Fréttablaðið - 15.05.2017, Síða 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Fundur um stöðuna
á húsnæðismarkaði
Dagskrá:
Niðurstöður viðhorfskönnunar
Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði
Leiguheimili íbúðafélagsins Bjargs
Björn Traustason, framkvæmdastjóri
Fundarstjóri er Sigrún Ásta Magnúsdóttir,
sérfræðingur hjá Hagdeild Íbúðalánasjóðs.
Staður: Íbúðalánasjóður, Borgartúni 21
Stund: 18. maí, kl. 12–13:15
Skráning á ils.is
Pólitískir loftfimleikar snúast iðulega um undan-brögð, eftiráskýringar og kúvendingu í stefnumálum. Ríkisstjórnin iðkar þá íþrótt nú af miklum móð.
Síðasta haust voru framhaldsskólarnir plataðir til
að sættast á styttingu úr fjórum árum í þrjú undir því
yfirskini að það ætti að styrkja fjárhagsgrunn þeirra. Fyrr-
verandi menntamálaráðherra sór að við þetta yrði staðið
en nýr ráðherra hefur nokkrum mánuðum síðar gengið
hraustlega á bak orða forvera síns.
Í fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar sagði um stytt-
ingu framhaldsskólans: „Áætlunin gerir ráð fyrir að allur
sá sparnaður sem muni falla vegna styttingarinnar muni
haldast innan kerfisins og fari í að efla framhaldsskóla-
stigið enn frekar.“
Í nýrri fjármálaáætlun sem bíður samþykktar þingsins
er öllu snúið á haus: „Eins og í fyrri fjármálaáætlun er gert
ráð fyrir að umtalsverður sparnaður komi fram í fram-
haldsskólakerfinu vegna styttingar námstíma til stúdents-
prófs úr fjórum árum í þrjú og sá sparnaður endurspeglast
í lægri framlögum til málefnasviðsins.“
Sem sagt, á nokkrum mánuðum hafa fyrirheitin verið
svikin.
Í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar (bls. 265)
er sérstaklega tekið fram að langvarandi aðhald í fjár-
heimildum framhaldsskóla hafi sett mark sitt á starfsemi
og rekstrarstöðu þeirra. Undirfjármögnun hafi bitnað
á gæðum kennslu og námsframboði. Hvorki hafi verið
unnt að veita viðunandi stoðþjónustu né endurnýja
búnað og kennslutæki. Eftir slíka klausu mætti gera ráð
fyrir að í kjölfarið fylgdu upplýsingar um stórauknar
fjárheimildir sem gerðu skólunum kleift að bæta stöðuna
svo um munaði, en svo er ekki, þvert á móti. Áætlað er að
yfir 600 milljónir hverfi út úr framhaldsskólakerfinu til
ársins 2022, á gildistíma fjármálaáætlunarinnar. Nær væri
að spýta hraustlega í, að minnsta kosti standa við gefin
loforð.
Það þarf að búa íslenskt samfélag undir stórkostlegar
breytingar í atvinnuháttum, samfara tæknibyltingu sjálf-
væðingar, tölvu og gervigreindar, sem er framundan. Þar
mun aukin og bætt menntun landsmanna leika algjört
lykilhlutverk.
Að pissa í skóinn sinn
Á nokkrum
mánuðum
hafa fyrir-
heitin verið
svikin.
Logi Einarsson
formaður Sam-
fylkingarinnar
Að það sé
orðið löngu
tímabært að
það sé til
vinna fyrir
fólkið en ekki
fólk fyrir
vinnu, eftir
hentug-
leikum þeirra
sem höndla
með afla-
heimildir í
fiskinum
okkar allra.
Eftir að hafa mátt um nokkra hríð bíða í óvissu um framtíð starfa sinna á Akranesi var fiskvinnslufólki HB Granda tilkynnt um niðurstöðuna. Alls 86 starfsmönnum HB Granda verður sagt upp störfum fyrir mánaðamót og geta þeir í besta falli vonast
eftir því að verða boðið sambærilegt starf í Reykjavík.
En á meðan fiskverkafólkið á Akranesi bíður eftir upp-
sagnarbréfunum sínum bíða hluthafar í HB Granda
eftir því að arður verði greiddur út fyrir árið 2016 en
ein króna verður greidd í arð á hvern hlut. Fjárhæðin
verður greidd út þann 31. maí næstkomandi og nemur
alls 1,8 milljörðum króna sem hluthafarnir skipta á
milli sín. Það er því óhætt að segja að hlutskipti starfs-
manna og eigenda fyrirtækisins sé ólíkt.
