Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Blaðsíða 35

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Blaðsíða 35
HFÍ um sérgreinadeildir. en tillaga laga- nefndar var aö kveöa á um sérgreinadeildir í reglugerö meö lögunum. En rétt er, að engin nýmæli mega vera í reglugerðum ef þau finnast ekki í lögum, reglugeröir eru til þess að kveða nánar á um framkvæmd laga. Til næsta fulltrúafundar verður nú boðað skv. nýjum lögum. Eru því formenn sér- greinadeilda ekki lengur sjálfkjörnir á full- trúafund eins og áður var. Heldur geta þeir ef þeir óska gefið kost á sér sem fulltrúar svæðisdeildar. Á aðalfundi Reykjavíkur- deildar HFÍ í des. '82 var m. a. formaður Kennaradeildar kjörinn fulltrúi Reykjavík- urdeildar á fulltrúafund HFÍ 4.-5. maí nk. Tillögur og málefni er óskast tekin fyrir á fulltrúafundi skulu nú sendast Reykjavík- urdeild, er síðan sendir félagsstjórn til um- fjöllunar fyrir febrúarlok '83. Það er álit okkar í stjórninni að þessi til- högun eigi eftir að styrkja deildina okkar. þar sem nú mun gefast meiri tími fyrir innra starf deildarinnar. Viss hætta er á að sér- greinadeildir einangrist haldi þær ekki uppi Hrku samstarfi við svæðisdeild og félags- stjórn. Að lokum þakkar stjórn félögum deildar- ■nnar samstarfið á liðnu starfsári og þá sér- staklega undirbúningsnefnd námsstefn- unnar sl. vor. A þessu ári, 16. apríl, er Kennaradeildin 10 úra. Er af því tilefni við hæfi að félagar allir sem einn komi saman, geri sér glaðan dag, Um Ieið og þeir rifja upp atburði liðinna ára °g glöggvi sig á helstu framtíðaráætlunum. Alda Halldórsdóltir Deild heilsugæsluhjúkrunar- ífæðinga Aðalfundur deildarinnar var haldinn 25. janúar 1982. Auk aðalfundar voru haldnir 2 fundir á árinu og 5 stjórnarfundir. hlr stjórn deildarinnar gengu Edda Árna- hóttir, formaður, og Helga Daníelsdóttir, fitari. í þeirra stað voru kosnar Hanna Klaría Kristjánsdóttir og Ástríður Karls- dóttir Tynes. Núverandi stjórn er því þann- ‘g skipuð: Astríður Karlsdóttir Tynes formaður, Aðalbjörg Árnadóttir ritari. Hanna Kolbrún Jónsdóttir gjaldkeri, Hanna María Kristjánsdóttir meðstjórn- andi. A aðalfundi deildarinnar, sem haldinn var í Heilsugæslustöð Kópavogs, var samþykkt að breyta nafni deildarinnar úr deild heilsuverndarhjúkrunarfræðinga í deild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. Nefndin sem upphaflega var tilnefnd á fulltrúafundi HFÍ 1979 0g hefur síðan starfað m. a. að endurskoðun á lögum um heilbrigðisþjón- ustu (kaflanum um heilsugæslu). hefur haldið áfram störfum. Þær breytingar hafa orðið í nefndinni, að Aðalbjörg Árnadóttir og Elín Eggerz Stefánsson hafa hætt störf- um í nefndinni, en Ástríður Karlsdóttir Tynes kom í nefndina. Nefndin lauk endur- skoðun og gekk frá tillögum til breytinga á frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 57/1978 um heilbrigðisþjónustu með síðari breytingum. Á aðalfundum var kosin nefnd til að sjá um ráðstefnu eða fræðslu á vegum deildarinn- ar. í þessa nefnd voru kosnar Pálína Sigur- jónsdóttir formaður, Bergljót Líndal, Gróa Sigfúsdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir og Edda Árnadóttir. Það sýndi sig að þarna voru valdar dugmiklar konur, sem unnu mjög vel og árangurinn af þeirra starfi var ráðstefnan „Síðasti áfanginn, gerum hann bestan", sem haldin var á Hótel Loftleið- um, laugardaginn 23. október 1982. Mark- mið ráðstefnunnar var: Að vekja