Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Blaðsíða 32

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Blaðsíða 32
gleymir samt ekki öðrum þáttum í líkams- starfseminni. Þannig er heildarhjúkrun framkvæmd með eigin athugunum og skipulagningu hjúkrunarfræðings með að- stoð hinna fjölmörgu lækningatækja gjör- gæsludeilda. Vegna þess að bráða hjálp getur alltaf þurft að veita samstundis verður gjörgæsluhjúkr- unarfræðingur einnig að vera lærður og þjálfaður í að veita lífsbjargandi meðferð þar til önnur hjálp berst. Markmið að loknu námi í gjörgœsluhjúkrun Að hjúkrunarfræðingurinn skilji og viður- kenni ábyrgð þá er á honum hvílir, samanber skilgreiningu á gjörgæsluhjúkrun. Að hjúkrunarfræðingurinn geti greint og skipulagt hjúkrunina, aðlagað hana að breyttum þörfum einstaklingsins og metið árangur meðferðar. Að hjúkrunarfræðingurinn geti veitt heild- arhjúkrun þeim sjúklingum, sem eru í gjör- gæslumeðferð. Hafi öðlast þekkingu í eftirliti með al- mennu ástandi og lífsmörkum - geti notað öll hjálpartæki á gjörgæsludeild - metið og skilið gildi mælinganna - hafið nauðsynleg- ar aðgerðir í samræmi við verksvið hjúkr- unarfræðinga hverju sinni. Hafi öðlast þekkingu í að vinna að góðum tengslum (tjáskiptum) við sjúklinginn, að- standendur hans og starfsfélaga. Hafi öðlast þekkingu í að skipuleggja störf sín og annarra innan gjörgæslusvæðis, í uppbyggingu gjörgæsludeilda - og að stuðla að ákveðnum gæðastaðli innan hjúkrunar. Að hjúkrunarfræðingurinn skilji mikilvægi þess að viðhalda þekkingu sinni í hjúkrun- ar- og gjörgæslumeðferð og geti miðlað þekkingu sinni til sjúklinga, aðstandenda þeirra og samstarfsfólks. Varðandi nám í gjörgæslu Deildin telur mjög brýnt að nemendur hafi 6 til 12 mánaða starfsreynslu á gjörgæslu- deild áður en nám hefst. Að svokallað kjarnanám verði ekki hluti af sérnáminu heldur verði nemendum gert skylt að uppfylla vissar kröfur, t. d. Iág- markskunnáttu í efnafræði og lífeðlisfræði. Námsskrá ber að endurmeta milli árganga, vegna síbreytileika í sérgreininni - deildin fái námsskrá til umfjöllunar. Deildin telur óviðunandi að öll kennsla og undirbúningur í sérgreininni sé kennd í aukavinnu af hjúkrunarfræðingum í fullu starfi. Þess vegna sé mjög brýnt að fá gjör- gæsluhjúkrunarfræðing ráðinn við Nýja hjúkrunarskólann, samanber geðhjúkrunar- nám. Fundi var slitið með kvöldverði á veitinga- húsinu Torfunni. Nú stunda 4 hjúkrunar- fræðingar nám í gjörgæslu og Ijúka námi 26 HJÚKRUN a/«a - 59. árgangur haustið 1983. 20 hjúkrunarfræðingar hafa hlotið sérleyfi í gjörgæslu, en um áramótin 1982-1983 störfuðu 10 við gjörgæslu- hjúkrun. Anna Stefánsdóttir Deild hjúkrunarforstjóra Aðalfundur Deildar hjúkrunarforstjóra innan HFÍ var haldinn að Hótel Varðborg, Akureyri, dagana 23., 24., 25. og 26. sept. 1982. Var þetta 24. fundur deildarinnar. Vorfundi, sem áætlað hafði verið að halda í júní s. á., var aflýst vegna yfirstandandi vinnustöðvunar hjá hjúkrunarfræðingum. Stjórnarfundir á árinu voru 11. 32 félagar mættu fyrsta daginn, en félagar eru alls 56. Aðalfundarstörf voru afgreidd. Bergljót Líndal var kosin fundarstjóri og Bjarney Tryggvadóttir ritari. Bjarney Tryggvadóttir sagði í stuttu máli frá nám- stefnu í hjúkrunarstjórnun, sem haldin var í Chicago dagana 21.-23. ágúst sl. Var þessi námstefna haldin á vegum Nursing Resour- ces í tengslum við The Journal of Nursing Administration. Voru fjórir hjúkrunarfor- stjórar sem þátt tóku í þessari námstefnu. Fjallað var um: • Framtíðaráætlun og hvernig mætti byggja þetta upp árlega, fimm ár fram í tímann. Dr. Friedlich frá Pittsburgh University. • Fjárhagsáætlun fyrir hjúkrunarþjónustu. Rætt um ábyrgð hjúkrunarfræðinga í þátttöku um fjárhagsáætlun. • Rætt um faglega hjúkrun (Professional Nursing) og umhverfi, aðstöðu. Tvö seinni erindin flutti Rachel Ratkovitch frá Yale University Hospital. Var þetta hvað öðru fróðlegra og efnið tengdist mikið efni sem tekið var fyrir sem vísir að námstefnu á hjúkrunarforstjóra- fundinum. Gæðamat, „Gildismat". 