Fréttablaðið - 15.05.2017, Side 4
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
skipulagsmál Sveitarfélaginu
Vogum hefur borist fyrirspurn frá
Keili – miðstöð vísinda, fræða og
atvinnulífs, um afstöðu sveitar-
félagsins til byggingar flugvallar fyrir
æfinga- og kennsluflug á Stranda-
heiði. Ef af þessum æfingaflugvelli
á Reykjanesi yrði myndi hann anna
öllu kennslu- og æfingaflugi á suð-
vesturhorninu og víðar ef áhugi væri
fyrir hendi.
Bæjarráð Voga tók málið fyrir á
fundi í síðustu viku og vísaði því til
skoðunar hjá umhverfis- og skipu-
lagsnefnd sveitarfélagsins. Eins og
kunnugt er rekur Keilir flugakademíu
þar sem í boði er nám í einkaflugi,
atvinnuflugi, flugþjónustu og flugum-
ferðarstjórn, auk náms í flugvirkjun.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er um tvær flugbrautir að
ræða og er hvor um sig 1,2 kílómetrar
að lengd – eins yrði um aðstöðu fyrir
kennsluvélar að ræða, verkstæði og
geymslur.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í
Vogum, segir að æfingaflugvöllur
krefjist eðlilega breytinga á aðal-
skipulagi sveitarfélagsins, og óform-
leg fyrirspurn hefur verið send til
eiganda landsins sem hér um ræðir.
Lengra sé málið ekki komið á þessu
stigi.
Spurður hvernig áformin horfi
við bæjarstjóranum við fyrstu sýn
segir Ásgeir að ekkert eins og þetta
hafi komið til tals áður og í skipu-
lagsvinnu síðustu ára hafi slíkt
aldrei verið ámálgað. Í því ljósi
falli hugmyndin ekki að skipu-
lagi dagsins í dag. „Að öðru leyti
líst mönnum ekkert illa á þessa
hugmynd – hvorki til né frá,“ segir
Ásgeir. – shá
Keilir vill tveggja brauta kennsluflugvöll og byggja í Vogunum
Menn hafa ekki
mót- að
neina afstöðu
til þessa á
neinn hátt.
Ásgeir Eiríksson,
bæjarstjóri í Vogum
Tölvur „Það er alltaf gott að vera
með uppfærða vél og uppfærðan
hugbúnað vegna þess að þegar
gallar finnast, eins og sá sem er verið
að nýta núna, er í mörgum tilvikum
búið að gefa út uppfærslur fyrir þeim
göllum,“ segir Jón Kristinn Ragnars-
son, öryggisstjóri hjá Þekkingu.
Töluvárásir áttu sér stað á föstu-
daginn víðsvegar um heim og var
hugbúnaður notaður til þess að taka
þúsundir tölva í gíslingu. Um er að
ræða gagnagíslatökuárásir (e. ran-
somware). „Þetta er að dreifast með
svindlpóstum. Það er verið að reyna
að fá þig til að smella á hlekki. Svona
póstar eru alltaf að verða betri og
betri. Þeir eru að komast oftar fram-
hjá þessum venjulegu vörnum,“ segir
Jón Kristinn.
„Við erum farin að treysta mjög
mikið á það að notandinn smelli
ekki á hlekkinn, þess vegna skiptir
máli að fólk sé meðvitað um það.
Allir starfsmenn eru hluti af vörn
fyrirtækisins.“
Margir óttast nú frekari árásir á
morgun en Rob Wainwright, yfir-
maður Europol, segir að árásin hafi
náð til 200 þúsund tölva í að minnsta
kosti 150 löndum. Lögreglunni hefur
ekki borist tilkynning um tilfelli hér
á landi. Jón Kristinn segir að engin
ástæða sé til að halda að þetta hafi
ekki áhrif hérlendis. „Við erum að
nota sama búnað og alls staðar úti
um allan heim.“
Tölvuþrjótarnir læsa nú gögnum
fólks og krefjast greiðslu í staðinn.
Jón Kristinn segir ekki eftirsóknar-
vert að borga. „Það er engin trygging
fyrir því að þú fáir gögnin. Það skiptir
máli fyrir alla að afrita gögnin sín og
vera viss um að þau virki.“
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
það vera að skýrast hvernig tölvu-
árásirnar virki tæknilega og hvað
sé hægt að gera. Hann segir eina
tilkynningu hafa komið frá manni
í gær sem óttaðist að árásin hefði
komið upp hjá sér hérlendis. „Það
verður skoðað. Við teljum að það sé
hugsanlegt,“ segir Hrafnkell.
„Þetta er ekki nýtt. Það eru búnar
að vera stanslausar árásir í marga
mánuði eða misseri. Það sem
aðgreinir þetta er hvernig smitleiðin
er því hún er miklu virkari þannig
að umfangið verður miklu meira.“
Hann tekur undir með Jóni Kristni
að við séum líklega ekki stikkfrí á
Íslandi.
