Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Blaðsíða 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2003, Blaðsíða 24
Hún segir heilmikið hafa verið unnist undanfarin ár í mennt-; unarmálum og margt jákvætt gerst í þeim efnum. Hjúkrunar-: fræðingum gefst nú kostur á að fara í meistaranám bæði við Háskóla Islands og svo fjarnám við Háskólann á Akureyri.í Hjúkrunarfræðingar séu einnig farnir að sækja um meistara-; nám við aðrar deildir, bæði í viðskipta- og hagfræðideild og íj læknadeiid, þannig að nú eru heilmiklir möguleikar varðandii framhaldsnám og mikill áhugi meðal hjúkrunarfræðinga. Þá| sé farið af stað svokallað diplómanám en unnið hafi verið að: uppbyggingu þess í góðu samstarfi við hjúkrunarfræðinga. j Uppbygging framhaldsnámsins sé þó að mestu mótuð af há- skóiunum en félagið styðji við framhaidsnám hjúkrunarfræð-: inga með styrkveitingum úr vísindasjóði. I Ierdís segir í viðtali, sem birtist í 3. tbl. tímaritsins 1999, skömmu eftir að hún tók við starfi formanns, að hún hafi á- huga á að bæta ímynd hjúkrunarfræðinga og nú hefur veriðj gert átak í þeim efnum sem skilaði sér m.a. í mun betri að- sókn að hjúkrunarfræðideildinni en verið hefur undanfarin ár. Þessu átaki segir hún hafa verið beint fyrst og fremst að ungu í fólki sem er að velja sér háskólanám en einnig að almenningi. j „Ef við viljum breyta ímyndinni þurfa viðhorf að breytast íj samfélaginu og ekki síst hjá okkur sjálfum. Við viidum byggjaj upp stolt hjúkrunarfræðinga á starfi sínu og ég held að hjúkr- unarfræðingar séu mjög ánægðir með átakið.” Hún segir starfsvettvang hjúkrunarfræðinga mjög breiðan og að starfsmöguleikar séu fjarri því að takmarkast við sjúkrahús og heilsugæslu iíkt og áður var. Þeim fjölgi stöðugt sem vinni við ráðgjafarstörf, sjálfstæða meðferð og fleira. Allt sé þettai mjög ánægjuleg þróun. Félagið hafi lagt sitt af mörkum til að efla sjálfstæði hjúkrunarfræðinga, m.a. með því að bjóða fé- lagsmönnum vorið 2001 í samstarfi við Háskólann í Reykjavík upp á námskeiðið Ný atvinnutækifæri í heilbrigðisþjónustul sem fjallaði um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu. Aðspurð um hvort henni finnist hjúkrunarfræðingar hafaj nægileg áhrif innan heilbrigðiskerfisins sem fjölmennasta! heilbrigðisstéttin segir hún að alltaf megi bæta þau áhrif. Þeir hafi hins vegar sterk formleg áhrif og völd innan heii- brigðiskerfisins og hér á landi sé ekki gengið fram hjá hjúkrunarfræðingum við ákvörðunartöku. „Það er bæði tryggtj í lögunum og öll uppbygging heilbrigðiskerfisins er þannig aðj tvær meginstoðir eru í skipulaginu, annars vegar stoð lækn- inga og hins vegar stoð hjúkrunar. Við stöndum þar með fremstu þjóðum í heiminum enda er heilbrigðisþjónustan hér mjög góð.” Hún bætir við að gott sé að sem flestir sem hafa þekkingu á heilbrigðismálum taki þátt í ákvörðunum og það j hljóti að vera sjúklingi til hagsbóta að sjónarmið sem flestraj komi fram. Undanfarið ár hefur Herdís tekið virkan þátt í erlendu samstarfi og hún er spurð hvernig hjúkr- j un á Islandi sé í samanburði við hjúkrun í öðrum j löndum. Hún segir það skoðun sína að setja eigi erlent samstarf í forgang varðandi verkefni formanns.i Síðastliðið ár hafi hun verið að átta sig á að Is- j lendingar eigi að beita sér mun meira á þeim vettvangi. „Við leggjum til á fulltrúaþinginu í vor að þetta verði eitt af stóru verkefnum stjórnar í framtíðinni, að sinna alþjóðamálum og gera það vel. Við höfum svo mikið að segja vegna þess hve langt við höfum náð miðað við aðrar þjóðir. Það sést alveg í alþjóðastarfinu hvar við stöndum og; þær þjóðir, sem eru komnar lengra, eiga að styðja við þær sem eru styttra á veg komnar. Það er ljóst að það kemur okkur til góða þegar fram íj sækir því alþjóðalög og reglur um hjúkrunar- fræðinga og heimildir þeirra til að starfa fara eft- ir því hvernig ástandið er í flestum löndum.: Staðallinn er ekki endilega settur miðað við það: land sem best er sett. Við höfum því ávallt hags- muna að gæta.” Herdís segir að hún eigi margar góðar minningar úr starfi sínu. Ein þeirra er áttatíu ára afmæli félagsins sem fagnað var á Kjarvalsstöðum í nóv- ember 1999. Kjarvalsstaðir reyndust ekki heppi- legur staður fyrir fagnaðinn því hjúkrunarfræð- j ingar fjölmenntu langt umfram það sem við var búist og urðu allar hreyfingar frekar erfiðar sök- um þrengsla. „Allir voru þó í hátíðaskapi og fyr- j ir mér var það ómetanlegt að finna þarna í fyrsta sinn þann kraft og þá samstöðu sem ríkir meðal hjúkrunarfræðinga. Önnur minning er af fjöl-j mennum fundi í Rúgbrauðsgerðinni þar sem kynntur var kjarasamingur sá sem undirritaður j var í júní 2000 og síðar felldur. Mér var nokkuðj Ijóst að hjúkrunarfræðingar vildu meira en fékkst með samningnum enda höfðu þeir farið íj verkfall til að krefjast meira. Hins vegar þokað- ist ekkert áleiðis í júní og flestöll önnur félög innan BHM höfðu skrifað undir sína samninga. Eg mat stöðuna þannig þá að ekkert myndi ger- ast í samningamálum yfir sumarið og um haust- ið gætum við í fyrsta lagi undihúið frekari að- gerðir. Tíminn myndi líða án nokkurra launa- hækkana og til að dráttur á undirskrift borgaði sig yrði launahækkunin að vera talsverð. Eg dró í efa að það góðir samningar næðust á endanum Tímarit íslenskra hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.