„HB Grandi er traustur vinnustaður þar sem stjórn-
endum og starfsmönnum er annt um vellíðan og heil-
brigði samstarfsfólks síns,“ stendur á heimasíðu fyrir-
tækisins undir fyrirsögninni Vellíðan og starfsandi.
Kannski þessi setning verði svo bara tekin af heima-
síðunni þegar búið verður að segja upp 86 manns
fyrir mánaðamótin til þess að hámarka frekar hagnað
fyrirtækisins. Hámarka arðgreiðslur til eigenda
fremur en að stuðla að stöðugleika fyrir starfsfólkið og
Akranes. Hámarka arðgreiðslur til Vogunar, Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna, Gildi lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins A-deildar og Arion banka og
þannig mætti áfram telja af lista stærstu hluthafa í HB
Granda.
Saga HB Granda og Akraness er auðvitað ekkert
einsdæmi. Langt frá því. Allt síðan kvótakerfinu var
komið á til þess að koma í veg fyrir að íslensk útgerð
gengi af miðunum dauðum með ofveiði hafa bæjar-
félög víða um land mátt búa við óöryggi þar sem
framtíð fólks og byggða hefur verið í höndum örfárra
einstaklinga í krafti kvóta sem þeir hafa fengið að
sýsla með óáreittir og án ábyrgðar. Kvóta sem er
ekkert annað en hlutdeild í auðlind sem er auðvitað
þjóðarinnar allrar en ekki fárra útvalinna einstaklinga
og hagsmunaaðila sem hafa ítrekað tekið eigin hags-
muni fram yfir hagsmuni heildarinnar.
Aðstæður fiskverkafólksins á Akranesi eru langt frá
því að vera einsdæmi í sögu íslenska fiskveiðistjórn-
unarkerfisins, en það merkilega er að enn og aftur
virðast aðstæður á borð við þessar koma stjórnmála-
mönnum nokkuð á óvart. Enda keppast þeir nú við
að lýsa því yfir að eitthvað þurfi til bragðs að taka. Við
núverandi aðstæður verði ekki lengur unað, en svo
sýnist sitt hverjum hvað sé þá helst til ráða. Því verður
kannski nú sem endranær minna um aðgerðir og
meira um yfirlýsingar. En við skulum samt vona ekki.
Við skulum vona að stjórnmálin geri sér grein fyrir
því að nú sé siðferðilegum botni náð. Að það sé orðið
löngu tímabært að það sé til vinna fyrir fólkið en ekki
fólk fyrir vinnu, eftir hentugleikum þeirra sem höndla
með aflaheimildir í fiskinum okkar allra. Að tími rót-
tækra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu sé löngu
runninn upp og að hagsmunir byggða landsins og
þjóðarinnar í heild sinni verði hafðir að leiðarljósi.
Botninum náð
Pirraður aðstoðarmaður
Stundum eiga stjórnmálamenn
erfitt með að horfast í augu við
sannleikann. Á dögunum sagði
Nichole Leigh Mosty, þing-
maður Bjartrar framtíðar og
fulltrúi í allsherjar- og mennta-
málanefnd, að hugsanlega væri
rétt að fresta frumvarpi um jafn-
launavottun til næsta hausts.
Karl Pétur Jónsson, sem er
pólitískur ráðgjafi jafnréttisráð-
herra, segir þingmanninn hafa
verið dreginn inn í „ruglviðtal
í Fréttablaðinu“, eins og hann
orðaði það í Silfri Egils í gær.
Bætti hann við að verið væri að
„teikna upp einhverja atburða-
rás sem er ekki í gangi“.
Raunsæ skoðun
Það er kannski skiljanlegt
að maður sem hefur varið
drjúgum hluta starfsævi
sinnar sem almannatengill,
við að hafa markvisst áhrif á
skoðanir annarra, skuli ætla
öðrum það að teikna upp
einhverja tiltekna atburðarás.
Fréttin byggði þó einungis á
ummælum sem þingmaðurinn
lét flakka af fúsum og frjálsum
vilja. Samkvæmt dagskrá
þingsins eru tvær vikur eftir
af starfi þess. Og Nichole
segir mikinn fjölda þingmála
liggja fyrir til umfjöllunar hjá
nefndinni. Hugsanlega nær
nefndin að vinna þrekvirki og
klára þau öll. En líklegra er að
þingmaðurinn tali af raunsæi.
jonhakon@frettabladid.is
1 5 . m a í 2 0 1 7 m Á N U D a G U R8 s k o ð U N ∙ F R É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
A
-2
F
C
4
1
C
D
A
-2
E
8
8
1
C
D
A
-2
D
4
C
1
C
D
A
-2
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K