Fréttablaðið - 15.04.2017, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 15.04.2017, Blaðsíða 60
Fyrr í þessum mánuði var þess minnst að hundrað ár eru liðin frá því að Bandaríkin sögðu Þjóð-verjum stríð á hendur og hófu þannig beina þátt- töku sína í fyrri heimsstyrjöldinni. Stríðsyfirlýsingin þann sjötta apríl 1917 átti sér allnokkurn aðdraganda og kom ekki sérstaklega á óvart. Woodrow Wilson Bandaríkjaforseti tryggði sér endurkjör í kosningunum síðla árs 1916 með slagorðinu: „Hann hélt okkur utan við stríðið!“ Síðar hafa sagnfræðingar þó sýnt fram á að Wilson hafði löngu fyrr lagt drög að stríðsþátttöku Bandaríkjamanna og vann hörðum höndum að því að undirbúa jarðveginn heima fyrir. Engum blöðum er um það að fletta að tilkoma bandaríska herliðsins skipti sköpum varðandi úrslit stríðs- ins. Staðan á vesturvígstöðvunum var löngu orðin þrátefli, þar sem hvorugur aðilinn hafði mátt til að brjóta niður varnir hins, á meðan stríðsþreytan jókst jafnt og þétt í herbúðum beggja. Með bandaríska liðsaukanum komu nýir og óþreyttir hermenn, en meira munaði um óheftan aðgang að her- gögnum, hráefnum og hvers kyns varningi á meðan vöru- og eldsneytis- skortur Þjóðverja varð sífellt meiri. Það var þessi skortur sem að lokum knúði þýska herinn til aðgerða sem hlutu að draga Bandaríkin inn í stríðið. Þótt Bandaríkjamenn hafi átt að heita hlutlausir í heimsstyrjöldinni fram á árið 1917, var ljóst hvorum megin samúð stjórnvalda í Washing- ton lá. Sterk söguleg tengsl voru milli Breta og Bandaríkjamanna, einkum hins ráðandi hóps kristinna, hvítra íbúa af engilsaxneskum uppruna. Í aðdraganda styrjaldarinnar og fyrstu mánuðina, mátti það sjónarmið heita ríkjandi að Evrópubúar væru stríðs- óðir og ekki viðbjargandi. Stríðið væri öllum aðilum álíka mikið að kenna og best væri að koma ekki nálægt þessum hildarleik. Með tímanum sveigðist orðræðan yfir í að margir hefðu að sönnu gert mistök, en ábyrgð Þjóðverja væri þó sýnu mest. Litríkar og í mörgum til- vikum upplognar frásagnir af ódæðis- verkum þýska hersins í hlutlausa smá- ríkinu Belgíu höfðu djúpstæð áhrif á almenningsálitið og skipti þar miklu máli að eigendur margra helstu dag- blaða Bandaríkjanna voru einarðir stuðningsmenn Breta. Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur hefur bent á að svipuð þróun átti sér stað á Íslandi, þar sem samúð íslensku blaðanna með andstæðingum Þjóðverja jókst jafnt og þétt, enda allar þær fregnir sem til landsins bárust rækilega rit- skoðaðar. Skipsskaðar og hryðjuverk Ýmsir atburðir urðu til þess að snúa almenningsálitinu í Bandaríkjunum enn frekar Þjóðverjum í óhag. Vorið 1915 sökktu Þjóðverjar án viðvör- unar breska farþegaskipinu Lúsit- aníu, þar sem um 1.200 manns fórust, þar á meðal fjöldi Bandaríkjamanna og ýmsir nafntogaðir einstaklingar. Árásin þótti einstaklega grimmileg og í augljósri andstöðu við alþjóða- lög, þótt Þjóðverjar gætu raunar tínt til einhverjar málsbætur, svo sem að allstór vopnasending hefði verið um borð í skipinu og það því getað talist lögmætt skotmark í hernaði. Herská öfl í Bandaríkjunum kröfðust