Fréttablaðið - 21.04.2017, Síða 6
Umhverfisstofnun þraut þolinmæðina
Þegar staðhæfingar United Silicon um að búið væri að leysa vissa tæknilega erfiðleika reyndust innistæðulausar greip Umhverfis
stofnun til aðgerða. Mengunartoppar eru raktir til þess þegar ofn verksmiðjunnar bilar og er stöðvaður hvað eftir annað.
Hugsanleg mengunarefni frá United Silicon
Edikssýra Lyktarmengun, erting í
slímhúð (augum og öndunarfær-
um, þ.m.t. astmalík einkenni) koma
fram við tiltölulega lága þéttni sem
er ekki talin hættuleg en hættu-
mörk eru ekki vel skilgreind. Meiri
þéttni fylgir meiri erting.
Maurasýra Lyktarmengun getur
komið fram við nokkuð háa þéttni
miðað við vinnuverndarmörk,
hættumörk ekki vel skilgreind.
Erting í slímhúð og hósti þekkt
áhrif. Einkenni geta verið verri ef
edikssýra og maurasýra blandast.
Klórmetan/metýlklóríð Mjög
ertandi ef blandast vatni, t.d. í
slímhúð augna og loftvega, brotnar
niður í saltsýru og metanól. Þegar
það hitnar myndast klórgas. Betri
skilgreiningar til fyrir bráðahættu-
mörk en fyrir efnin hér að ofan.
Hugsanlega hættulegt í styrk sem
er undir lyktarmörkum, yfirleitt
ekki talið lykta sérlega illa.
Methyl mercaptan Mjög vond lykt,
líkist soðnu káli, finnst þótt styrkur
sé mjög lágur. Mjög ertandi fyrir
slímhúð í tiltölulega lágum styrk.
Ágætlega skilgreind hættumörk til.
Ýmis aldehýð Geta verið ertandi
og haft óþægilega lykt.
heimild: Sóttvarnalæknir (bréf UST
til United Silicon 12. apríl 2017)
Ofn verksmiðjunnar verður ekki ræstur að nýju nema
að höfðu samráði við Umhverfisstofnun. Ekki liggur
fyrir hvenær það verður. Fréttablaðið/Eyþór
Húnaþing vestra Skólahaldi verður
ekki framhaldið á Borðeyri við
Hrútafjörð á næsta skólaári. Börn-
um hefur fækkað svo mjög í gamla
Bæjarhreppi að ekki er talið hægt
að halda úti skólastarfi á Borðeyri.
Þrettán íbúar eru með lögheimili
á Borðeyri í dag en öllu fleiri í sveit-
unum í kring. Guðný Hrund Karls-
dóttir, sveitarstjóri Húnaþings
vestra, segir bæjarfélagið hafa hringt
í foreldra á svæðinu og hlustað á
íbúa.
Kristín Ólöf Þórarinsdóttir,
aðstoðarskólastjóri grunnskóla
Húnaþings vestra, segir börnum
hafa fækkað mjög. „Þegar ég sótti
þennan skóla á síðustu öld voru
um þrjátíu börn í skólanum. Nú er
hins vegar gert ráð fyrir að þrjú börn
verði í skólanum á næsta skólaári,“
segir Kristín Ólöf.
Á sama tíma mun leikskólinn
á Borðeyri, Ásgarður, leggjast af
á næsta skólaári. Ein starfsstöð
leikskóla og grunnskóla verður
því starfandi á næsta skólaári, á
Hvammstanga. Verður börnum ekið
þangað.
„Eindreginn vilji byggðarráðs og
sveitarstjórnar hefur verið til þess
að halda úti skólastarfi á Borðeyri
eins lengi og þess er nokkur kostur,“
segir í bókun byggðarráðs sveitar-
félagsins. „Með fækkun nemenda er
hins vegar komin upp breytt staða
ef horft er til meðal annars félags-
legra og faglegra sjónarmiða.“ – sa
Skólahald leggst af á Borðeyri næsta haust
úganda Leit að uppreisnarleið-
toganum og stríðsherranum Joseph
Kony hefur verið hætt. Úganski her-
inn greindi frá þessu en Kony hafði
verið leitað í Mið-Afríkulýðveldinu
undanfarin ár.
Kony er leiðtogi hins svokall-
aða Frelsishers drottins. Er hann
alræmdur fyrir að aflima fórnarlömb
og hneppa börn í þrældóm. Hafa
börnin verið notuð sem hermenn
og beitt kynferðislegu ofbeldi. Fyrst í
Úganda og síðar í Mið-Afríkulýðveld-
inu. Hefur hann verið eftirlýstur frá
árinu 2005, sakaður um stríðsglæpi.
Ástæðan fyrir því að leit er hætt er
sögð sú að her hans sé orðinn veik-
burða og hafi engin völd lengur.
Bandarískir aðgerðasinnar
reyndu að gæða leitina lífi árið 2012
með myndbandi sem bar titilinn
Kony2012. Vakti sú herferð mikla
athygli og sama ár hófu úganski her-
inn, bandarískir sérsveitarmenn og
hermenn Afríkusambandsins leit í
Mið-Afríkulýðveldinu. – þea
Leit hætt að Joseph Kony
Öllum börnum í Hrútafirði verður ekið í skóla til Hvammstanga næsta haust.
