Fréttablaðið - 21.04.2017, Blaðsíða 22
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Það halda reyndar allir að ég sé að læra hárgreiðslu en mér fannst kjötiðn spennandi og ákvað því að læra fagið.“
Helga undirbjó sig vel fyrir keppnina
og bjó til afurðir úr heilum lambs-
skrokki.
Helga ákvað að læra kjötiðn eftir að hafa farið á slátur-tíð á Húsavík skömmu eftir
grunnskólapróf. „Það halda
reyndar allir að ég sé að læra hár-
greiðslu en mér fannst kjötiðn
spennandi og ákvað því að læra
fagið. Það eru margir sem vita ekki
hvað starf kjötiðnaðarmannsins
felur í sér en ég vona að þessi titill
veki áhuga fleiri, ekki síst kvenna,
á faginu. Ég lýk námi í kjötiðn í maí
en ætla að halda áfram og klára
stúdentsprófið frá Verkmennta-
skólanum á Akureyri,“ segir Helga,
sem er alin upp austur á fjörðum
í hópi sex bræðra. Einn þeirra er
kjötiðnaðarmaður og Helga segir
það einnig hafa hvatt sig til að læra
fagið.
Helga er að hluta til alin upp á
Brimnesi í Fáskrúðsfirði og segir
það hafa komið sér vel í náminu.
Þar kynntist hún heimaslátrun og
fékk að hjálpa til við að ganga frá
kjötinu. Hún býr nú á Akureyri en
lýkur síðustu önninni frá Mennta-
skólanum í Kópavogi. „Eins og
stendur er ég í tveimur skólum. Ég
mæti í tíma við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri fyrri part vikunnar
Helga stendur
strákunum
hvergi að baki
Helga Hermannsdóttir lýkur námi í
kjötiðn í vor þótt allir haldi að hún sé
í hárgreiðslunámi. Helga gerði sér lítið
fyrir og varð Íslandsmeistari Íslands-
móti iðn- og verkgreina fyrir stuttu.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Gleðilegt sumar
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Smart föt, fyrir smart konur
Gleðilegt sumar
en flýg suður á miðvikudögum til
að sækja tíma í MK og flýg svo aftur
norður á föstudögum,“ segir Helga
sem er önnur tveggja kvenna í
náminu.
Dreymir um eigið fyrirtæki
Helga er á námssamningi hjá kjöt-
vinnslufyrirtækinu Norðlenska og
þar lærir hún allt það verklega sem
tengist faginu. Hún hefur áhuga
á að mennta sig meira að loknu
stúdentsprófi og gæti vel hugsað
sér að læra eitthvað sem tengist
matvælum eða viðskiptafræði.
„Draumurinn er að stofna eigið
fyrirtæki sem tengist kjötiðn, til
dæmis eitthvað sem líkist beint frá
býli,“ segir Helga.
Í keppninni úrbeinaði Helga heilan
lambsskrokk og bjó til úr honum
margs konar góðgæti, eins og
Wellington-steik og beikonvafið
lambalæri.
Innt eftir því hvað henni finnst
skemmtilegast við fagið segir hún
gaman að geta sýnt öðrum að hún
standi strákunum hvergi að baki.
„Ég get úrbeinað risastóra nauts-
skrokka og er oft eina konan að
vinna með körlum. Þeir bjóða mér
oft aðstoð, t.d. við að lyfta skrokk-
um, en ég get þetta alveg sjálf,“ segir
Helga.
Lambafillet með
döðlum og beikoni
3-4 lambafillet með fitu
döðlur, lífrænt ræktaðar
beikon
salt og pipar að smekk
olía til steikingar
Hitið olíu á pönnu. Steikið fillet á
pönnunni svo kjötið lokist. Brúnið
fituhliðina vel. Kryddið með salti
og pipar. Brúnið og mýkið döðl-
urnar á annarri pönnu í 2-3 mín.
Leggið döðlur ofan á hvert fillet og
fléttið saman inn í beikonið. Setijð
í eldfast mót og steikið í ofni við
170°C í um 20 mín. Takið úr ofn-
inum og látið hvíla í 10 mín. undir
viskustykki.
Epla- og sinnepssósa
4 dl vatn
1 grænmetisteningur
1 nautateningur
2 dl eplamauk
1 dl grófkorna sinnep
Blandið öllu hráefni saman í pott og
látið suðuna koma upp. Má þykkja
með sósujafnara, ef vill.
Bakaðar sætar kartöflur
½ kartafla á mann
Skerið kartöflurnar í tvennt og
skerið end ana af. Raðið saman í
eldfast mót. Penslið kartöflurnar
með ólífuolíu og kryddið með salti
og pipar. Bakið í forhituðum ofni
við 175°C í um 1 klst. Fer eftir stærð
kartaflnanna.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . a p r Í l 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
1
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
F
-6
8
6
4
1
C
A
F
-6
7
2
8
1
C
A
F
-6
5
E
C
1
C
A
F
-6
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K