Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 72
SVEFNSÓFAR
Glæsilegir og vandaðir
svefnsófar frá Ítalíu
Áttu von á gestum?
Suðurlandsbraut 24
554 6969 lur.is
Calia Svefnsófi Natalie Calia Horn-Svefnsófi
Calia Tungu-svefnsófiCalia Svefnstóll
VERIÐ VELKOMIN
Í HEIMSÓKN
Vigdís,“ svarar björt og glaðleg
rödd þegar hringt er í Stofnun Vig-
dísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum til þess að falast eftir
viðmælanda. Það er Vigdís Finn-
bogadóttir sjálf sem greip símann
og þó svo hún sé til í að spjalla um
heima og geima þá er hún fljót að
vísa frá sér viðtalsbeiðni og segir að
það eigi að vera Auður Hauksdóttir
sem sé upphafskona að þessu ævin-
týri, en Vigdísarstofnun verður
opnuð formlega í nýju húsi þann
20. þessa mánaðar. Það er heldur
ekki í kot vísað að spjalla við Auði
sem hefur frá upphafi leitt stofnun-
ina og hún segir að það sé ágætlega
lýsandi fyrir stofnunina og það létta
yfirbragð sem þar ríkir að frú Vigdís
grípi af og til í símsvörun. „Það sem
er svo dásamlegt við þetta verkefni
er einmitt hvað það hefur myndast
ótrúlega breið og góð samstaða um
það og hversu margir sýna okkur
velvild á ýmsan hátt. Það er algjört
æði.“
Byrjaði í Japan
Auður segir að upphaf þessa ævin-
týris megi rekja til þess að hún hafi
farið til Japans árið 2000 til þess að
heimsækja dóttur sína sem þá var
þar í námi. „Ég kom í háskóla þar
og hitti fyrir japanska fræðimenn
og það kom fyrir að þeir áttu það til
að rugla saman Íslandi og Írlandi.
Þeir leystu það yfirleitt með því
að spyrja hvort það væri landið
þaðan sem ljóshærði kvenforsetinn
kæmi?“ segir Auður og hlær við til-
hugsunina. „Mér fannst svo ótrú-
legt að vera komin hinum megin á
hnöttinn og að fólk setti þar Ísland
á heimskortið út frá þessari konu
en að við Íslendingar værum ekkert
að gera með þetta sjálf eða að sýna
ómetanlegu framlagi hennar þann
sóma sem vert væri. Þetta vakti mig
til umhugsunar og í framhaldinu fór
ég á fund Páls Skúlasonar sem þá var
rektor og ræddi hvort að Háskóli
Íslands ætti ekki að taka að sér for-
ystuna í þessu máli. Páll og allir koll-
egar mínir hér innan tungumálanna
tóku þessu strax ákaflega vel og við
fórum að ræða þetta og fljótlega
barst umræðan að hugðarefnum
Vigdísar í bland við þessi viðbrögð
í Japan.
Áhugi og virðing
Vigdís hafði komið oftar en einu
sinni til Japans og í því samhengi
áttuðum við okkur á því hvers
vegna fólk mundi svo vel eftir
henni. Hún hafði komið þangað til
þess að vera við jarðarför Hirohitos
og áttað sig á því, líklega ein fárra
þjóðarleiðtoga, að sorgarliturinn
í Japan er ljós klæðnaður sem hún
auðvitað klæddist, ein innan um
alla hina dökkklæddu. Fyrir vikið
vakti hún feykilega athygli og var
í öllum fjölmiðlum og allir þekktu
hana frá öllum hinum þjóðarleið-
togunum. Við höfðum áður áttað
okkur á því að ástæða þess að Vigdís
náði svona góðu sambandi við t.d.
Norðurlandaþjóðir að hún bjó yfir
menningarlæsi. Hún lagði sig eftir
tungumálunum, hún lagði sig eftir
menningunni og nálgaðist þá sem
hún heimsótti á þeirra forsendum.
Hún var sannkallaður heimsborg-
ari.
Á þessu eigum við Íslendingar
oft erfitt með að átta okkur. Að við
séum ekki einvörðungu að segja
öðrum hvers við erum megnug eða
hvað menning okkar sé sérstök.
Heldur einmitt að sýna öðrum
virðingu og nálgast aðra á þeirra
forsendum og af einlægum áhuga.
Getum látið gott af okkur leiða með samstöðu
Auður Hauksdóttir hefur allt frá hugmyndinni að Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumál-
um leitt starf stofnunarinnar sem verður opnuð með formlegum hætti í nýju húsi á sumardaginn fyrsta.
Auður Hauksdóttir segir að hugmyndina að Vigdísarstofnun megi rekja til ferðalags hennar til Japans um síðustu aldamót. FréttABlAðið/SteFÁn
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r
menning
1
5
-0
4
-2
0
1
7
0
2
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
9
-F
B
B
8
1
C
A
9
-F
A
7
C
1
C
A
9
-F
9
4
0
1
C
A
9
-F
8
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
1
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K