almenn- ing til umhugsunar um hvernig mætti und- irbúa ellina. Til ráðstefnunnar var boðið öllum starfandi hjúkrunarfræðingum á heilsugæslustöðvum og fulltrúum hinna ýmsu stéttarfélaga í landinu, svo og fulltrú- um frá stofnunum fyrir aldraða, borgar- stjóra og heilbrigðisráðherra. Ráðstefnuna sóttu um 200 manns og þótti hún takast mjög vel. Einnig starfaði nefnd á vegum deildarinnar sem hafði það verkefni að yfirfara og meta námsskrá í félagshjúkrun við Nýja hjúkr- unarskólann 1980-81. í nefndinni sátu Aldís Friðriksdóttir, Unnur Gígja Bald- vinsdóttir, Laufey Aðalsteinsdóttir og María Heiðdal. Nefndin vann vel og skilaði áliti í apríl sl. Þær Edda Árnadóttir, Hanna María Krist- jánsdóttir og María Heiðdal, heilsugæslu- hjúkrunarfræðingar, voru fengnar til að gefa umsögn og ábendingar um eftirlit og mataræði ungbarna sem landlæknisem- bættið sendi hjúkrunarfélaginu til umfjöll- unar. í deildinni eru nú 50 félagar. Astríður Karlsdóttir Tynes Geðhjúkrunardeild Haldnir voru 4 fundir á árinu auk fundar með Reykjavíkurdeildinni, þar sem geð- hjúkrun var kynnt. Ýmis fróðleg erindi voru á fundunum, t. d. hélt Magnús Ólafsson, B. Sc„ hjúkrunar- fræðingur, erindi um „Burn out“ eða starfsþreytu og urðu fjörugar umræður á eftir. Hólmfríður Geirdal sagði frá ráð- stefnu er hún sótti á vegum Kennaradeildar HFÍ; einnig var sýnd kvikmyndin Engla- ryk. Nefnd sú er kosin var á vegum deildarinnar til að yfirfara drög að lögum um geðheil- brigðismál, lauk störfum í október 1982 og sendi þá tillögur sínar til nefndar er skipuð var af heilbrigðismálaráðherra til að endur- skoða viðkomandi drög að lögum. Jóna Magnúsdóttir er fulltrúi okkar í nefnd er skipuð var á vegum Menningar- og frið- arsamtaka íslenskra kvenna. Ætlun nefnd- arinnar er að fjalla um stríðsleikföng, nefndin er enn að störfum. Einum hjúkrunarfræðingi var veitt sérfræð- ingsleyfi í geðhjúkrun á árinu, það er Kristín Þorsteinsdóttir. í deildinni eru nú 48 félagar. Úr stjórn gekk María Gísladóttir formaður. Núverandi stjórn skipa: Helga María Ástvaldsdóttir formaður, Björk Guðjónsdóttir varaform., Jóna Magnúsdóttir gjaldkeri, Guðlaug Guð- mundsdóttir ritari. María Gísiadóltir Félag skurðhjúkrunarfræðinga Tveir fundir haldnir á árinu. Aðalfundur þann 21. janúar 1982 í Landspítalanum. Tók þá við ný stjórn, þannig skipuð: Halldóra Jónsdóttir formaður, Kristín Úlfljótsdóttir ritari, Sigrún Sigurgeirsdóttir gjaldkeri, Unnur Guðmundsdóttir varamaður. Alls voru mættir 18 félagar á þann fund. Félagsfundur haldinn þann 26. febrúar 1982 í Landspítalanum, mættu þar aðeins 2 félagar. Núverandi stjórn er þannig skipuð: Kristín Úlfljótsdóttir formaður, Sigríður Skúladóttir ritari, Sjöfn Eyfjörð gjaldkeri, Guðrún Aradóttir varamaður. í sjóði eru alls um kr. 2200. Deild sérfræðinga í hjúkrun á handlækninga- og lyflækningadeildum Á árinu hafa verið haldnir 4 félagsfundir og 5 stjórnarfundir. Á félagsfundum hafa verið rædd ýmis mál- efni: 1. Tengsl okkar við Nýja hjúkrunarskól- ann og beiðni skólans um aðstoð vegna kennaraskorts. 2. Rætt um ráðstefnu sem haldin var í Danmörku og fjallaði um „Krabbamein í brjósti" (Bryndís Konráðsdóttir). 3. Fyrirlestur um öndunar- og hjartahljóð (Hulda G. Sigurðard.). 4. Umönnun deyjandi sjúklinga (Sigur- björg Ólafsdóttir). 5. Málþroski barna (Svanhildur Svavars- dóttir). HJÚKRUN */■> - 59. árgangur 29

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.