Fréttablaðið - 21.04.2017, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —9 3 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 1 . a p r Í l 2 0 1 7
FrÍtt
Er kominn
tími á ný
dekk?
Pantaðu
tíma fyrir
dekkjaskiptin
á N1.is
uMhverFisMál United Silicon mun
í dag ákveða hvort lögð verða fram
andmæli við ákvörðun Umhverfis-
stofnunar um að loka kísilveri Uni-
ted Silicon í Helguvík. Þetta staðfesti
United Silicon við fréttastofu í gær.
Tilkynnt var á miðvikudaginn
um stöðvun á starfsemi verksmiðj-
unnar um óákveðinn tíma frá og
með deginum í dag. Það er að segja
ef Umhverfisstofnun fær ekki and-
mæli frá United Silicon sem metin
eru gild. – shá / sjá síðu 6
Skellt í lás í dag
skoðun Silja Dögg Gunnars-
dóttir óttast að skattkerfis-
breytingar auki svarta starfsemi
í ferðaþjónustu. 12
sport Grindvíkingar ætla að
gera betur gegn KR-ingum. 16
lÍFið Þriggja manna teymi
reynir að setja heimsmet á
hlaupahjóli. 30
Fréttablaðið í dag
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Fyrstu gestir Veraldar – húss Vigdísar gengu þennan óvenjulega stiga þegar húsið var vígt í gær. Í húsinu mun starfa Vigdísarstofnun – alþjóðleg mið-
stöð tungumála og menningar. Þá verður húsið einnig helgað kennslu í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Menningarveislu var slegið upp í
tilefni af opnuninni og komu listamenn þar fram. Einnig ávarpaði frú Vigdís Finnbogadóttir, sem húsið er kennt við, samkomuna. Fréttablaðið/Hanna
stjórnMál Afstaða heilbrigðisráðu-
neytisins er óbreytt til starfsemi
Klín íkurinnar, að sögn aðstoðar-
manns heilbrigðisráðherra.
Heilbrigðisráðherra neitaði fjöl-
miðlum um svör í gær vegna harð-
orðs bréfs landlæknis þar sem hann
gagnrýnir meðal annars afstöðu
ráðuneytisins til starfsemi Klíník-
urinnar, sem er á skjön við afstöðu
landlæknis.
Í bréfi landlæknis segir að túlkun
ráðuneytisins á heilbrigðislögunum
geri það að verkum að einkarekstur
og einkavæðing á sviði sérhæfðrar
heilbrigðisþjónustu geti haldið
áfram að vaxa hér á landi, meðal
annars í krafti þess að sjúklingar
greiði aðgerðir dýru verði úr eigin
vasa.
Heilbrigðisráðherra hefur nokk-
uð afdráttarlaust lýst því yfir að ekki
standi til að gera samning á milli
Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga
Íslands, sem niðurgreiðir aðgerðir
fólks sem þangað leitar.
Afstaða ráðuneytisins um að
Klín íkin sé ekki sérhæfð heil-
brigðisþjónusta, sem með lögum
þyrfti starfsleyfi ráðherra, heldur
einungis hefðbundinn stofurekstur
lækna gerir það að verkum að Klín-
íkin starfar áfram og óbreytt með
legudeild þar sem gerðar eru stórar
aðgerðir á sjúklingum sem borga
fyrir þær sjálfir. Sem dæmi má nefna
að mjaðmaliðaaðgerð kostar á Klín-
íkinni tæplega 1,2 milljónir króna.
Framkvæmdastjóri Klíníkurinn-
ar, Hjálmar Þorsteinsson, segir það
pólitíska ákvörðun ráðherrans að
sjúklingar búi við það kerfi. Hann
skilur bréf landlæknis ekki öðru
vísi en svo að embættið vilji tak-
marka rekstrarleyfi Klíníkurinnar,
þannig að henni væri óheimilt
að gera þær aðgerðir sem þar eru
gerðar í dag.
„En við erum á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Ef þú uppfyllir fagleg
skilyrði þá er ekki hægt að hefta
starfsemi heilbrigðisfyrirtækis á
þann hátt sem landlæknir ýjar að.“
- snæ
Ráðherra svarar ekki landlækni
Afstaða heilbrigðisráðherra til starfsemi Klíníkurinnar breytist ekki þrátt fyrir gagnrýni landlæknis. Sjúkl-
ingar greiða aðgerðir fullu verði. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir landlækni vilja hefta starfsemina.
Ef þú uppfyllir
fagleg skilyrði þá er
ekki hægt að hefta starfsemi
heilbrigðisfyrirtækis á þann
hátt sem landlæknir ýjar að.
Hjálmar Þorsteinsson
sjávarútvegur „Ég hef verið þeirrar
skoðunar lengi að það standi upp á
stjórnvöld að svara þeirri spurningu
hvort, og með hvaða hætti, þau ætli
að tryggja þá byggðafestu sem gert
er ráð fyrir í lögunum,“ segir Páll
Magnússon, formaður atvinnuvega-
nefndar Alþingis. Hann vill breyta
fiskveiðistjórnunarlögum til að
tryggja byggðavernd.
„Mál HB Granda gerir það enn
meira knýjandi að þessari spurn-
ingu sé svarað,“ segir Páll.
„Við í Framsóknarflokknum
höfum verið fylgjandi því að það
verði leitað leiða til að styrkja for-
kaupsrétt sveitarfélaga. Við teljum
eðlilegt að þetta verði skoðað,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra. – jóe / sjá síðu 4
Kerfið verndi
sjávarbyggðir
Páll Magnússon
þingmaður
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
F
-4
5
D
4
1
C
A
F
-4
4
9
8
1
C
A
F
-4
3
5
C
1
C
A
F
-4
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K