Fréttablaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 2
PÁSKATILBOÐ
Við lækkum verðin!
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
69.900
Grillbúðin
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð yfirbreiðsla fylgir
Niðurfellanleg
hliðarborð
• Afl 10,5 KW
Nr. 12934
Frá Þýskalandi
Opið virka daga 11-18
Laugardag 11-16
Sumarstuð á köldum degi
Kátir krakkar í Árbæ leituðu skjóls undan hríðinni í hoppuköstulum er hverfisbúar fögnuðu sumarkomunni í gær. Þótt gengið hafi á með éljum var
gengið fylktu liði víða um land undir lúðrablæstri og blaktandi fánum. Veðurstofan spáir rólyndisveðri en köldu næstu daga Fréttablaðið/Eyþór
Veður
Í dag verður hæglætisveður á
landinu. Skýjað með köflum og
dálítil él á stöku stað. Allhvasst
austanlands framan af degi, en
síðdegis lægir. Hiti 0 til 5 stig.
sjá síðu 22
Bretland Jeremy Corbyn, formaður
Verkamannaflokksins á Bretlandi,
heitir því að hann muni taka í gegn
ósanngjarnt kerfi og færa valdið og
auðinn aftur til fólksins verði hann
forsætisráðherra landsins.
Kosningabaráttan er komin á full-
an skrið eftir að breska þingið sam-
þykkti að efna til kosninga í júni.
Verkamannaflokkurinn mælist
með um 25 prósenta fylgi. Það yrði
versta kosning flokksins í 99 ár.
Þá sagði Corbyn flokkinn ekki
mundu beita sér fyrir annarri
þjóðar atkvæðagreiðslu um útgöngu
úr Evrópusambandinu. Slíkt var
samþykkt gegn vilja flokksins.
John McDonnell, fjármálaráð-
herraefni flokksins, neitaði hins
vegar að útiloka aðra atkvæða-
greiðslu. – þea
Baráttan komin
á fullan skrið
menning Breski grínistinn Ricky
Gervais vakti gríðarmikla hrifningu
áhorfenda í troðfullum Eldborgarsal
Hörpunnar í gærkvöldi.
Gerði Gervais að venju óspart
grín að öllu kviku og hóf kvöldið á
að líka sér við Jesú Krist. Forseta-
hjónin Guðni Th. Jóhannesson og
Eliza Reid sátu á fremsta bekk.
Miðar á sýningu Gervais voru rifnir
út á augabragði um leið og þeir fóru
í sölu og var bætt við aukasýningu í
kvöld. Á hana varð sömuleiðis upp-
selt eins og hendi væri veifað. – gar
Hlegið að Gervais í Hörpu
listamaðurinn fór á kostum á sviði Eldborgar. Fréttablaðið/Hanna Frakkland Einn lögreglumaður
féll og tveir særðust þegar ráðist
var á þá á Champs-Elysees í París
í Frakklandi, í gær. Reuters greinir
frá því, og hefur eftir vitni, að árásar-
maður hafi stigið út úr bíl og skotið
úr hríðskotabyssu. Að sögn lögreglu
var árásarmaðurinn felldur er hann
reyndi að flýja vettvang. Þá leitaði
lögregla annars grunaðs í gærkvöld.
Hryðjuverkasamtökin sem kenna
sig við íslamskt ríki lýsa yfir ábyrgð.
á árásinni
„Allt sem ég sá voru vopnaðir lög-
reglumenn og lögreglubílar, og sér-
staklega þyrlur. Allt sem ég heyrði
voru sírenur,“ segir Hlér Kristjáns-
son nemi sem var á svæðinu í gær.
Hann hafði verið í röð til að
kaupa miða upp á Sigurbogann.
„Svo komu um það bil fimm starfs-
menn og töluðu saman ákaflega á
frönsku, og ég heyrði orðið „police“
mikið og svo fullt af sírenum,“ segir
Hlér.
Þegar Hlér spurði starfsmenn-
ina hvað væri að ske sögðu þeir að
ekkert væri að. Síðan var honum
leyft að fara upp. „Þegar ég loksins
kom upp, og rétt missti af sólsetr-
inu vegna tafarinnar, náði ég rétt
að taka eina mynd og svo var öllum
sagt að við þyrftum að fara niður á
næstu hæð fyrir neðan.“
Þar beið Hlér og var mikill rugl-
ingur með hvort hann fengi að fara
upp aftur eða fara niður á jörðina.
„Lögreglan virtist hafa sagt okkur að
bíða en seinna sagt öryggismönn-
unum að segja okkur að koma okkur
niður en sumir trúðu ekki öryggis-
mönnunum og fóru að rífast,“ segir
Hlér og bætir því við að að lokum
hafi allir farið niður.
Sá ekkert annað en
vopnaða lögreglumenn
Árásarmaður myrti lögregluþjón í París í gær. Hryðjuverkadeild lögreglu rann-
sakar málið. Árásarmaðurinn var felldur á vettvangi. Íslendingur á svæðinu
segir lögregluþjóna allt sem hann hafi séð. ISIS lýsir yfir ábyrð á árásinni.
Fjöldi lögreglumanna var við Sigurbogann. nordicpHotoS/aFp
„Þegar ég kom út spurði ég lög-
reglumann með einstaklega stóra
byssu hvað væri í gangi, en hann
sagðist ekkert vita. […] En lögreglan
sá um þetta mjög vel og voru allir
mjög vingjarnlegir.“
Talsmaður franska innanríkis-
ráðuneytisins sagði í yfirlýsingu
að of snemmt væri að segja til um
hvað lægi að baki árásinni. Þó væri
ljóst að vísvitandi hefði verið ráðist
á lögreglumenn. Skrifstofa ríkissak-
sóknara sagði jafnframt að hryðju-
verkadeild lögreglu rannsakaði
málið. thorgnyr@frettabladid.is
Allt sem ég sá voru
vopnaðir lögreglu-
menn og lögreglubílar, og
sérstaklega þyrlur. Allt sem
ég heyrði voru sírenur.
Hlér Kristjánsson
nemi
2 1 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö s t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
F
-4
A
C
4
1
C
A
F
-4
9
8
8
1
C
A
F
-4
8
4
C
1
C
A
F
-4
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K