Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.06.1983, Page 24
Sumardvöl - 33% afsláttur
fyrir ellilífeyrisþega
Laugar í Dölum:
Á tímabilinu 11 -25. ágúst n. k. verður gefinn 33%
afsláttur af húsnæðiskostnaði, ef dvalið er 3 nætur
eða lengur.
Á tímabilinu 1. júlí - 11. ágúst verður veittur 25%
afsláttur af húsnæðiskostnaði.
Fæði verður selt allan tímánn með 10% lægra verði •
en sumarverð hjá öðrum dvalarstöðum.
Hallormsstadur:
Vikurnar 7.-13. júlí og 15.-21. júlí, 20 til 24 manns.
Varmaland í Borgarfirói:
Vikurnar 15.-21. ágúst og 22.-28. ágúst.
Viðmiðun fæðispeninga ríkisstarfsmanna eins og
þeir verða þá.
Hvolsvöllur (Edduhótel):
Vikurnar 18.-24. ágúst og 25.-31. ágúst.
Reykholt:
Af og til 10.-30. ágúst.
Dvalarstaöir í sveitum:
1. Bær í Reykhólasveit, 8 km frá Króksfjarðarnesi.
Húsnæði fyrir allt að 40 manns. Tvö íbúðarhús.
Eldunaraðstaða fyrir hendi. Fæðissala ekki
möguleg nema fyrir fáa. Húsráðandi Elsa Engil-
bertsdóttir. Beint símasamband.
2. Refsstaðir Hálsasveit. Jenný. Sími um Borgar-
nes.
3. Leirubakki, Landssveit. Guðrún Jónsdóttir. Beint
samband í síma.
Samband ellilífeyrisþega
Kvennaathvarf
í nýútkomnu fréttablaði (maí sl.) frá Kvennaathvarfi
kemur fram að 63 konur og 70 börn hafa dvalið í
athvarfinu. Um 200 konur hafa leitað þangað sím-
leiðis. Nokkur aukning hefur orðið á bæði komum og
hringingum. Gerð var könnun á því, í hve miklu mæli
áfengi kæmi við sögu, þegar konur sem til athvarfs-
ins hafa leitað, hafa verið beittar ofbeldi og var
niðurstaðan sú að í 47% tilfella var ekkert áfengi/
vímugjafi með í spilinu. í 30% tilfella var um áfengis-
vandamál að ræða hjá maka, 12% af mökum slóu
þegar þeir voru undir áhrifum, í 9% tilfella voru bæði
drukkin og í 2% tilfella var konan undir áhrifum, ekki
maðurinn.
Sími samtakanna er 21204.
Neyðarsími 21205.
Pósthólf405.121 Reykjavík.
Námsstyrkur 3-M
Nursing Fellowship
Hér með er auglýstur til umsóknar ,,3-M Nursing
Fellowship", námsstyrkur, er alþjóðasamtök hjúkrun-
arfræðinga, ICN, úthluta árlega, en styrkirnir eru veittir
af fyrirtækinu Minnesota Mining and Manufacturing
Company, Bandaríkjunum.
Hér er um 3 styrki að ræða, hvern að upphæð US $
7.500.00. Hvert aðildarfélag ICN hefurrétttil að senda
eina umsókn. Upplýsingarog umsóknareyðublöð fást
á skrifstofu HFÍ. Umsóknir berist stjórn HFÍ fyrir 1.
september 1983.
Bandaríska fyrirtækið Minnesota Mining and Manu-
facturing hefur frá árinu 1969 veitt árlega tvo 6000
dollara styrki til hjúkrunarfræðinga til framhalds-
menntunar, en ICN úthlutar styrkjunum. Frá árinu
1982 eru styrkirnir þrír og upphæð hvers styrks 7.500
dollarar.
Á árinu 1982 bárust ICN umsóknirfrá 50 aðildarfélög-
um. Þeir hjúkrunarfræðingar sem fengu úthlutað
styrkjum voru frá Kóreu, Botswana og Singapore.
Engin umsókn fór frá HFÍ sl. ár.
Breyting á reglugerð um
veikindaforföll
Með aðalkjarasamningi BSRB og fjármálaráðherra,
3. september 1982, fylgdi yfirlýsing um veikindarétt
starfsmanna vegna veikinda barna, sem er svohljóð-
andi:
8. gr.
Heimilt er öðru foreldra að ráðstafa allt að einni viku
árlega af áunnum rétti sínum til fjarvista vegna veik-
inda til að vera frá vinnu vegna veikinda barna sinna
undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki
við komið. í þessum veikindaforföllum greiðast
starfsmanni dagvinnulaun og vaktaálag samkvæmt
reglubundinni varðskrá.
Þessi grein hefur verið felld inn í Reglugerð um veik-
indaforföll starfsmanna ríkisins, og er reglugerðin birt
í heild í Stjórnartíðindum 10. febrúar 1983 og er nr.
86.
Félagsgjöld 1983
Á stjórnarfundi í HFÍ 5. apríl 1983 var samþykkt að
lágmarksfélagsgjald hjúkrunarfræðinga væri óbreytt
frá fyrra ári, kr. 500.00. Þ. e. fyrir hjúkrunarfræðinga,
sem ekki eru starfandi, eða búsettir erlendis.
Félagsgjöld hjúkrunarnema kr. 300.00.
Áskriftargjald f. Hjúkrun kr. 300.00 fyrir árið 1983.
\P