Fréttablaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 20
Ég leyfi mér freist-
ingar, en eins
sjaldan og ég get.
Kannski, þegar það er
rólegt í boltanum, leyfi ég
mér smá kex eða pönnu-
kökur hjá ömmu.
Tryggvi Snær Hlinason
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Frammistaða Tryggva Snæs Hlinasonar körfuboltakappa á fyrstu alvöru körfuboltaæfing-
unni með Þór á Akureyri var frekar
slök að hans sögn. „Þegar ég horfi
til baka núna þá var ég hræðilegur.
Það eina sem ég hafði var hæðin og
ágætis grunnhreyfigeta,“ segir hann
sposkur.
Óhætt er þó að segja að Tryggvi sé
fljótur að læra og hafi sannað sig á
skömmum tíma en hann leikur með
U20, landsliði Íslands tuttugu ára og
yngri, og A-landsliðinu.
Tryggvi hóf að æfa körfubolta árið
2014 og segir áhugann á körfubolta
hafa kviknaði fyrir alvöru í efstu
bekkjum í grunnskóla, þegar krakk-
arnir spiluðu körfu milli kennslu-
stunda.
Hann hafi alltaf verið orkumikill
krakki og tekið þátt í öllum íþrótta-
greinum sem boðið var upp á í
barnaskóla, fótbolta, sundi, frjálsum
og körfubolta. „Svo var maður líka
alltaf að gera eitthvað í sveitinni,
að hjóla, reka kindur eða synda í
vatninu,“ segir hann.
Tryggvi er hógvær og segist ennþá
vera að læra. Hann eigi sér enga
ákveðna fyrirmynd í íþróttinni og
gefur lítið fyrir troðslukeppnir. Í A-
landsliðinu segist hann umkringdur
valinkunnum kempum.
Ómetanleg reynsla
„Þetta eru menn sem kunna leikinn
og kenna hann verulega vel. Það
sem ég læri bara af því að horfa á þá
er ómetanlegt. Fyrirliðinn Hlynur
Bæringsson er einn af þeim reynd-
ustu, ótrúlega duglegur og góður
leikmaður. Að spila með honum er
heiður. Að spila á móti honum er líka
heiður og ekkert smá erfitt. Ég man
alltaf eftir einu tilviki, þegar mér var í
fyrsta skipti bókstaflega hent í burtu.
Ég er nú ekki léttur maður og taldi
mig frekar stöðugan þar til Hlynur
keyrði að körfunni og ég hreinlega
flaug af honum,“ segir Tryggvi. „Ég
gæti talið marga upp bæði þjálfara og
leikmenn sem hafa áhrif á mig, suma
fyrir leikskilning, aðra fyrir andann
sem þeir bera með sér eða þau áhrif
þeir hafa á liðið. Það er erfitt að nefna
einhvern einn, nema Benedikt Rúnar
Guðmundsson þjálfara. Hann er
búinn að fylgja mér meiri hlutann af
leiðinni til þessa.”
Pönnsur hjá ömmu
Tryggvi mætti níu sinnum í viku á
æfingar þegar tímabilið stóð yfir.
Þar fyrir utan fór hann einnig í
ræktina. Hann segist passa vel upp
á mataræðið en láti undan einstaka
freistingum.
„Hollt mataræði er auðvitað
partur af þessu og skiptir verulegu
máli. Ég leyfi mér freistingar, en eins
sjaldan og ég get. Kannski, þegar það
er rólegt í boltanum, leyfi ég mér
smá kex eða pönnukökur hjá ömmu.
Ég sleppti alveg páskaegginu. Ég fæ
mér hafragraut nokkuð oft í fyrri
morgunmat og síðan banana eða
epli og Hleðslu í seinni morgunmat.
Síðan fæ ég mér oft AB mjólk með
banönum og múslí fyrir morgunæf-
ingar. Ef ég á að nefna uppáhaldsmat
væri það lambakjöt, helst eldað
af mér sjálfum eða einhverjum
nánum,“ segir hann og viðurkennir
að sveitin togi í hann. „Ég reyni að
fara í sveitina eins oft og ég get en
það er sorglega sjaldan. Ég á ekki von
á að komast mikið í sauðburðinn í
vor þar sem ég byrja mjög snemma í
landsliðsæfingum með U20.“
Stefnir út
Tryggvi stundar nám við Verk-
menntaskólann á Akureyri. Hefur
lokið rafvirkjun og klárar stúdentinn
nú í vor. Erlendir háskólar og íþrótta-
félög hafa sýnt honum áhuga og
spurður hvað taki við eftir stúdent-
inn segist hann ekkert geta gefið upp
annað en að planið sé að fara út og
spila körfubolta. „Svo fer ég kannski
í háskóla eftir eitt ár, í fjarnám, eða
eitthvað annað.“
Spilaði
körfu milli
kennslustunda
Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Þórs á
Akureyri í körfubolta, er sveitamaður í húð
og hár, alinn upp í Svartárkoti í Bárðardal. Á
skömmum tíma hefur hann stimplað sig
rækilega inn í körfuboltaheiminn.
Tryggvi Snær er fimur með boltann.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . A p r í l 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
F
-6
3
7
4
1
C
A
F
-6
2
3
8
1
C
A
F
-6
0
F
C
1
C
A
F
-5
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K