Fréttablaðið - 15.05.2017, Page 12
1 5 . m a í 2 0 1 7 m Á N U D a G U R12 S p o R t ∙ F R É t t a B L a ð i ð
sport
Stjarnan strengdi sér líflínu með sigri í Mýrinni
2-1 Stjarnan er enn á lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna en liðið vann 23-19 sigur á Fram í þriðja leik liðanna á heimavelli sínum í Mýrinni í Garðabæ í gær.
Fram vann fyrstu tvo leikina og hefði fengið bikarinn afhentan með sigri í gær en Stjarnan kom gríðarlega ákveðin til leiks og var 10-3 yfir eftir rétt ríflega 20 mínútna leik. Forystuna lét
liðið aldrei af hendi en hér fagnar Heiða Ingólfsdóttir sigrinum með varnarjaxlinum Rakel Dögg Bragadóttur. Fréttablaðið/anton brink
HaNDBoLti Handboltalið Víkings
gæti átt von á góðum fréttum í dag
þegar skráningarfrestur vegna þátt-
töku á Íslandsmótinu rennur út og
deildaskipting verður í kjölfarið
gefin út.
Víkingar eiga nefnilega von á sæti
í úrvalsdeildinni fari svo að fjölgað
verði í deildinni upp í tólf lið eins
og allt stefnir í miðað við fjölda liða
sem hafa skráð sig til leiks. Þetta
segir Róbert Geir Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Handknattleikssam-
bands Íslands, í samtali við Frétta-
blaðið.
„Við gefum ekkert út um fjölda
liða í deildunum fyrr en skráning-
arfresti lýkur en við reiknum með
fjölgun liða í efstu deild. Það eru
yfirgnæfandi líkur á því. Það stefnir
í að það verði í heildina fleiri lið
sem keppa á næsta tímabili heldur
en á því síðasta þrátt fyrir að KR hafi
ákveðið að draga sitt lið úr keppni,“
segir Róbert Geir.
Eiga ekki sætið
Miklar deilur hafa verið innan KR
um helgina eftir að ákveðið var að
senda meistaraflokk félagsins ekki
til leiks næsta vetur. KR-ingar komu
öllum á óvart og unnu Víkinga í
undanúrslitum umspils 1. deildar
og voru þannig með sæti víst í efstu
deild á næstu leiktíð ef svo færi
að fjölgað yrði í deildinni sem allt
stefnir í.
Aðalstjórn KR, ásamt stjórn
handknattleiksdeildar, komst að
þeirri niðurstöðu að senda liðið
ekki til þátttöku sem gerði marga
KR-inga mjög reiða. KR hefði með
fjölgun spilað á meðal þeirra bestu
á næstu leiktíð en umræðan segir
Róbert að hafi verið á villigötum því
Vesturbæingar séu ekki að gefa eftir
úrvalsdeildarsæti. Ekki sé hægt að
gefa frá sér eitthvað sem lið á ekki.
„Umræðan hefur verið á rangri
braut. KR er 1. deildar lið
enn þá alveg eins og það
var í vetur. Stjarnan er
líka 1. deildar lið því það
hafnaði í níunda sæti
efstu deildar og féll.
Stjarnan heldur bara
sæti sínu ef það er fjölg-
að. KR hefði farið upp
ef fjölgað væri en það
getur ekki gefið eftir
sæti sem það á ekki,“
segir Róbert Geir.
reglurnar skýrar
Þar sem allt stefnir í
að fjölgað verði í tólf
liða efstu deild þarf
að bæta við einu liði.
Akureyri Handbolta-
félag lenti í neðsta sæti
og féll og á ekki rétt á sæti í efstu
deild hvort sem liðið heldur því
nafni eða skiptir sér upp í KA og Þór
á ný. Þórsarar eru reyndar búnir að
hafna slitum KA og á eftir að koma
í ljós hvað verður fyrir norðan. Ekk-
ert af þessum þremur félögum, ef
þannig má að orði komast, verður
í efstu deild á næsta ári heldur eru
það Víkingar sem bíða spenntir.
