Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 84

Fréttablaðið - 15.04.2017, Page 84
Það er alltaf forvitnilegt og áhugavert að kynna sér merkilega atburði. Saga Pablos Escobar og mannanna sem áttu þátt í að binda enda á veldi hans er löng og margslungin,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannes- son leikari en hann mun stjórna umræðum í Hörpu um hættuleg- asta eiturlyfjabarón heims, konung kókaínsins, sjálfan Pablo Escobar. „DEA“-fulltrúarnir Javier Pena og Steve Murphy, mennirnir sem felldu Pablo Escobar, mæta á svæðið og ræða málið frá áhugaverðum vinklum. „Við fáum að kynnast raunveru- legu lögreglumönnunum sem áttu stóran þátt í að fella hann. Saga þeirra Javiers og Steves er grund- völlurinn að framvindu og sögu Netflix-þáttaseríunnar Narcos sem slegið hefur í gegn um allan heim,“ segir Jóhannes Haukur spenntur. Það er óhætt að segja að nánast allir eru spenntir og for- vitnir að vita meira um þetta mál. „Við sem mann- eskjur höfum alltaf áhuga á sögum um f ó l k , e k k i síst svo við getum spegl- að okkur í þeim sjálf. Að fá að kynnast manni eins og Pablo Escobar í gegnum  tutt- ugu klukkustundir af leiknu sjónvarpsefni er afskaplega magnað,“ segir Jóhannes Haukur og bætir við að þetta veki svo margar spurningar um mannlegt eðli. Geta Íslendingar tengt við mál af þessu tagi? „Hiklaust. Rétt eins og með allt sammannlegt. Eðli manns- ins er okkur ekki óviðkomandi frekar en öðrum,“ segir Jóhannes. Óhætt er að segja að Javier Pena og Steve Murphy séu algjörir sér- fræðingar  á sínum svið- um en  árið 1 9 8 4 g e k k Pena til liðs við bandarísku fíkniefnalögregl- una þar sem hann tók að sér verkefni í Bogotá, höfuðborg Kól- umbíu. Það var þá sem hann og félagi hans, Steve Murphy, ákváðu að þeir skyldu leggja Pablo Escobar og Medellín fíkniefnahringinn að velli. Í dag er hann talinn vera einn helsti sérfræðingur heims í Medell- ín-málinu. Á kvöldinu sjálfu mun Jóhannes stjórna umræðum eftir að þeir félagar hafa lokið erindi sínu. „Gestir fá þarna einstakt tækifæri til að spyrja þessa menn spjörunum úr. Það er örugglega margt sem brennur á fólki eftir áhorf á þætt- ina. Ekki síst hvað varðar muninn á raunverulegu atburðunum og því sem kemur fram í þáttunum. Því þótt þeir séu byggðir á raunverulegri atburðarás þá er það þannig í svona þáttum að það er alltaf eitthvert listrænt frelsi tekið til að mynda frásögn sem inniheldur dramatíska boga sem henta forminu,“ segir Jóhannes. Undirbúningur fyrir kvöldið er í hámarki og Jóhannes segist liggja yfir þáttunum, ásamt því að lesa sér til um söguna á bak við Pablo Escobar. „Ég hlakka orðið mikið til að hitta þessa menn, alvöru hetjur. Sjálfur hef ég fullt af spurningum handa þeim og ég er viss um að íslenskir áhorfendur hafa líka fullt af áhuga- verðum spurningum. Ég bíð spennt- ur eftir þessu kvöldi,“ segir Jóhannes að lokum. gudrunjona@frettabladid.is Eðli mannsins er engum óviðkomandi Jóhannes Haukur Jóhannesson mun stýra umræðum um hættu- legasta eiturlyfjabarón heims í Hörpu 13. maí. Javier Pena og Steve Murphy, mennirnir sem felldu Pablo Escobar, mæta á svæðið. Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson stjórnar umræðunum um Pablo Escobar. FrétabLaðið/anton Hættulegasti eiturlyfjabarón heims, Pablo Escobar. Mynd/gEtty dEa-fulltrúarnir Javier Pena og Steve Murphy, mennirnir sem felldu Pablo Escobar. Mynd/ gEtty #enski365#PL KAUPTU STAKAN LEIK: Laugardagur 15. apríl Bournemouth 11:20 Tottenham Swansea 13:50 Watford Man. City 16:20 Southampton Sunnudagur 16. apríl Arsenal 18:50 Middlesbrough Liverpool 12:20 West Brom Chelsea 15:00 Man. Utd #TOTBOU #WATSWA #SOUMCI #MIDARS #SUNMUN #MUNCHE Mánudagur 17. apríl 365.ISSÍMI 1817 Upphitun kl. 14:30 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r56 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A A -1 9 5 8 1 C A A -1 8 1 C 1 C A A -1 6 E 0 1 C A A -1 5 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.