Fréttablaðið - 21.04.2017, Qupperneq 4
Ferskur andardráttur
með Flux Fresh
Flux Fresh, munnskol og munnsogstöflur
gefa þér ferskan andardrátt og vinna
gegn andremmu
Fæst í apótekum
Nánari upplýsingar á www.fluxfluor.is
Vegna fréttar 15. apríl um skaðsemi
hjólreiðamanna í umferðinni
skal leiðrétt að í 91 slysi þar sem
rekja má orsök til hegðunar
hjólreiðamanna slasaðist enginn
ökumaður bifreiðar. Þeir sem
slösuðust voru 90 ökumenn
reiðhjóla. Misskilningi olli að
reiðhjól er skilgreint sem ökutæki í
umferðarlögum.
Leiðrétting
VenesúeLa Leiðtogar stjórnarand
stöðunnar í Venesúela hvöttu í
gær til áframhaldandi mótmæla. Á
miðvikudag mótmæltu þúsundir á
götum höfuðborgarinnar Caracas.
Kölluðu aðgerðasinnar mótmælin
„móður allra mótmæla“.
Ríkisstjórn forsetans Nicolas
Maduro hefur verið harðlega mót
mælt undanfarið. Hafa mótmælin
oft og tíðum orðið ofbeldisfull og
létu þrír lífið í vikunni. Samanlagt
hafa níu látið lífið frá því í lok mars.
Kveikjan að nýjustu mótmælun
um var ákvörðun hæstaréttar um að
rjúfa þing, en þar fór stjórnarand
staðan með meirihluta. Ákvörðun
inni var þó snúið við nokkru síðar.
Ekki bætti úr skák þegar stjórnar
andstöðuleiðtoganum Henrique
Capriles var meinuð þátttaka í
stjórnmálum næstu fimmtán árin.
Tilkynnt var um þá ákvörðun þann
7. apríl.
Gífurleg efnahagsvandræði hrjá
Venesúela. Matur og lyf eru af
skornum skammti, verðbólga mikil
og atvinnuleysi um 25 prósent. – þea
Vilja meiri
mótmæli
Frá mótmælunum í Caracas á mið-
vikudaginn. NordiCphotos/AFp
aLÞingi Kallað er eftir því af þing
mönnum að skerpt verði á ákvæð
um fiskveiðistjórnunarlaga um
byggðavernd. Núverandi ákvæði
tryggi ekki þá byggðafestu sem gert
var ráð fyrir í upphafi.
„Ég hef verið þeirrar skoðunar
lengi að það standi upp á stjórn
völd að svara þeirri spurningu
hvort, og með hvaða hætti, þau
ætli að tryggja þá byggðafestu
sem gert er ráð fyrir í lögunum,“
segir Páll Magnússon, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
atvinnuveganefndar.
Páll vísar meðal annars til
hæstaréttardóms frá júní 2015 í
máli Síldarvinnslunnar gegn Vest
mannaeyjabæ. Þar var komist að
þeirri niðurstöðu að forkaups
réttur sveitarfélaga næði aðeins til
fiskiskipa sem stæði til að selja úr
bæjarfélaginu en ekki til hlutabréfa
eiganda fiskiskips.
Í kjölfar ákvörðunar HB Granda
að færa landvinnslu á botnfiski
frá Akranesi til Reykjavíkur hefur
umræða um forkaupsrétt sveitar
félaga og byggðavernd losnað úr
læðingi á ný.
„Mál HB Granda gerir það enn
meira knýjandi að þessari spurn
ingu sé svarað,“ segir Páll. Hann
bendir á að í fiskveiðistjórnunar
lögunum sé kveðið á um byggða
festuna auk þess að hana megi lesa
úr anda laganna. Nauðsynlegt sé að
breyta lögunum.
„Það þarf að vera eitthvert akk
eri sem gerir það að verkum að
aflaheimildir fljóti ekki viðstöðu
laust úr byggðarlögum. Það er ekk
ert í núverandi lagaumgjörð sem
hindrar að allrar aflaheimildirnar
séu færðar á einn stað, þess vegna
til Reykjavíkur.“
„Við í Framsóknarflokknum
höfum verið fylgjandi því að það
verði leitað leiða til að styrkja for
Fiskveiðilöggjöf verndi byggðir
Formaður atvinnuveganefndar vill breyta fiskveiðistjórnunarlögum til að tryggja byggðavernd. Lagatexti sé
ekki í samræmi við anda laganna. Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra vill styrkja forkaupsrétt sveitarfélaga.
akureyri Foreldrar barna á Akureyri
sem fædd eru árið 2016 íhuga margir
að flytja í nágrannabyggðir til að fá
pláss í leikskóla fyrir börn sín. Aðeins
örfá börn komast í leikskóla næsta
haust á Akureyri. Oddvitar minni
hlutaflokka í bæjarstjórn segjast
undrast andvaraleysi meirihlutans.
