Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 17

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 17
Frettir og tilkynningar Fræðslustarf HFÍ Námskeið Fyrri hluti stjórnunarnámskeiös verður haldinn dagana 31. október til 5. nóvember 1983 aö báðum dögum meðtöldum. Seinni hlutinn verður fyrri hluta næsta árs og auglýstur síðar. Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu HFÍ. Fræðslufundir Þriöjudaginn 4. október 1983: Skipulag og stjórn hjúkrunar. Þridjudaginn 1. nóvember 1983: Heilsuvernd og heimahjúkrun. Fræðslufundirnir verða í HSÍ og hefjast kl. 20.30. Þátttökugjald er kr. 30.00 og kaffi innifalið. Fréttir frá stjórn Hjúkrunarfélags íslands A fulltrúafundi 1983 var það einróma samþykkt að fréttir frá stjórn yrðu áfram sem fastur dálkur í Hjúkrun. var gott að heyra að félagsmenn voru ánægðir með þetta fyrirkomulag og verður því haldið áfram bæði hvaö fundi í framkvæmdastjórn og félags- stjórn varða. Stjórnarfimdar 3. mars 1983 • Samþykkt að HFÍ gerist félagi í Stjórnunarfélagi Islands. Félagsgjald fyrir árið 1983 er kr. 800, einstaklings- aðild er kr. 300. Hjúkrunarfræðingar er vinna hjá ríki og borg fá afslátt á námskeið hjá félaginu í gegnum sinn vinnustað. Hjúkrunar- fræðingar er starfa hjá sjálfseignarstofn- unum og starfsfólk skrifstofu HFÍ sem ekki eru í Stjórnunarfélaginu fá afslátt á námskeiðum gegnum HFÍ. Ingibjörg Gunnarsdóttir skrifstofustjóri sótti námskeið dagana 23.-25. febrúar, efni: konur í stjórnunarstörfum. • Undirbúningur fyrir fulltrúafund s.s. atriði er snerta reglugerð við ný lög HFÍ, ársskýrslur deilda og nefnda, o.fl. mál. • Samþykkt að trúnaðarráð starfi fram að fulltrúafundi 1983. • Samþykkt að fá fund með formönn- um sérgreinadeilda þar sem ræddar yrðu hugmyndir að neyðarþjónustu HFÍ. Fræðslustjóri og formaður eru með málið. Stjórnarfundur 29. mars 1983 • Undirbúningur fyrir fulltrúafund 1983, fjárhagsáætlun 1. umræða. • Samþykkt að formaður Reykjavíkur- deildar fái þóknun sem svarar Iauna- flokki hjúkrunarframkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir 20% starfi. Stjórnarfundur 5. apríl 1983 • Áframhaldandi umræða um fjárhags- áætlun HFÍ, hún samþykkt af öllum stjórnamönnum og verður þannig lögð fyrir fulltrúafund til samþykktar. • Samþykkt að félagsgjöld hjúkrunar- fræðinga sem ekki eru í starfi verði kr. 500 fyrir árið 1983. • Farið yfir innkomnar tillögur fyrir fulltrúafund. • Samþykkt starfssvið fræðslustjóra. • Samþykkt að stjórn HFÍ hafi heimild til að greiða kr. 100 fyrir hvern setinn fund, en stjórnarfundir þar innifaldir. • Samþvkkt að Ingibjörg Árnadóttir ritstjóri verið í 100% starfi í stað 75% í 1 -2 mánuði til að vinna að verkefni sem felur í sér flokkun og röðun mynda er HFÍ á. • Samþykkt að fastagjald af síma for- manns sé greitt. Stjórnarfundur 27. apríl 1983 • Endanlegur frágangur hinna ýmsu mála sem vinna þar fyrir fulltrúafund. • Tilkynnt niðurstaða könnunar vegna tillögu um úrsögn HFÍ úr BSRB. Trún- aðarmenn á stofnunum sáu um hana. Niðurstöður: 1024 starfandi hjúkrunarfræðingar svöruðu 393 hlynntir því að vera áfram í BSRB, 331 vildu segja sig úr BSRB 300 voru óákveðnir. • Samþykkt dagskrá námskeiðs sem haldið verður fyrir félagsstjórn 6. maí 1983 daginn eftir fulltrúafund. • Samþykkt að skrifstofan verði lokuð 4. júlí til 2. ágúst 1983 vegna sumar- leyfa. • Nefnd sú sem unnið hefur að tillög- um „um hvernig gefa megi þeim sem lokið hafa hjúkrunarprófi kost á við- bótarnámi til B.S. prófs" hefur lokið störfum. HFI barst 7. apríl 1983 bréf dags. 15. mars 1983 frá menntamálaráðuneytinu þar sem umsagnar er óskað. Samþykkt að senda tillögurnar til allra sérgreinadeilda og óska umsagnar fyrir 15. júní. Menntamálanefnd HFÍ mun svo senda umsögn félagsins til mennta- málaráðuneytisins. • Tekin fyrir til bókunar fjöldi bréfa o.fl. er borist hefur. • Formaður sagði frá stjórnarfundi SSN dagana 14. og 15. apríl sl. í Kaup- mannahöfn. • Formaður fer ekki á formannaráð- stefnu ICN félaganna í Brasilíu 6,—10. júní 1983. • Samþykkt að miða allar ársskýrslur deilda og félagsins við fulltrúafund. Síðasti stjórnarfundur samkvæmt lögum HFÍ frá 3. apríl 1978. Sigþrúður Ingimundardóttir formaður. HJÚKRUN */m - 59. árgangur 15

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.