24. sept. var fundur settur kl. 9 og hófst með erindi Sigurlínar Gunnarsdóttur. Erindi Sigurlínar Gunnarsdóttur var um nám í stjórnun. Hún minntist þe^ að á næsta ári eða 24.5. ’83, eru liðin 15 ár síðan Deild hjúkrunar- forstjóra innan HFÍ var stofnuð. Hún minntist þriggja merkra áfanga sem náðst hefðu í menntunarmálum á sl. árum. Stofn- un Nýja hjúkrunarskólans í október 1982. Stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræðum við HÍ 1973. Námstefnan sem haldin var á vegum HFÍ í tilefni af 60 ára afmælis fél- agsins ’79 og þar var samþykkt að miða að því að allt hjúkrunarnám yrði komið á há- skólastig 1985. -Viðraði hún síðan hug- myndir sínar um uppbyggingu stjórnunar- náms. Sigþrúður Ingimundardóttir formaður HFÍ sagði frá könnunum sem eru í gangi á veg- um HFÍ; hvers vegna hjúkrunarfræðinga- skortur er svo mikill sem raun ber vitni. Fyrirspurnir komu um fleiri rannsóknir sem eru í gangi og meiningin var að skýra frá, en Guðrún Marteinsson kom með kveðju frá Ingibjörgu R. Magnúsdóttur en hún hafði ætlað að segja frá könnun sem nemendur í námsbraut hafa gert en því miður veiktist Ingibjörg svo það verður að bíða næsta fundar. Upplýsingar og umræður um síðustu kjara- samninga sjúkraliða. Sigríður Þorvalds- dóttir hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðv- arinnar í Árbæ og formaður skólanefndar sjúkraliðaskólans dreifði þeirri bókun sem var gerð í kjölfar sérkjarasamninga sjúkra- liða vorið '82. Tóku margir til máls. Pálína Sigurjónsdóttir kom með athugasemdir varðandi þetta sérnám sjúkraliða. Regin- munur væri á framhaldsnámi eða að þjálfa fólk til að gera það hæfara í starfi. Alda Halldórsdóttir benti á að við yrðum að nota tímann og vinna með einhverju móti að fá hjúkrunarfræðinga til starfa. Við verðum að fá svör menntamálaráðuneytis um stefnuna í menntunarmálum. Hádegisverður í boði bæjarstjórnar Akur- eyrar að Hótel K.E.A. kl. 12. Eftir góðan hádegisverð var svo haldið áfram með dag- skrána. Þessi dagskrárliður bar yfirskriftina Gæða- mat itjúkrunar. Framsöguerindi flutti Guð- rún Marteinsson hjúkrunarforstjóri, Landakoti, og undirbjó hópvinnu. Starfslýsingar, framsöguerindi, Elísabet Ingólfsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri Borgarspítala. Val starfsfólks, framsöguerindi, Helga Sig- urðardóttir hjúkrunarforstjóri, Egilsstöð- um. Mat á hjúkrun, framsöguerindi Bjarney Tryggvadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, Vífilsstaðaspítala. Kl. 17 var svo farið í skoðunarferð að Kristnesi og notið veitinga þar. Var sú ferð þátttakendum mikil ánægja. Tekið var fyrir frumvarp til laga um heil- brigðisþjónustu, en á undan því sagði Steinunn Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri frá starfi kjaramálanefndar deildarinnar, eins var kjaramálanefndin beðin um að starfa áfram. Síðan var frumvarpið tekið fyrir. Gunn- hildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, sagði frá ályktun nefndar sem kosin var af stjórn deildarinnar til að fara yfir frumvarpið. Voru miklar umræður um frumvarpið. Ragnheiður Árnadóttir, hjúkrunarforstjóri FSA. sagði frá störfum nefndar sem kosin var til að semja erindisbréf fyrir hjúkrun- arforstjóra, á sjúkrahúsum og beið erindis- bréfið samþykktar vegna nýrrar laga- smíðar.

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.