„Þetta er grafalvarleg staða sem
komin er upp. Kerfið er einfaldlega
ekki að virka og metnaður virðist ekki
vera fyrir hendi til að breyta kerfinu,“
segir Sóley Björk Stefánsdóttir, odd
viti VG í bæjarstjórn. „Bak við töl
urnar eru fjölskyldur sem munu eiga
í fjárhagslegum erfiðleikum næsta
vetur. Þessu verður líklega ekki breytt
fyrr en fleiri konur komast í oddvita
stöður í bæjarstjórninni hér á Akur
eyri.“
Akureyri hefur frá 2008 haft þá
stefnu að bjóða börnum inngöngu í
leikskóla við átján mánaða aldur. Ein
sýnt er að sum börn komist ekki inn
fyrr en langt komin á þriðja aldursár.
Gunnar Gíslason, oddviti Sjálf
stæðis flokks og fyrrverandi fræðslu
stjóri Akureyrar, segir málið alvar
legt. „Ég hef óskað eftir því að fá gögn
um stöðuna. Það er á hreinu að það
verður að bregðast við þessu og sjá
hvaða leiðir eru mögulegar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu
eru foreldrar farnir að hugsa sér til
hreyfings úr sveitarfélaginu. Hugrún
Sigmundsdóttir, leikskólastjóri í Eyja
fjarðarsveit sunnan Akureyrar, stað
festir við Fréttablaðið að hún hefði
fengið símtöl frá áhyggjufullum for
eldrum á Akureyri sem hafa spurst
fyrir um leikskólapláss.
Dagbjört Pálsdóttir, formaður
fræðsluráðs, segir lítið hægt að gera í
málinu en ný skólastefna sé í burðar
liðnum. Ekki sé hægt að tryggja átján
mánaða börnum inngöngu í leikskóla
á þessu hausti. „Þetta er stór árgangur
sem er núna og við vissum það fyrir.
Strax á næsta ári verður ástandið
betra. Það er voðalega lítið sem við
getum gert akkúrat núna meira en
við erum að gera.“ – sa
Íhuga að flytja fyrir pláss í leikskólum
Foreldrar á Akureyri eru hræddir um mikið tekjutap næsta haust þar sem
börn þeirra komast ekki inn á leikskóla. FréttAblAðið/pjetur
Ákvörðun um að færa botnfiskvinnslu frá Akranesi hefur vakið umræður um fiskveiðilöggjöfina. FréttAblAðið/eYÞór
Það er ekkert í
núverandi lagaum-
gjörð sem hindrar að allrar
aflaheimildirnar séu færðar á
einn stað, þess vegna til
Reykjavíkur.
Páll Magnússon
kaupsrétt sveitarfélaga. Við teljum
eðlilegt að þetta verði skoðað,“
segir Gunnar Bragi Sveinsson, fyrr
verandi sjávarútvegsráðherra.
„Þá má líka velta því fyrir sér
hvort það megi lækka kvótaþakið
þannig að það séu fleiri um kvót
ann. Þetta er samt alltaf flókið mál.
Það má heldur ekki fara í aðgerðir
sem draga úr þróun og nýsköpun í
sjávarútvegi. Það má velta öllu upp
en ég er á móti því að það verði
gerðar stórar breytingar á kerfinu
sem gera það að verkum að það
verði ekki eins skilvirkt og það er
í dag,“ segir Gunnar Bragi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
sjávarútvegs og landbúnaðarráð
herra, sagði við Fréttablaðið í gær
að unnið væri að skipun nefndar
um fyrirkomulag gjaldtöku af auð
lindinni. Nefndin verður skipuð
fulltrúum allra þingflokka og er
stefnt að því að hún skili tillögum
á næsta þingi.
johannoli@frettabladid.is
samgöngur Ringulreið einkenndi
andrúmsloftið við innritunarborð
WOW Air í Miami í gær. Farþegar á
leið til Keflavíkur lýsa upplifun sinni
þannig að engu hafi verið líkara en
að miðar hafi verið afhentir far
þegum af handahófi.
Fresta þurfti flugi WOW Air frá
Keflavík til Miami á mánudag vegna
óhapps í hvassviðrinu á annan í
páskum. Heimför fólks á þriðjudag
seinkaði því einnig og brá félagið
á það ráð að leigja breiðþotu til að
flytja farþega beggja daga til Kefla
víkur.
Svana Friðriksdóttir, upplýsinga
fulltrúi WOW, sagði hina leigðu þotu
taka taka 530 farþega og unnið væri
hörðum höndum að því að koma
þeim heim sem áttu miða með
þriðjudagsvélinni. Þeir komust allir
með að lokum en tuttugu, sem áttu
miða með vél dagsins í gær, þurftu að
fara heim eftir öðrum leiðum.
Meðal þeirra sem áttu bókað flug
var karlalið Vals í knattspyrnu en
Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður
liðsins, segir að farþegar hafi fengið
þau skilaboð að vélin væri yfirbókuð.
Rúmlega hundrað manns kæmust
ekki með heim.
Upphaflegur brottfarartími var
áætlaður klukkan hálfníu í gærkvöld
en vélinni seinkaði sökum þessa.
Hún var ekki farin í loftið þegar
Fréttablaðið fór í prentun. – ktd
Ringulreið ríkti við innritun á leið heim frá Miami í kjölfar óhapps
hvassviðri mánudagsins raskaði áætlunum WoW air. FréttAblAðið/VilhelM
2 1 . a p r í L 2 0 1 7 F ö s t u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
F
-5
E
8
4
1
C
A
F
-5
D
4
8
1
C
A
F
-5
C
0
C
1
C
A
F
-5
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K