Fréttablaðið/PjEtUr
Mengunartoppar frá verksmiðju
United Silicon í Helguvík eru raktir
til þess að ekki tekst að halda ofni
verksmiðjunnar gangandi af ein-
hverjum ástæðum. Umhverfisstofn-
un (UST) virðist hafa gefið fyrir-
tækinu vissar tilslakanir byggðar
á upplýsingum um að fyrirtækinu
hafi tekist að fækka ofnstoppum, en
fyrir páska þraut stofnunina þolin-
mæðina þar sem ekkert benti til að
það væri rétt.
Þetta kemur fram í bréfi UST til
fyrirtækisins 12. apríl sem er frá
hendi Kristínar Lindu Árnadóttur
forstjóra og Sigrúnar Ágústsdóttur
sviðsstjóra. Þar segir: „Að teknu til-
liti til nýjustu upplýsinga er að mati
stofnunarinnar vart hægt að full-
yrða að ofnstoppum sé að fækka.
Ábendingum um óþægindi hefur
enn fjölgað og koma nú inn í veru-
legum mæli á skömmum tíma,“
segir í bréfinu þar sem vísað er til
mikillar mengunar frá verksmiðj-
unni á nokkurra daga tímabili sem
fjöldi íbúa í Reykjanesbæ kvartaði
yfir til UST. Þær kvartanir voru rúm-
lega 80 talsins og bættust við 300
slíkar sem borist hafa UST síðan
starfsemi verksmiðjunnar hófst
fyrir fjórum mánuðum.
Næsta ofnstopp
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
miðvikudag tilkynnti UST United
Silicon í bréfinu að ekki yrði kom-
ist hjá því að stöðva starfsemi verk-
smiðju fyrirtækisins í Helguvík – og
miðað yrði við næsta ofnstopp sem
myndi vara lengur en klukkustund.
Forsendur þessara áforma voru að
mögulegt væri að frá verksmiðjunni
streymdi út í andrúmsloftið
fjöldi efna sem gætu haft langtíma-
áhrif á heilsufar, en meðal þeirra
eru ediksýra og maurasýra. Ekkert
þeirra efna fellur undir mæliáætlun
fyrirtækisins né umhverfisvöktun
og því brýnt að greina um hvaða
efni getur verið að ræða þannig að
hægt sé að meta hættuna með meiri
nákvæmni en gert hefur verið.
Og ekki að ástæðulausu þar sem
sóttvarnalæknir nefnir fimm efni
sérstaklega sem gætu haft þau
ertandi áhrif sem íbúar nærri verk-
smiðjunni lýsa – ediksýra, maura-
sýra, klórmetan/metýlklóríð, met-
hyl mercaptan og ýmis aldehýð.
Öll þessi efni eru mjög ertandi og
hættuleg mönnum. Öll hafa þau,
eða sambærileg efni, langtíma-
áhrif á heilsu fólks ef
um mikla mengun
er að ræða, þótt
það sé í tiltölulega stuttan tíma,
segir sóttvarnalæknir.
brunastækja
Ekki kom til lokunar af hálfu UST
þar sem stjórn United Silicon tók
við boltanum og axlaði þá ábyrgð
að hætta framleiðslu við næsta ofn-
stopp. Þess var ekki langt að bíða
eftir að töluverður eldur kom upp
í verksmiðjunni með þeim afleið-
ingum að framleiðslu var sjálfhætt.
Eftir stendur að þrátt fyrir upp-
lýsingar frá United Silicon um
umbætur þá virðist mengunin frá
verksmiðjunni hafa náð nýjum
hæðum fyrir og um páskahátíðina;
fólk hélst ekki við úti og frá verk-
smiðjunni stafaði „afgerandi ólykt“.
„Í mörgum ábendingum kemur
fram að lyktin sé mun verri en áður,
megn brunastækja eða eiturefnalykt
eru nefnd. Fram kemur að fólk finni
fyrir sams konar einkennum og áður
hefur verið lýst; sviða í augum, hálsi,
ertingu í lungum, hausverk, ógleði
og kláða í andliti. Fram kemur að
fólk þurfi að nota astmalyf í aukn-
um mæli. Einnig kemur fram að
fólk opni ekki glugga, láti ekki börn
sofa úti, hreyfing útivið sé útilokuð
o.s.frv.,“ segir í bréfinu.
Nýr ráðgjafi
Til stóð að fulltrúar ráðgjafar-
fyrirtækisins Multiconsult tækju
út rekstur United Silicon í vikunni.
Áætlun gerði reyndar ráð fyrir því
að úttektin yrði gerð daginn eftir að
verksmiðjan lamaðist vegna eldsins,
og tillögur ættu að liggja fyrir degi
síðar. Tímasett umbótaáætlun
eftir ráðleggingum Multiconsult og
MATÍS átti að liggja fyrir í vikulok.
Að teknu tilliti til
nýjustu upplýsinga
er að mati stofnunarinnar
vart hægt að fullyrða að
ofnstoppum sé að fækka.
Ábendingum um óþægindi
hefur enn fjölgað og koma
nú inn í verulegum mæli á
skömmum tíma.
Bréf Kristínar Lindu Árnadóttur og Sig-
rúnar Ágústsdóttur til United Silicon
joseph Kony. NOrdicPHOtOs/aFP
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
2 1 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö s t U d a g U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
F
-7
2
4
4
1
C
A
F
-7
1
0
8
1
C
A
F
-6
F
C
C
1
C
A
F
-6
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K