Fréttablaðið - 21.04.2017, Page 18
Jóhanna Guðrún hlakkar til tónleikaferðarinnar.
Jóhanna
Guðrún
og Davíð
Sigurgeirs-
son eru
kærustupar
og nánir
samstarfs-
félagar.
Litla fjölskyldan á ferðalagi um heiminn.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er 26 ára og því óvenjulegt að hún skuli eiga átján ára feril.
Hún var aðeins níu ára þegar hún
gaf út sína fyrstu plötu. Barna-
stjarnan gerði það gott en söng-
konan vakti þó enn meiri athygli
þegar hún söng lagið Is It True? í
Eurovision-keppninni í Moskvu
árið 2009. Jóhanna segist vera afar
ánægð með úrslitakvöld söngva-
keppninnar hér heima að þessu
sinni og hlakkar mikið til að sjá
Svölu keppa fyrir Íslands hönd.
„Lokakvöldið var mjög faglegt
og við erum alltaf að færa okkur
nær því að geta haldið keppnina
hér heima,“ segir hún. „Ég horfi
alltaf á Eurovision og geri eitthvað
skemmtilegt úr kvöldinu en ég er
ekki nörd á þessu sviði,“ bætir hún
við. Þegar hún er spurð hvort hana
langi aftur, svarar hún því neitandi.
„Ég hef verið beðin að taka þátt
en hafnaði því. Mér fannst mikið
álag í kringum þátttökuna þótt það
væri líka mjög skemmtilegt. Hins
vegar ætla ég ekkert að þvertaka
fyrir að ég fari aftur ef rétta lagið
kemur upp í hendurnar á mér, sér-
staklega ef það væri lag eftir okkur
Davíð. Þá færi ég sem höfundur
en ekkert endilega flytjandi,“ segir
Jóhanna Guðrún.
Draumur rættist
Og nú skal haldið um landið. Fyrsta
tónleikakvöldið verður á Akureyri
4. maí en alls verða sex tónleikar.
„Davíð er ótrúlega framtakssamur
og hefur skipulagt þessa ferð og
valið staði fyrir tónleikana. Ég get
alveg viðurkennt að hann er drif-
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
krafturinn í þessu,“ segir Jóhanna.
„Þetta er nýtt hjá mér því ég hef
ekki farið áður í tónleikaferð
með þessu sniði. Ég ætla að taka
mín uppáhaldslög og segja sögur
í kringum þau. Þetta er orðinn
langur tími og margt að segja frá.
Vissulega tek ég mín þekktustu lög
líka, eins og Is It True? og Mamma
þarf að djamma. Síðan alls konar
ballöður sem koma úr öllum áttum.
Ég verð með lög af fyrstu plötunni
minni, Jóhanna 9, en hún seldist
mjög vel og fór í platínu,“ segir hún.
„Það verður gaman að rifja upp
þessi lög. Þetta var svolítið fyndinn
tími að sumu leyti og ákaflega
skemmtilegur. Maður var ungur að
árum og þetta var gríðarlega mikil
vinna og álag fyrir barn. Mér þótti
þetta samt alltaf gaman og draumur
minn að rætast. Mig dreymdi um að
verða söngkona allt frá því ég man
eftir mér,“ segir Jóhanna og minnist
þess þegar hún var að kynna plöt-
urnar sínar á yngri árum. „Maður
þvældist um allt og ég var jafnvel
að syngja á bensínstöðvum. Það
var mikil lífsreynsla. Plötuútgáfa
var allt öðruvísi á þessum tíma og
partur af kynningunni var að vera í
návígi við aðdáendur.“
Gæti orðið plata
Jóhanna Guðrún og Davíð vinna
náið saman og hafa samið mörg
lög. Hún segir að mögulega komi
nýtt lag frá þeim áður en langt um
líður. „Við viljum gefa þessi lög út
á plötu en í dag er ekkert sérstak-
lega áhugavert að standa í útgáfu.
Það eru breyttir tímar í þessum
bransa og lögin fara frekar inn á
netið,“ segir hún. „Við erum alltaf
eitthvað að bauka og nú er kominn
möguleiki eins og Karolina Fund
sem gæti létt undir með kostnað og
þess vegna er aldrei að vita nema
úr verði plata,“ segir hún.
Notaleg kvöldstund
Tónleikagestir þeirra um landið
eiga eftir að sjá hversu vel þau
Ég hef ekki farið
áður í tónleikaferð
með þessu sniði. Ég ætla
að taka mín uppáhalds-
lög og segja sögur í
kringum þau.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Jóhanna nýtur
sín vel í móður-
hlutverkinu.
setja fram tónlist en Jóhanna segir
að þeim finnist einfaldleikinn
bestur. „Við viljum að þetta verði
notaleg kvöldstund fyrir áhorf-
endur. Davíð er frábær gítarleikari
og við vinnum vel saman í músík.
Tónlistin er bæði atvinna okkur og
áhugamál. Við ræðum mikið tón-
list heima,“ segir Jóhanna en Davíð
stjórnar gospelkór Jóns Vídalín
og saman stjórna þau barna- og
unglingakórum Vídalínskirkju í
Garðabæ. Auk þess spilar Davíð
með Rokkkórnum ásamt því að
sinna alls kyns undirleik.
Jóhanna segir að vel geti verið að
hún komi fólki á óvart á tónleikun-
um. „Ég geri svolítið grín að Davíð,“
segir hún og hlær. „Lagavalið ætti
að koma á óvart. Ég er alltaf svo-
lítið misskilin sem tónlistarmaður.
Fólk heldur að ég sé alltaf í síðkjól
með slöngulokka að syngja Celine
Dion. Þetta er ekki alveg þannig,“
segir hún. „Undanfarið hef ég verið
að slípa lagalistann en fjölmörg
lög koma til greina. Það er erfitt að
skera niður.“
Í mömmuhlutverkinu
Jóhanna og Davíð eiga eina dóttur,
Margrétu Lilju, sem er á öðru ári.
Móðirin segir hana vera glaðlegan
karakter. „Ég veit ekki hvort hún
fetar sömu braut og við foreldr-
arnir. Það kemur bara í ljós. Hún
má gera hvað sem hana langar til
í framtíðinni,“ segir Jóhanna og
bætir við að móðurhlutverkið sé
eitt það skemmtilegasta sem hún
hafi fengist við.
Í sumar ætlar Jóhanna Guðrún
að leggja kraft í lagasmíð ásamt
Davíð. Það er nóg að gera að koma
fram á hinum ýmsu stöðum, bæði í
einkasamkvæmum og hjá fyrir-
tækjum. „Þetta er óreglulegt líf en
skemmtilegt. Maður veit aldrei
hvað kemur næst upp í hendurnar
á manni. Við höfum verið heppin
að geta unnið við það sem okkur
finnst skemmtilegast að gera. Þegar
við erum ekki að vinna finnst
okkur gott að slappa af heima.
Stundum hlustum við á músík en
stundum er gott að hafa þögn. Ég
hef alltaf verið gömul sál og finnst
best að vera í rólegheitum,“ segir
Jóhanna Guðrún.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . a p r Í l 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
F
-7
7
3
4
1
C
A
F
-7
5
F
8
1
C
A
F
-7
4
B
C
1
C
A
F
-7
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K