Fréttablaðið - 21.04.2017, Síða 38

Fréttablaðið - 21.04.2017, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is VIDEOJET PRENTARAR Prentaðu beint á vörurnar eða umbúðirnar FESTIBYSSUR - PRENTBORÐAR - LÍMMIÐAPRENTARAR MIÐAÁLÍMINGARVÉLAR - VERÐMERKIVÉLAR - BLEKSPRAUTUPRENTARAR PRENTARA- & VOGAKERFI - IÐNAÐARPRENTARAR - MERKIBYSSUR FÁÐU TILBOÐ ára s. 511 1100 | www.rymi.is ...fyrir alla muni SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt V ið ætlum að mynda lið 25 þátttakenda til þess að ferðast heimsins lengstu vegalengd á hlaupa-hjóli á 24 klukku- stundum, og stefnt er á að fara 560 km, sú vegalengd mun tryggja okkur titilinn. Við erum þrjú sem erum að fara af stað með þessa heimsmetstilraun og langar að fá með okkur í lið hrausta og hressa einstaklinga sem vilja taka þátt,“ segir Sigríður Ýr Unnarsdóttir sem skipar #ScootingRecord-teymið ásamt þeim Michael Reid og Bjarti Snorrasyni. Hópurinn sem kemur að heims- metstilrauninni er bjartsýnn á að hægt sé að slá núgildandi met yfir lengstu vegalengd á hlaupahjóli á 24 klukkustunum sem sett var af The Night Razors-teyminu þann 17. maí 2014 í Bandaríkjunum þegar þau ferðuðust 553,72 km. „Við erum bjartsýn en auðvitað eru margir þættir sem þurfa að ganga upp til þess að við náum því mark- miði. Helsta áskorun okkar í þessu verkefni mun líklega vera mann- legi þátturinn. Við erum að setja saman lið sem samanstendur af 25 einstaklingum sem þurfa að vinna vel saman og gefa sig alla í þetta verkefni. Ferlið er langt og strangt og þetta snýst ekki bara um það að hlaupahjóla nægilega hratt, heldur þarf góða liðsheild því metið snýst bæði um líkamlega getu og andlega þar sem tilraunin tekur heilan sólar- hring og takmarkaður tími gefst til þess að hvílast, þar sem allir þurfa að vera í viðbragðsstöðu. Við vitum hvað þarf til þess að fá heimsmet staðfest frá Guinness þar sem við höfum farið í gegn um ferlið áður og búum að þeirri reynslu,“ útskýrir Sigríður sem ásamt Mic- hael gerði tilraun tilraun til að slá heimsmet í Bandaríkjunum í fyrra, fyrir lengstu vegalend á „pocket- bike“-mótorhjóli. Og ætlunarverkið tókst. „Ferlið var langt og strangt og í upphafi virtust áskoranirnar óyfir- stíganlegar. Á endanum náðum við þó að yfirstíga allar hindranirnar og slá heimsmetið sem varð til þess að við leituðum uppi svipaðar áskor- anir og fundum þetta met.“ Spurð út í hvað sé svona spenn- andi við að slá Guinness-heimsmet segir Sigríður: „Að vera Guinness- heimsmethafi er ein æðsta viður- kenning sem hægt er að öðlast innan ævintýraiðnaðarins. Þetta er flókið ferli og sjálf framkvæmdin er aðeins lítill hluti af því sem þarf að gera til þess að slá met. Heimsmeta- bók Guinness er bók sem fjölmörg ungmenni lesa um heim allan og láta sig dreyma um að vera í bókinni einn daginn. Langflestir snúa sér þó að öðru og láta þá drauma aldrei verða að veruleika en við ákváðum að leggja allt undir og taka þessari áskorun.“ Í leiðinni ætlar hópurinn líka að safna áheitum fyrir Slysa- varnafélagið Landsbjörg. Hlaupahjól vanmetin á Íslandi Sigríður, Michael og Bjartur eru öll sammála um að hlaupahjól séu frekar vanmetin farartæki hér á landi. „Hlaupahjól eru frábær fyrir þær sakir að þau eru handhæg og það tekur virkilega á að spretta á hlaupahjóli – krefst bæði líkamlegs styrks og tækni. Það má því segja að þau séu vanmetin hér á landi þar sem þau eru aðallega notuð af börn- um við leik en víða erlendis þekkist það að fullorðnir noti hlaupahjól sem bæði samgöngutæki og einn- ig er þetta keppnisíþrótt,“ útskýrir Sigríður. Þess má geta að í heims- metstilraunina verður hlaupahjól af tegundinni Kickbike Race Max 20 notað. Þeir sem hafa áhuga á að komast í teymið og slá heimsmetið og láta gott af sér leiða með þeim Sigríði, Michael og Bjarti geta kynnt sér málið nánar á kynningu sem haldin verður á Gló í  Fákafeni á sunnu- daginn klukkan 13.00. „Þá bjóðum við áhugasömum að koma og hitta okkur og sækja um að verða með- limir í #Scooting Record-teyminu. Guinness setur 18 ára aldurstak- mark á meðlimi.“ gudnyhronn@365.is Stefna á að fara 560 km á hlaupahjóli Þriggja manna teymi sem kallar sig #ScootingRecord stefnir að því að slá Guinness-heimsmet í lengstu vegalengd á hlaupahjóli á innan við 24 klukkustundum. Hópurinn á krefjandi verkefni fyrir höndum. FRAMKvæMDASTJÓRI PRIKSINS Geoffrey Þór Huntington-Williams PLAY FOLLOW Föstudags-playlista Lífsins má einnig finna á Spotify undir notandanafninu Vísir. Netflix & dusse Smino Gyalchester Drake Chances Migos/Young Thug Ekki switcha Birnir New Pirelli Eli Sostre Love You Crazy 24hrs Might Be dj Luke Nasty Brand New Section Boys Fullir vasar Aron Can Cold Post Malone LAG FLYTJANDI Föstudags- playlisti Lífsins „Það er alltaf nóg að gera á Prikinu og við fögnum nýútkominni plötu Arons Can yfir helgina. Þessi playlisti er drifbensín á daglegu verkin. Sé stuð,“ segir Geoffrey, potturinn og pannan á Prikinu, sem dregur upp úr vasanum lagalista sem er eins og kvöld á Prikinu þjappað saman í 10 lög. Sigríður, Bjartur og Michael stunda öll fjölbreytta líkamsrækt en ekkert þeirra hefur þó lagt hlaupahjólreiðar sérstaklega fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HelSta áSkoRun okkaR í þeSSu veRkeFni mun líklega veRa mannlegi þáttuRinn. 2 1 . a p r í l 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r30 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 1 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A F -5 9 9 4 1 C A F -5 8 5 8 1 C A F -5 7 1 C 1 C A F -5 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.