Víkurfréttir - 28.08.1997, Page 7
Eigum meiri mögu-
leika en síðast
-segir Kjartan
Másson sem
þjálfað hefur
bæðin liðin
„Þegar við lékum við
ÍA 1993 varSkaga-
liðið afburðalið. Þrátt
fyrir það áttum við í
fíillu tré við þá í úrslitaleiknum og vomm í
lokin klaufar að tapa", sagði Kjartan Másson,
fyrrverandi þjálfari Keflavíkur og IBV.
Kjartan þjálfarði ÍBV þegar liðið varð
bikarmeistari 1981. „Mér fínnst þetta náttúr-
lega ákaflega skemmtilegt núna. Bæði liðin
mín í úrslitum. Það er ekki hægt að hugsa sér
það betra. En nú er ég KeflvQcingur og við
ætlum að vinna þennan leik og komast á
beinu brautina aftur. Þetta verður skemmti-
legur leikur. Eg held að það sé hægt að lofa
því“, sagði Kjartan.
Marco Tanacic skorar gegn ÍA í leiknum 1993
BIKARPUNKTAR 1993
♦ Árið 1993 lenti Keflavík eins og nú bæði
gegn Leiftri og Val á leiðinni í úrslitin.
Leiftursmenn lágu í 8 liða úrslitum 5:2 og
Valsmenn í undanúrslitunt 1:2.
u Óli Þór Magnússon sem nú leikur með
Tindastóli í 4. deild skoraði í öllum leikjum
Keflavíkur á leið í úrslitin árið 1993. Honunt
tókst hins vegar ekki að skora í úrslitaleiknum
sem Keflavík tapaði 1:2 gegn IA.
Fljótir og erfiðir
„Þeir eru hrikalega
erfiðir sóknarmenn
Skagaliðsins,
Alexander, Bibercic
og Þórður. Ég missti
af helv.... þegarhann
gaf fyrir í seinna
markinu. Og ég er
svo sem ekki sá fljót-
asti. En við áttum að gera betur í þessum leik.
Við áttum fullt af færum og með smá heppni
hefðum við getað haldið á bikamum í leik-
slok“, sagði Karl Finnbogason eftir leikinn.
Miðillinn vissi ekki um dómarann
, Jvliðillinn gerði ráð fyrir okkar sigri en vissi
ekki að Þorvarður myndi dæma leikinn, með
þessum hörrnungum“, sagði Ólafur Pétursson,
markvörður ÍBK, sem sagði í viðtali fyrir
leikinn að miðill hefði sagt að hann ætti eftir
að vinna stórverðlaun á næstunni. „Annars
var mjög skemmtilegt að standa í markinu í
bikarúrslitaleik á Laugardalsvelli en auðvitað
var ég ósáttur við úrslitin og sérstaklega fyrra
mark ÍA. Dómarar hafa dæmt á svona brot í
allt sumar. Af hverju ekki í bikarúrslitaleik?
En þetta er allt í lagi, við tökum þetta á næsta
ári. Kannski hefur miðillinn verið of snemma
á ferðinni".
Hirbv nepði sm slæpstu mistok
Þessi umsögn kom í
Tímanum eftir bikar-
úrslitaleik ÍBK og ÍA
1975:
„Það vakti geysilega
athygli, þegar nöfn leik-
manna Akraness voru
lesin, að George Kirby,
hinn snjalli þjálfari
Skagamanna, tefldi ekki
fram landsliðsmön-
nunum Teiti Þórðarsyni
og Bimi Lárussyni. Þetta
var mjög vafasönt
ráðstöfun í svo þýð-
ingarmiklum leik, sem
var hápunktur knattspyr-
nuvertíðarinnar. Kirby
tók þá áhættu að geyma
trompin á hendi þar til
undir lokin. Þar gerði
hann sín stærstu mistök
við spilaborðið, - þessi
snjalli „pókerspilari“
vaknaði upp við vondan
draum, þegar hann
loksins lagði trompin
(Teit og Bjöm) á borðið.
Spilið var tapað, þeir
Guðni Kjartansson og
Jón Jóhannsson, þjál-
farar Keflavíkurliðsins,
stóðu upp frá borðinu
sem sigurvegarar.
Já, þá hló Jón!
Verðbréfareikningur íslandsbanka er góður kostur fyrir fyrirtreki og einstaklinga sem ekki
vilja binda fjármuni sína en njóta samt sem áður hámarksávöxtunar með lágmarksáhættu.
Vextimir taka mið af ríkisvíxlum og er hvert innlegg aðeins bundið í tíu daga en að þeim
tíma loknum er innstæðan alltaf laus. Engin þjónustugjöld eru á reikningnum.
Stofntilboð!
Þeir sem stofna Verðbréfareikning í útihúuin íslandsbanka
fyrir 10. septcmbcr fá hærri vexti til áramóta.
Víkurfréttir
BLAÐAUKI7