríkin sögðu Þjóð-verjum stríð á hendur og hófu þannig beina þátt-
töku sína í fyrri heimsstyrjöldinni.
Stríðsyfirlýsingin þann sjötta apríl
1917 átti sér allnokkurn aðdraganda
og kom ekki sérstaklega á óvart.
Woodrow Wilson Bandaríkjaforseti
tryggði sér endurkjör í kosningunum
síðla árs 1916 með slagorðinu: „Hann
hélt okkur utan við stríðið!“ Síðar
hafa sagnfræðingar þó sýnt fram á
að Wilson hafði löngu fyrr lagt drög
að stríðsþátttöku Bandaríkjamanna
og vann hörðum höndum að því að
undirbúa jarðveginn heima fyrir.
Engum blöðum er um það að fletta
að tilkoma bandaríska herliðsins
skipti sköpum varðandi úrslit stríðs-
ins. Staðan á vesturvígstöðvunum var
löngu orðin þrátefli, þar sem hvorugur
aðilinn hafði mátt til að brjóta niður
varnir hins, á meðan stríðsþreytan
jókst jafnt og þétt í herbúðum beggja.
Með bandaríska liðsaukanum komu
nýir og óþreyttir hermenn, en meira
munaði um óheftan aðgang að her-
gögnum, hráefnum og hvers kyns
varningi á meðan vöru- og eldsneytis-
skortur Þjóðverja varð sífellt meiri.
Það var þessi skortur sem að lokum
knúði þýska herinn til aðgerða sem
hlutu að draga Bandaríkin inn í stríðið.
Þótt Bandaríkjamenn hafi átt að
heita hlutlausir í heimsstyrjöldinni
fram á árið 1917, var ljóst hvorum
megin samúð stjórnvalda í Washing-
ton lá. Sterk söguleg tengsl voru milli
Breta og Bandaríkjamanna, einkum
hins ráðandi hóps kristinna, hvítra
íbúa af engilsaxneskum uppruna. Í
aðdraganda styrjaldarinnar og fyrstu
mánuðina, mátti það sjónarmið heita
ríkjandi að Evrópubúar væru stríðs-
óðir og ekki viðbjargandi. Stríðið væri
öllum aðilum álíka mikið að kenna og
best væri að koma ekki nálægt þessum
hildarleik.
Með tímanum sveigðist orðræðan
yfir í að margir hefðu að sönnu gert
mistök, en ábyrgð Þjóðverja væri þó
sýnu mest. Litríkar og í mörgum til-
vikum upplognar frásagnir af ódæðis-
verkum þýska hersins í hlutlausa smá-
ríkinu Belgíu höfðu djúpstæð áhrif á
almenningsálitið og skipti þar miklu
máli að eigendur margra helstu dag-
blaða Bandaríkjanna voru einarðir
stuðningsmenn Breta. Gunnar Þór
Bjarnason sagnfræðingur hefur bent á
að svipuð þróun átti sér stað á Íslandi,
þar sem samúð íslensku blaðanna
með andstæðingum Þjóðverja jókst
jafnt og þétt, enda allar þær fregnir
sem til landsins bárust rækilega rit-
skoðaðar.
Skipsskaðar og hryðjuverk
Ýmsir atburðir urðu til þess að snúa
almenningsálitinu í Bandaríkjunum
enn frekar Þjóðverjum í óhag. Vorið
1915 sökktu Þjóðverjar án viðvör-
unar breska farþegaskipinu Lúsit-
aníu, þar sem um 1.200 manns fórust,
þar á meðal fjöldi Bandaríkjamanna
og ýmsir nafntogaðir einstaklingar.
Árásin þótti einstaklega grimmileg
og í augljósri andstöðu við alþjóða-
lög, þótt Þjóðverjar gætu raunar tínt
til einhverjar málsbætur, svo sem að
allstór vopnasending hefði verið um
borð í skipinu og það því getað talist
lögmætt skotmark í hernaði. Herská
öfl í Bandaríkjunum kröfðust tafar-
lausrar stríðsyfirlýsingar, en stjórn
Wilsons neitaði að verða við því enda
hétu Þjóðverjar að draga nokkuð úr
kafbátahernaði sínum.