tafar- lausrar stríðsyfirlýsingar, en stjórn Wilsons neitaði að verða við því enda hétu Þjóðverjar að draga nokkuð úr kafbátahernaði sínum. Tvær meiriháttar sprengingar í sprengiefnageymslum í New Jersey, sú fyrri um mitt ár 1916 og sú síðari í ársbyrjun 1917, ollu sömuleiðis mikilli reiði í garð Þjóðverja sem kennt var um atvikin. Í báðum tilvikum sprungu í loft upp gríðarstórir sprengiefna- farmar sem senda átti til Bretlands og Rússlands. Fyrri atburðurinn er einkum kunnur í sögunni fyrir þær sakir að sjálf Frelsisstyttan varð fyrir hnjaski í sprengingunni og upp frá því hefur gestum ekki verið hleypt upp í kyndil styttunnar. Böndin bárust þegar að þýskum útsendurum, þótt bent hafi verið á að ýmsir aðrir hópar hafi haft ástæðu til að kveikja í geymslunum til að ná sér niður á Bretum, svo sem írskir og indverskir þjóðernissinnar. Þá komst rannsóknarnefnd að þeirri niðurstöðu árið 1931 að Þjóðverjar hefðu ekki átt hlut að máli í seinni sprengingunni. Það skipti þó litlu máli, því fyrst eftir sprengingarnar velktust fáir í vafa um þátt Þjóðverja í hryðjuverkunum og hefndarþorstinn kviknaði. Þjóðverjar vildu vitaskuld mikið til vinna að halda Bandaríkjamönnum fyrir utan stríðið, en með tímanum tóku þó önnur atriði að vega þyngra í ákvarðanatökunni. Hafnbann Breta á Þjóðverja hélt að langmestu leyti öll styrjaldarárin, sem takmarkaði mjög alla möguleika þeirra til hráefnisöfl- unar, sem bitnaði bæði á stríðsrekstr- inum og almennum borgurum. Það að brjótast undan hafnbanninu og jafnframt að hindra vöruflutninga til Bretlands varð því sífellt meira for- gangsatriði, hvað sem það kostaði. Þann fyrsta febrúar 1917 ákváðu Þjóðverjar að hefja ótakmarkaðan kafbátahernað. Sú ákvörðun hlaut í raun að leiða til beinnar stríðsþátttöku Bandaríkjamanna, sem ítrekað höfðu komið þeim skilaboðum á framfæri að slíkur hernaður yrði ekki liðinn. Nið- urstaða þýska hersins var þó sú að ill- skárra væri að fá bandaríska hermenn í stríðið en að þola áfram drottnunar- stöðu Breta á höfunum. Sem fyrr segir er erfitt að ímynda sér að Bandaríkin hefðu lengi staðið utan styrjaldarinnar eftir að kafbátahern- aðurinn hófst fyrir alvöru. Örvænt- ingarfull tilraun þýsku stjórnarinnar til að stuðla að því, snerist hins vegar rækilega í höndunum á henni og gull- tryggði að Wilson tókst að fá stuðning þingsins fyrir stríðsþátttökunni. Þetta sjálfsmark Þjóðverja var í formi leyni- skeytis: Zimm ermann-skeytisins svo- kallaða. Brugguð launráð Skeytið er kennt við Arthur Zimmer- mann, þáverandi utanríkisráðherra Þýskalands og var sent nítjánda janúar 1917, fáeinum dögum áður en þýsku kafbátahersveitirnar létu til skarar skríða. Það fór eftir ritsímalínum sem einvörðungu voru ætlaðar fyrir bandarískan diplómatapóst og var stílað á þýska sendiherrann í Mexíkó- borg. Innihald þess var reyfarakennt: að kanna hvort Mexíkóstjórn – ef Bandaríkin segðu Þjóðverjum stríð á hendur – væri reiðubúin til að mynda bandalag með Þýskalandi og ráðast á Bandaríkin. Samkvæmt skeytinu var hugmyndin að fá Japani með í þetta skringilega hernaðarbandalag. Japan myndi að