Víkurfréttir - 28.08.1997, Síða 5
Fyrir og
leik
Sætaf erðir í
boði Teits
Jónassonar
Ókeypis sætaferðir verða á
bikarúrslitaleikinn ffá K-
videoi og verður farið kl.
10.00. Mæting kl.9.30.
Farið verður beint í Ölver í
Glæsibæ þar sem stemmn-
ingin verður tendruð fyrir
leik. Þarna verður einnig
sérstakur salur ætlaður
[ krökkum og geta þau látið
mála sig í litum Keflavíkur-
liðsins.
Forsala í
Samkaup
Haukur Ingi á fullri ferð með Keflavík í sumar. A innfelldu myndinni skorar hann íleik gegn Skallagrími í deildinni.
Ætlum olfkur ekkent
annað en sinui*
-segir Haukur Ingi Guðnason sem að öllum líkindum gerist atvinnumaður í haust
„Bikarleikurinn leggst vel í mig. Þetta
verður frábært og við Keflvíkingar
ætlum okkur ekkert annað en sigur“,
sagði Haukur Ingi Guðnason, ein af
stjörnum Iiðsins í sumar en eins og
fram hefur komið hafa að minnsta
kosti þrjú stórlið úti í heimi, Arsenal,
Liverpool og PSV Eindhoven sýnt hon-
um mikinn áhuga.
Haukur segir þetta vera einn mikilvæg-
asta leik sem liann hafi spilað á ferlinum.
Hann var í 2. flokksliði Keflavíkur í fyrra
sem lék við Fram í úrslitaleik bikarsins en
þá mátti Keflavík þola tap 1:2 og skoruðu
Framarar sigurmarkið 7 sekúndum fyrir
leikslok.
Haukur segir að árið í fyrra hafi verið gott
undirbúnigstímabil fyrir árið í ár en þá
lék hann fímmtán leiki og byrjaði inná í
ellefu þeirra.
„Möguleikar okkar gegn Eyjamönnum
em góðir. Okkur hefur yfirleitt gengið vel
á móti þeim. I síðustu fjórum leikjum
höfum við haft betur í tveimur, eitt jafn-
tefli og í fjórða leiknum í bikarnum í
fyrra var einnig jafnt eftir venjulegan
leiktíma en þeir unnu eftir vítaspyrnu-
keppni.
Guðni Kjartansson, faðir Hauks kom við
sögu í eina bikartitli Keflavíkur árið
1975. Þá var hann annar tveggja þjálfara
Iiðsins, en hinn var Jón Jóhannsson.
Haukur Ingi segir allar líkur á því að
hann leiki ekki í Keflavíkurbúningnum á
næsta ári því hann hafi möguleika á að
komast að hjá atvinnumannaliðum.
„Ég hef fengið staðfest hjá Arsenal og
PSV Eindhoven að þeir vilji fá mig út og
Liverpool mun vera inn í myndinni líka.
PSV er að mér skilst tilbúið með samning
til að bjóða mér“, segir Haukur. Guðni
faðir hans ræddi við forráðamenn Arsenal
á dögunum þegar hann fór utan til að
fylgjast með leik Ira og Lichtenstein fyrir
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfara.
Mun hann hafa verið ánægður með þær
viðræður og áhuga forráðamanna Arsenal
þar sem hann sjálfur æfði á sínum yngri
ámm.
Á föstudag og laugardag
verður forsala á bikarúrslita-
leikinn í Samkaup og verður
aðstaða Keflavíkur þar sem
Skóbúð Keflavíkur var til,
liúsa.
Þama verða til sölu bolir,
húfur, treflar og fleira og er
verðinu stillt í hóf og mark-
miðið að Keflvíkingar setji lit
á stúkuna og verði ekki síður
áberandi en Eyjamenn.
KEF til styrktar
Keflvikingaiíi
Jóhann Helgason, tónlistar-
maður og Keflvíkingur hefur
Iátið meistaratlokk Keflavíkur
fá geisladiskinn KEF til sölu
og kostar hann 1800 kr. Af
því fær félagið 1200 kr.
Það er von leikmanna að vel
verið tekið á móti þeim því
diskurinn er góður ekki síður
en verðið.
BIKARINN Á
INTERNETINU:
www.ok.is/vikurfr
Víkurfréttir
BLAÐAUKI 5