Tvær meiriháttar sprengingar í
sprengiefnageymslum í New Jersey,
sú fyrri um mitt ár 1916 og sú síðari í
ársbyrjun 1917, ollu sömuleiðis mikilli
reiði í garð Þjóðverja sem kennt var
um atvikin. Í báðum tilvikum sprungu
í loft upp gríðarstórir sprengiefna-
farmar sem senda átti til Bretlands
og Rússlands. Fyrri atburðurinn er
einkum kunnur í sögunni fyrir þær
sakir að sjálf Frelsisstyttan varð fyrir
hnjaski í sprengingunni og upp frá því
hefur gestum ekki verið hleypt upp í
kyndil styttunnar.
Böndin bárust þegar að þýskum
útsendurum, þótt bent hafi verið á
að ýmsir aðrir hópar hafi haft ástæðu
til að kveikja í geymslunum til að ná
sér niður á Bretum, svo sem írskir og
indverskir þjóðernissinnar. Þá komst
rannsóknarnefnd að þeirri niðurstöðu
árið 1931 að Þjóðverjar hefðu ekki átt
hlut að máli í seinni sprengingunni.
Það skipti þó litlu máli, því fyrst eftir
sprengingarnar velktust fáir í vafa um
þátt Þjóðverja í hryðjuverkunum og
hefndarþorstinn kviknaði.
Þjóðverjar vildu vitaskuld mikið til
vinna að halda Bandaríkjamönnum
fyrir utan stríðið, en með tímanum
tóku þó önnur atriði að vega þyngra
í ákvarðanatökunni. Hafnbann Breta
á Þjóðverja hélt að langmestu leyti öll
styrjaldarárin, sem takmarkaði mjög
alla möguleika þeirra til hráefnisöfl-
unar, sem bitnaði bæði á stríðsrekstr-
inum og almennum borgurum. Það
að brjótast undan hafnbanninu og
jafnframt að hindra vöruflutninga til
Bretlands varð því sífellt meira for-
gangsatriði, hvað sem það kostaði.
Þann fyrsta febrúar 1917 ákváðu
Þjóðverjar að hefja ótakmarkaðan
kafbátahernað. Sú ákvörðun hlaut í
raun að leiða til beinnar stríðsþátttöku
Bandaríkjamanna, sem ítrekað höfðu
komið þeim skilaboðum á framfæri að
slíkur hernaður yrði ekki liðinn. Nið-
urstaða þýska hersins var þó sú að ill-
skárra væri að fá bandaríska hermenn
í stríðið en að þola áfram drottnunar-
stöðu Breta á höfunum.
Sem fyrr segir er erfitt að ímynda sér
að Bandaríkin hefðu lengi staðið utan
styrjaldarinnar eftir að kafbátahern-
aðurinn hófst fyrir alvöru. Örvænt-
ingarfull tilraun þýsku stjórnarinnar
til að stuðla að því, snerist hins vegar
rækilega í höndunum á henni og gull-
tryggði að Wilson tókst að fá stuðning
þingsins fyrir stríðsþátttökunni. Þetta
sjálfsmark Þjóðverja var í formi leyni-
skeytis: Zimm ermann-skeytisins svo-
kallaða.
Brugguð launráð
Skeytið er kennt við Arthur Zimmer-
mann, þáverandi utanríkisráðherra
Þýskalands og var sent nítjánda janúar
1917, fáeinum dögum áður en þýsku
kafbátahersveitirnar létu til skarar
skríða. Það fór eftir ritsímalínum
sem einvörðungu voru ætlaðar fyrir
bandarískan diplómatapóst og var
stílað á þýska sendiherrann í Mexíkó-
borg. Innihald þess var reyfarakennt:
að kanna hvort Mexíkóstjórn – ef
Bandaríkin segðu Þjóðverjum stríð á
hendur – væri reiðubúin til að mynda
bandalag með Þýskalandi og ráðast á
Bandaríkin. Samkvæmt skeytinu var
hugmyndin að fá Japani með í þetta
skringilega hernaðarbandalag. Japan
myndi að launum hljóta ýmis land-
svæði í Asíu en Mexíkó myndi endur-
heimta ríkin Texas, Arisóna og Nýju-
Mexíkó.
