Fréttablaðið - 15.04.2017, Side 86

Fréttablaðið - 15.04.2017, Side 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Í ár verður það garðvinna í bland við veislumáltíðir, skíði, sundferðir og almenna gleði. Við mæðgur skreytum líka páskagreinar og búum til hollara páskagóðgæti,“ segir matgæðingurinn Tobba Mar­ inósdóttir sem gefur hugmyndir að ferskri köku til prýðis í páskabröns­ inn. „Fullkominn og ferskur endir á páskabrönsinum er granateplaosta­ kaka eða jafnvel sykurlaust döðlu­ gott,“ leggur Tobba til sem er þekkt fyrir dálæti sitt á eftirréttum. Fyrr í vikunni kom út bók henn­ ar, Náttúrulega sætt þar sem hún gefur lesendum fjölda hugmynda um eftirétti í hollari kantinum. „Ég hef reynt að sameina ást mín á eftirréttum og hollu mataræði með merkilega góðum árangri. Ég ákvað fyrir nokkrum árum að takmarka sykurneyslu eftir fremsta megni og það hefur gengið vel, að mínu mati snýst það um að breyta um lífsstíl til frambúðar og venja sig á „minna sætan“ mat,“ segir Tobba. „Jafnvel eldri menn og grjótharðir viðskiptablaðamenn sem starfa með mér hafa viðurkennt að þetta „sykurlausa drasl“ sé bara helvíti gott. Ég hef alla tíð haft gaman af eldamennsku og er nánast alin upp á eldhúsbekknum hjá mömmu sem er listakokkur,“ segir Tobba. Í dag á fólk það til að innbyrða mikið magn af sykri og á þetta sér­ staklega við um páskahátíðina. Tobba bendir á að það sé ekkert verra að fá sér góða og bragðgóða eftirrétti, þar sem notað er sætu­ efni í stað sykurs. Tveggja og hálfs árs gömul dóttir Tobbu hefur alist upp á náttúrulega sætu hnossgæti og segir Tobba augljóst að matar­ smekkur hennar hafi mótast af því. „Ég hef hreinlega séð hana skila dísætri smjörkremstertu og teygja sig í hafraköku með rúsínum! Sjálf finn ég að því lengur sem ég held mig frá viðbættum sykri þeim mun meira dregur úr sykurlönguninni og mér duga náttúrulega sætir bitar til að svala sætindaþörfinni,“ segir hún. Tobba fékk,vinkonu sína, Írisi Ann Sigurðardóttur ljósmyndara og veitingahúsaeiganda, til að aðstoða sig við bókina. „Hún var látin mynda og smakka allt, svo er litla systir mín, Rebekka, vegan týpa sem grandskoðar allt sem hún setur ofan í sig svo hún var sérlegur smakkari líka,“ segir Tobba þakklát fyrir aðstoðina og þau góðu viðbrögð sem bókin hefur fengið. gudrunjona@frettabladid.is Ferskur endir á páskabröns Eflaust vilja margir reyna að sameina hollustu og sætindi um páskana. Tobba Marinósdóttir gefur góða hugmynd að dýrindis páskaköku, þar sem eingöngu er notast við náttúruleg sætuefni. Tobbu er margt til lista lagt. MyND/ÍRIS JaFnvel eldri menn og grJótharðir viðskiptablaðamenn sem starFa með mér haFa viður- kennt að þetta „sykur- lausa drasl“ sé bara helvíti gott. Botn 300 g sykurlaust granóla 80 g mjúkt smjör eða kókosolía 7 ferskar döðlur, steinhreinsaðar Setjið smjör eða olíu í matvinnslu­ vél ásamt döðlunum og maukið vel saman. Setjið því næst gran­ ólað út í og notið púlshnappinn á vélinni til að blanda saman, þá er minni hætta á að granólað verði of fínmalað. Bökuskelin/botninn má vel vera nokkuð gróf. Þrýstið svo deiginu niður í lausbotna tertumót eða 24 cm sílíkonmót og setjið í frysti á meðan fyllingin er útbúin. Granateplaostakaka. MyND/ÍRIS Hindberja- og granateplafylling 500 g rjómaostur, beint úr kæli 1 banani, vel þroskaður 1 dl hindber – látin þiðna ef frosin 5 msk. hindberja- og granatepla- sulta, sykurlaus (þessi franska í háu krukkunum – má líka nota bara sykurlausa hindberjasultu) 2 tsk. bláberja- eða aÇaiberjaduft ef vill Hrærið allt vel saman í hrærivél uns fyllingin er orðin slétt. Hellið í bökuskelina og látið stífna í kæli í að minnsta kosti 2 klst. Skreytið með ferskum berjum og granat­ eplakjörnum. granateplaostakaka TAX FREE afsláttur af öllum rúmum til páska* LÁTTU DRAUMINN RÆTAST ÞÚ FINNUR OKKUR Í HOLTAGÖRÐUM Á SMÁRATORGI AKUREYRI OG ÍSAFIRÐI Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði * Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti. Gildir ekki af stillanlegum botnum eða ofan á önnur tilboð t.d. fermingar tilboð. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátt urinn er alfarið á kostnað Dorma. Lýkur í dag laugard. 15. april Lokað í Dorma á páskadag og annan í páskum Fréttablaðið eykur þjónustu sína við lesendur á landsbyggðinni. Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið: 1 5 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r58 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð 1 5 -0 4 -2 0 1 7 0 2 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A A -0 5 9 8 1 C A A -0 4 5 C 1 C A A -0 3 2 0 1 C A A -0 1 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 1 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.