launum hljóta ýmis land- svæði í Asíu en Mexíkó myndi endur- heimta ríkin Texas, Arisóna og Nýju- Mexíkó. Erfitt er að túlka tillögur þessar sem annað en sambland af örvæntingu og barnaskap. Hagur Þjóðverja af hug- myndinni var augljós, þar sem Banda- ríkjaher yrði líklega of upptekinn heima fyrir að berjast við Mexíkóa til að vera aflögufær um herlið til Evrópu. Hvað Mexíkóstjórn átti að græða á plottinu var hins vegar erfiðara að sjá. Þýskaland gat engri hernaðaraðstoð lofað, heldur einungis pólitískum og fjárhagslegum stuðningi. Alls var óljóst hversu miklir borgunarmenn Þjóðverjar yrðu fyrir loforðunum, jafnvel þótt þeim tækist að vinna stríðið í Evrópu. Þá var Bandaríkjaher miklu sterkari en sá mexíkóski, svo innrás hefði verið feigðarflan. Engar líkur voru á að stjórnvöld í Mexíkó féllust á svo fjarstæðukennda ráðagerð, svo það eitt að senda skeytið mátti teljast misráðið. Verra var þó að breska leyniþjónustan fylgdist með öllu saman. Þýska stjórnin sendi leyni- skeytið áhyggjulaus eftir ritsímalínum bandarísku utanríkisþjónustunnar og á dulmáli sem talið var óleysanlegt. Í Berlín gerðu menn sér hins vegar ekki grein fyrir því að bæði hleruðu Bretar samskiptin og höfðu náð að verða sér úti um dulmálslykilinn. Í nokkrar vikur klóruðu Bretar sér í kollinum hvað gera skyldi við þessar safaríku upplýsingar. Zimmermann- skeytið var augljóst pólitískt sprengi- efni, en hvernig mátti ljóstra því upp án þess að Þjóðverjar uppgötvuðu að búið væri að ráða dulmálið og Bandaríkja- menn kæmust að njósnastarfseminni? Að lokum tókst þeim að púsla saman sæmilega trúverðugri sögu um að breskum njósnara hefði tekist að stela skjalinu í Mexíkóborg. Bandaríkjastjórn beið ekki lengi með að gera leyniskjalið opinbert og fordæma harðlega þessi svikráð Þjóð- verja, sem jöðruðu við stríðsyfirlýs- ingu. Andstæðingar þess að Bandarík- in drægjust inn í stríðið brugðust hins vegar við með því að vísa skjalinu á bug sem augljósri fölsun Breta. Hölluðust margir að því að sú væri raunin, enda áformin sem lýst var í skeytinu slík að ótrúlegt var að þýskur utanríkisráð- herra hefði látið slíkt frá sér fara. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum kaus Arthur Zimmermann hins vegar að staðfesta tilvist skeytis- ins í umræðum í þýska þinginu í byrjun mars, þegar hann var spurður út í málið. Þótt sannsögli sé vissulega dyggð, getur þessi hreinskilni ekki talist mjög skynsamleg. Með játning- unni gaf utanríkisráðherrann Banda- ríkjastjórn frábært áróðursvopn til að tryggja stuðning við að senda herlið til Evrópu. Fáeinum vikum síðar kom formlega stríðsyfirlýsingin og lok fyrri heimsstyrjaldarinnar voru í raun ráðin. Heimskulegasta skeyti allra tíma Stefán Pálsson skrif- ar um leyniskeyti sem breytti gangi heimsstyrjaldar. Saga til næsta bæjar Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is … Mexíkó Myndi endur- heiMta ríkin texaS, ariSóna og nýju-Mexíkó. 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A A -1 4 6 8 1 C A A -1 3 2 C 1 C A A -1 1 F 0 1 C A A -1 0 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.