Erfitt er að túlka tillögur þessar sem
annað en sambland af örvæntingu og
barnaskap. Hagur Þjóðverja af hug-
myndinni var augljós, þar sem Banda-
ríkjaher yrði líklega of upptekinn
heima fyrir að berjast við Mexíkóa til
að vera aflögufær um herlið til Evrópu.
Hvað Mexíkóstjórn átti að græða á
plottinu var hins vegar erfiðara að sjá.
Þýskaland gat engri hernaðaraðstoð
lofað, heldur einungis pólitískum og
fjárhagslegum stuðningi. Alls var
óljóst hversu miklir borgunarmenn
Þjóðverjar yrðu fyrir loforðunum,
jafnvel þótt þeim tækist að vinna
stríðið í Evrópu. Þá var Bandaríkjaher
miklu sterkari en sá mexíkóski, svo
innrás hefði verið feigðarflan.
Engar líkur voru á að stjórnvöld í
Mexíkó féllust á svo fjarstæðukennda
ráðagerð, svo það eitt að senda skeytið
mátti teljast misráðið. Verra var þó að
breska leyniþjónustan fylgdist með
öllu saman. Þýska stjórnin sendi leyni-
skeytið áhyggjulaus eftir ritsímalínum
bandarísku utanríkisþjónustunnar og
á dulmáli sem talið var óleysanlegt. Í
Berlín gerðu menn sér hins vegar ekki
grein fyrir því að bæði hleruðu Bretar
samskiptin og höfðu náð að verða sér
úti um dulmálslykilinn.
Í nokkrar vikur klóruðu Bretar sér í
kollinum hvað gera skyldi við þessar
safaríku upplýsingar. Zimmermann-
skeytið var augljóst pólitískt sprengi-
efni, en hvernig mátti ljóstra því upp án
þess að Þjóðverjar uppgötvuðu að búið
væri að ráða dulmálið og Bandaríkja-
menn kæmust að njósnastarfseminni?
Að lokum tókst þeim að púsla saman
sæmilega trúverðugri sögu um að
breskum njósnara hefði tekist að stela
skjalinu í Mexíkóborg.
Bandaríkjastjórn beið ekki lengi
með að gera leyniskjalið opinbert og
fordæma harðlega þessi svikráð Þjóð-
verja, sem jöðruðu við stríðsyfirlýs-
ingu. Andstæðingar þess að Bandarík-
in drægjust inn í stríðið brugðust hins
vegar við með því að vísa skjalinu á bug
sem augljósri fölsun Breta. Hölluðust
margir að því að sú væri raunin, enda
áformin sem lýst var í skeytinu slík að
ótrúlegt var að þýskur utanríkisráð-
herra hefði látið slíkt frá sér fara.
Af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum kaus Arthur Zimmermann
hins vegar að staðfesta tilvist skeytis-
ins í umræðum í þýska þinginu í
byrjun mars, þegar hann var spurður
út í málið. Þótt sannsögli sé vissulega
dyggð, getur þessi hreinskilni ekki
talist mjög skynsamleg. Með játning-
unni gaf utanríkisráðherrann Banda-
ríkjastjórn frábært áróðursvopn til að
tryggja stuðning við að senda herlið
til Evrópu. Fáeinum vikum síðar kom
formlega stríðsyfirlýsingin og lok fyrri
heimsstyrjaldarinnar voru í raun ráðin.
Heimskulegasta
skeyti allra tíma
Stefán Pálsson skrif-
ar um leyniskeyti
sem breytti gangi
heimsstyrjaldar.
Saga
til næsta
bæjar
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
… Mexíkó Myndi endur-
heiMta ríkin texaS,
ariSóna og nýju-Mexíkó.
1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
A
-1
4
6
8
1
C
A
A
-1
3
2
C
1
C
A
A
-1
1
F
0
1
C
A
A
-1
0
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K