Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Síða 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Síða 12
RITRÝND GREIN Hugmyndafræöilegar stefnur í hjúkrun „Hjúkrun og bróðurleg umhyggja á tækniöld" Hugmyndafræðilegar stefnur í hjúkrun Kristín Björnsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Islands Útdráttur___ í þessari grein er leitast við að varpa Ijósi á það hvernig hugmyndafræði hjúkrunarstarfsins á Vesturlöndum hefur breyst og mótast af ólíkum atburðum og hugmyndum allt frá því á nítjándu öld. Jafnframt er lýst áhrifum alþjóð- legra hreyfinga og stefna á hjúkrun á íslandi. Um miðja nítjándu öldina sköpuðust forsendur þess að hjúkrun gæti orðið virðingarverð starfsgrein fyrir konur af miðstétt og efri stétt. Þrátt fyrir að formleg tengsl hjúkrunar og trú- arhreyfinga hafi veriö rofin á þessum tíma varð hjúkrunarstarfið fyrir sterkum áhrifum af trúarlegum skilningi sem fólst m.a. í því aö aðstoða þá sem minna máttu sín í samfélaginu. Að fyrirmynd hjúkrunarsystra voru hjúkrunar- starfinu settar ýmsar skorður, t.d. um framgöngumáta hjúkrunarnema og -kvenna. Ahersla var lögð á dyggðir eins og hlédrægni, lítillæti og hlýðni. Er leið á tuttugustu öldina breyttust starfsskilyrði í hjúkrun og hafði það tölu- verð áhrif á inntak og áherslur í starfinu. Farið var að beita nýjum aðferðum, fengnum úr iðnaði, við stjórnun sjúkrahúsa og með uppgötvun nýrra lyfja urðu verulegar breytingar á hjúkrunarstarfinu. Margar hefðbundnar starfsaðferðir urðu úreltar og þörf var endurskoðunar á skilningi á inntaki starfsins. Upphaf heildrænnar hjúkrun- ar er rakið til þessara atburða. Heildræn hjúkrun varð jafnframt svar hjúkrunarfræðinnar við þeirri ofuráherslu á hlutlægni í anda raunhyggjunnar sem einkenndi vestræn samfélög síðari hluta tuttugustu aldar. Hugmyndin um heildræna hjúkrun leiddi til umfangsmikilla fræðilegra skrifa innan hjúkrunar. Lögð var rík áhersla á að í störfum sinum tækju hjúkrunarfræðingar mið af reynslu sjúklinga og þeirri merkingu sem þeir leggja í aðstæður sínar. Hjúkrunarstarfið er í æ ríkari mæli skilgreint sem samskiptastarf og viöfangsefnum hjúkrunar lýst með hliðsjón af sálfélagslegum þáttum. í greininni eru þessar breytingar á hugmyndafræðilegum áherslum í hjúkrun ræddar, með- al annars með hliðsjón af þeim breytingum sem sjá má á hugmyndafræði hjúkrunar á Islandi. Lykilorð: hugmyndafræði hjúkrunar, saga fagvæðingar, heildræn hjúkrun, siöfræði, samskipti. Abstract____ This paper outlines the many different ways in which different social changes and new ideas from the mid-19th century have shaped the philosophical understanding of nursing practice . The influence of international develop- ment on lcelandic nursing in the 20th century is described. A number of changes occurring in the first part of the 19th century opened the way for nursing to become a respectable profession for women. Even though formal ties between the nursing profession and religious groups were cut at the time, religious ideals, such as helping the poor and vulnerable in society, still strongly influenced nursing practice. In line with the practices and traditions of their religious sisters, nurses had to abide many restrictions. Much emphasis was placed upon traditional virtues, such as quietness, modesty and obedience. As the 20th century progressed, the work environment of nurses and the content of their work changed. New methods, originally designed for industry, were adopted in the administration of hospitals, and with the introduction of new drugs, the content of nursing care changed considerably. Many prac- tices became obsolete, and there seemed to be much need to re-define nursing practice. The emergence of holis- tic nursing has been traced to these changes. Holistic nursing became nurses' reaction to the technical rationality that seemed to infiltrate Western societies during the latter part of the 20th century. The philosophy of holistic nursing was discussed widely in the nursing literature. Much emphasis was placed on the nurse-patient relation- ship as central to holistic practice, and psychosocial aspects of well-being were stressed. These changes in the philosophical underpinnings of nursing practice are discussed in the paper with special reference to changes in the philosophical understanding of nursing in lceland. Key words: Philosophy of nursing, history of professionalisation, holistic nursing, nurse-patient relationship. Kristín Björnsdóttir, dósent hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands, Eirbergi, Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík. Fax: 525-4963. Tölvupóstfang: kristbj@hi.is Tlmarit islenskra hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 79. árg. 2003 Ábyrgöarmaður:

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.