Víkurfréttir - 28.08.1997, Side 10
Sigurður Björgvinsson, annar þjálfara Keflavíkur:
Hefur fengið góö ráð
hjá Bjarna frænda
„Þetta er leikur sem alla
knattspyrnumenn dreytnir
um að komast í. Hann
leggst ágætlega í tnig og ég
er hvergi banginn þó ég
neiti því ekki að spennu og
tilhlökkunarfiðringur er
kominn í mann“, segir
Bjarki Guðmundsson,
markvörður Keflvíkinga
sem leysti Ólaf Gott-
skálksson af hólmi í sumar.
Bjarki segist vera öðlast
meiri leikæfmgu með hverj-
um leiknum en það hafi
auðvitað verið stórt stökk
að fara af bekknum inn á
völlinn, - í Keflavíkur-
markið, en fá lið hafa haft á
að skipa jafn mörgum
landsliðsmarkvörðum í
gegnum tíðina. Nægir þar
að nefna Þorstein Ólafsson,
Þorstein Bjamaspn, Bjama
Sigurðsson og Ólaf Gott-
skálksson.
Bjami Sigurðsson sem lék í
marki Keflavíkur, ÍA, Vals
og Stjömunnar nú síðast er
móðurbróðir Bjarka.
„Jú, jú, hann hefur gefið
mér ráð, góð ráð“, sagði
Bjarki sem segist hlakka til
sunnudagsins og vonast til
að geta fetið í fótspor fræn-
da síns sem margoft hefur
hampað bikamum með Val
ogÍA.
Tólfti maðurinn getur hjálpað
okkur að vinna bikarinn
„Eins og staðan er í dag er
engum blöðunt um það að
fletta að líkurnar eru einn á
móti þremur hjá okkur.
Framundan er því sál-
fræðistríð. í öllum þessum
látum og spennu skal
enginn gleyma því að við
mætum dýrvitlausir til
leiks“, sagði Sigurður
Björgvinsson, annar þjál-
fara Keflvíkinga um bikar-
leikinn á sunnudaginn.
Sigurður hefur sex sinnum
leikið bikarúrslit, með KR og
Keflavík en nú er hann í fyrsta
skipti sem þjálfari. „Eigum
við ekki að segja að næsti sex
leikja kafli verði happakafli úr
því hinn var það ekki“.
Sigurður sagðist hafa heyrt af
því að Eyjamenn ætli að fjöl-
menna svo mikið á leikinn að
þeir séu búnir að leigja
flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli til að ná upp
stemmningu fyrir leikinn.
„Þess vegna segi ég bara
hjálpL.því við skulum ekki
gleyma því að góður
stuðningur áhorfenda er oft
tólfti maðurinn í liðinu.
Þannig var þetta í fyrstu
leikjunum í deildinni þegar
okkur gekk mjög vel. Mér
hefur fundist hann vanta að
undanfömu en vona að tólfti
maðurinn verði með okkur á
sunnudaginn. Strákamir eiga
það skilið".
Frá æfingu lijá Keflvíkingum í vikunni. Sigurdur leggur línurnar fyrir æfinguna og næstu daga.
vga i oMar snonum
-segir Gunnar Oddsson, leikmaður og annar þjálfara Keflavíkur
„Ef við spilum með hjartanu
allir sem einn þá er ekki ólík-
legt að við hömpum bikamum
í leikslok", sagði Gunnar
Oddsson, leikmaður og annar
þjálfara Keflavíkur.
, j>ó við séum búnir að ganga í
gegnum erfitt tímabil að
undanförnu má ekki gleyma
þvf að við emm að fara leika
úrslitaleik um annan af
tveimur stærstu titlum sem
keppt er um á Islandi. Það
mundu mörg lið vilja vera í
okkar sporum", sagði Gunnar
sem lék með Keflavík í
bikarúrslitaleiknum gegn IA
1993.
„Þá var IA súperlið eins og
ÍBV er núna. Við vorum
óheppnir að tapa gegn ÍA og
þó okkur hafi ekki gengið
sem best að undanförnu er
bikarleikur allt annað dæmi.
Eg lofa alla vega því að við
mætum eins og hungraðir
úlfar því okkur langar alveg
rosalega mikið í þennan
bikar“, sagði Gunnar
Oddsson.
Bjarki Guðmundsson, mark-
vörður Keflavíkurliðsins
kemur úr markmanns-„ætt".
10 BLAÐAUKI
Víkurfréttir