Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Blaðsíða 21
Kjörstjórn viö talningu atkvæöa, miövikudaginn 15. júni 1983, á skrifstofu Hjúkrunarfélags islands. Frá vinstri: Steinunn Einarsdóttir
hjúkrunarfræöingur, Anna S. Stefánsdóttirhjúkrunarfræöingur, Ólafur Guömundsson yfiriögregiuþjónn, Sigríöur Skúladóttir hjúkr-
unarfræöingur. Ljósm.: Ingibjörg Árnadóttir.
Úrsögn HFÍ úrBSRBfelld
í allsherjaratkvæðagreiðslu
Allsherjaratkvæðagreiðsla um úrsögn Hjúkrunarfé-
lags íslands úr Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
fór fram dagana 8. og 9. júní 1983. Atkvæði voru talin
á skrifstofu félagsins 15. júní sl.
Á kjörskrá voru 1348, það er starfandi hjúkrunarfræð-
ingar í 33% starfi eða meira miðað við kjördag. Var
þetta samkvæmt lögum BSRB.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau að 54,8% vildu
áframhaldandi aðild að BSRB, en 44,1% vildu að
Hjúkrunarfélag íslands segði sig úr bandalaginu. At-
kvæði greiddu 810, eða 60%. Með úrsögn voru 358
en 444 á móti. Auðir seðlar og ógildir voru 9.
Á fulltrúafundi 1981 var samþykkt að kjósa 5 manna
nefnd til að kanna möguleika á úrsögn HFÍ úr BSRB.
Hefur þetta mál verið til umfjöllunar í félaginu síðan,
en á fulltrúafundi í vor var ákveðið aö hafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um það meðal starfandi félags-
manna.
Hjúkrunarfélag íslands verður því áfram í Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja.
Kvennabrekka - vetrarleiga
Sumarhús HFÍ, Kvennabrekka í Mosfellssveit verður
til leigu frá 1. október 1983 til 1. maí 1984. Upplýs-
ingar á skrifstofu HFÍ, sími 21177 og 15316.
Ógreidd félagsgjöld frá árinu 1982
[ nóvember 1982 voru sendir út gíróreikningar fyrir
félagsgjöldum hjúkrunarfræðinga erlendis og þeirra
sem ekki voru starfandi.
Um áramót voru enn útistandandi kr. 110.850.00.
í lok apríl kemur í Ijós að enn eiga 170 félagar eftir að
gera skil á félagsgjöldum sínum frá fyrra ári.
Eru þeir vinsamlegast beðnir að senda greiðsluna
sem fyrst, til skrifstofu félagsins, eða á póstgíróreikn-
ing nr. 21170-2.
Lágmarksfélagsgjald fyrir árið 1982 var kr. 500.00 og
hækkaði í kr. 550.00 1. janúar 1983.
Fyrirlestrar og hópniðurstöður
frá ráðstefnu Reykjavíkurdeildar
Gefinn hefur verið út fjölritaður bæklingur með efni
frá ráðstefnu deildarinnar í mars sl. um fag og félags-
lega stöðu hjúkrunarfræðinga í HFÍ.
Bæklingurinn fæst á skrifstofu félagsins og hjá for-
manni deildarinnar.
Verð kr. 80.00
Stjórn Reykjavíkurdeildar HFÍ