Hann segir brýnt að fólk hér-
lendis setji inn öryggisleiðréttingu
sem stofnunin hefur mælt með. „Það
sem er sérstakt við þennan vírus og
aðgreinir hann frá öðrum er að hann
er með tvöfalda virkni, þá kemur það
sem við köllum tölvuorm, vírusinn
dreifir sér innan staðarnetsins sem
reynir á tiltekinn veikleika. Ef ekki
er búið að setja inn þessa öryggis-
leiðréttingu sem við erum að benda
á að þurfi nauðsynlegar að gera getur
hann tekið yfir heilt staðarnet og
allar tölvurnar í því.“
saeunn@frettabladid.is
Alls óvíst að greiðsla tryggi að
fólk fái gögnin sín til baka
Sérfræðingar óttast frekari tölvuárásir í dag, en árásirnar hófust á föstudag og hafa náð til 200 þúsund tölva í
að minnsta kosti 150 löndum. Íslendingar geta varið sig með því að afrita skjöl, uppfæra vélar sínar og setja
upp öryggisleiðréttingu. Ein tilkynning hefur borist Póst- og fjarskiptastofnun um mögulegt tilfelli hérlendis.
Interpol óttast að fleiri tölvuárásir verði gerðar í dag. NordIcPhotos/Getty
Tækni Hópur verkfræðinga ætlar að
þróa fljúgandi bíl. Bíllinn mun styðj-
ast við drónatækni, vera með þrjú
stýri og fjögur hjól. Bíllinn verður
kallaður Skydrive.
BBC greinir frá því að japanski bíla-
framleiðandinn Toyota muni styrkja
Cartivator-hópinn, sem vinnur að
þróun bílsins, um 40 milljónir jena,
eða 36,8 milljónir króna. Hingað til
hefur þróun bílsins verið fjármögnuð
með hópfjármögnun.
Skydrive mun verða 2,9 metrar á
lengd og 1,3 metrar á hæð og verða
minnsti flugbíll heims. Hámarks-
hraðinn verður um 100 kílómetrar á
klukkustund og mun bíllinn þá verða
í allt að tíu metra hæð.
Vonir eru um að frumgerð af bíln-
um nýtist til að tendra ólympíukynd-
ilinn þegar Ólympíuleikarnir fara
fram í Tókýó árið 2020. – sg
Þróa fljúgandi
bíl fyrir 2020
hópurinn að baki flugbílnum hefur
meðal annars nýtt sér hópfjármögn-
un. MyNd/cartIvator
Það skiptir máli
fyrir alla að afrita
gögnin sín og
vera viss um að
þau virki.
Jón Kristinn
Ragnarsson,
öryggisstjóri hjá
Þekkingu
Danmörk Norrebro Bryghus nýtti
sér 50 þúsund lítra af þvagi sem
safnað var á Hróarskelduhátíðinni
til þess að framleiða bjór. Þvagið
var nýtt sem áburður á kornið sem
notað er í bjórinn.
Bjóráhugamenn segja að bragðið
af bjórnum, sem kallaður er Pisner,
beri það ekki með sér hvernig bygg-
ið er ræktað. – jhh
Þvag nýtt við
framleiðslu bjórs
FerðaþjónusTa Samtök ferða-
þjónustunnar leggjast alfarið gegn
frumvarpi Jóns Gunnarssonar, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
um breytingar á lögum um bílastæða-
gjöld. Með frumvarpinu er gert ráð
fyrir að ráðherra og sveitarstjórnir fái
heimild til að setja reglur um og inn-
heimta gjald fyrir bílastæði og þjón-
ustu sem því tengist, svo sem viðveru
bílastæðavarða og salernisaðstöðu.
„Það er ólíðandi að stjórnlaus gjald-
taka af hálfu opinberra aðila geti við-
gengist hér á landi og gildir þá einu
hvort um bílastæðagjöld eða aðra
innheimtu sé að ræða,“ segja Sam-
tök ferðaþjónustunnar í umsögn
um frumvarpið. Auknar álögur og
gjaldtaka á greinina sé það eina sem
stjórnvöld leggi áherslu á að koma í
framkvæmd án samtals eða samráðs
við hagsmunaaðila og það sé ámælis-
vert. Samtökin hafi vissulega talað á
þeim nótum að gjaldtaka sé eðlileg
ef greitt sé hóflegt og sanngjarnt gjald
fyrir virðisaukandi þjónustu á við-
komustöðum ferðamanna um landið.
„Hins vegar er það algerlega
óásættanlegt ef stjórnvöld eða sveitar-
félög ætla að nýta sér gjaldheimtu og
skattheimtu í ferðaþjónustu, umfram
samkeppnishæfni greinarinnar til að
byggja upp aðra innviði og almanna-
þjónustu,“ segir í umsögninni.
Samtökin kalla eftir samstarfi við
samgönguráðherra og stjórnvöld um
að greina gjaldtökuna og samræma
framkvæmd bílastæðagjalda til að
koma í veg fyrir að sett verði lög sem
festa ferðaþjónustufyrirtæki í viðjum
óþarfa gjaldtöku. Að því loknu sé
hægt að fara í ofangreindar breyt-
ingar á umferðarlögum. – jhh
Gagnrýna fyrirhuguð bílastæðagjöld
Á Þingvöllum eru innheimt bílastæðagjöld á grunni sérlaga. FréttablaðIð/Pjetur
1 5 . m a í 2 0 1 7 m á n u D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
A
-2
0
F
4
1
C
D
A
-1
F
B
8
1
C
D
A
-1
E
7
C
1
C
D
A
-1
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K