„KR ákvað að skrá sig ekki
til leiks en það var fyrsta
liðið til að taka laust sæti
í efstu deild sem það lið
sem tapaði í úrslitum
umspils 1. deildar á
móti ÍR,“ segir Róbert
er hann útskýrir regl-
urnar. Hann segir
þær mjög skýrar.
„Á eftir liðinu
sem tapar í umspil-
inu kemur liðið
sem hafnaði í níunda
sæti efstu deildar sem
er Stjarnan og þannig
heldur hún sæti sínu en
þá á enn þá eftir að bæta
við liði þar sem allt stefnir í fjölgun
og KR skráir sig ekki til leiks. Þriðja
liðið er það lið sem hafnaði efst í
deildarkeppninni í 1. deild af þeim
liðum sem eru ekki komin upp nú
þegar og ætla að skrá sig til leiks.
Það eru Víkingar,“ segir Róbert
Geir.
Gætu orðið þrjár deildir
Ekki nóg með að loksins sé aftur
verið að fjölga í tólf liða efstu deild
sem margir hafa beðið spenntir eftir
þá er áhuginn svo mikill í hand-
boltanum að þrjár deildir eru mjög
raunhæfur möguleiki.
„Við gefum út deildaskiptinguna
á morgun eftir að við setjumst yfir
þetta með mótanefnd. Það voru
24 lið sem kepptu á síðasta tíma-
bili í karlaboltanum en nú gætu
þau orðið 27. Það eru fleiri U-lið að
skrá sig og svo gæti Hvíti Riddarinn
komið inn í þetta,“ segir Róbert og
heldur áfram:
„Fari svo að 27 lið skrái sig til leiks
verðum við með tólf liða efstu deild,
átta liða 1. deild og restin, sjö plús
lið, spila í 2. deild. Mesta flækju-
stigið verður ef það verður spilað í
þremur deildum. Þá gæti frestun á
útgáfu deildafyrirkomulagsins eitt-
hvað frestast annars verður þetta
allt klárt á morgun,“ segir Róbert
Geir Gíslason. tomas@365.is
Yfirgnæfandi líkur á fjölgun
liða og Víkingar eru næstir inn
Víkingar eiga mjög líklega von á góðum fréttum í dag þegar deildaskipan fyrir næsta vetur í handboltanum
verður gefin út. KR-ingar ætla ekki að senda lið til leiks en þeir eru ekki að gefa frá sér sæti í efstu deild.
FótBoLti Sara Björk Gunnarsdóttir
varð í gær Þýskalandsmeistari
með Wolfsburg þrátt fyrir nokkuð
óvænt 2-0 tap á móti Freiburg á úti-
velli. Fráfarandi meistarar Bayern
München gerðu Wolfsburg greiða
með því að vinna Turbine Potsdam
en það var eina liðið sem átti mögu-
leika á því að verða meistari ásamt
Söru og félögum.
Fyrir leikinn í gær var Wolfsburg
búið að vinna þrettán leiki í röð en
það er nú aftur komið á toppinn í
þýska boltanum eftir að hafa horft
upp á Bayern vinna deildina undan-
farin tvö tímabil.
Atvinnumannsferill Söru Bjarkar,
sem hefur stimplað sig inn sem
ein af bestu miðjukonum Evrópu
undanfarin misseri, heldur áfram að
gefa. Þetta er í fimmta sinn sem hún
verður landsmeistari en Sara varð
fjórum sinnum Svíþjóðarmeistari
með Rosengård áður en hún flutti
sig til Wolfsburg sem er eitt allra
besta félagslið heims.
Landsmeistari
í fimmta sinn
Sara getur einnig orðið bikarmeistari
í lok maí. nordicphotoS/GEtty
Ágúst Þór Jóhannsson
féll með Víkinga í fyrra
en kom kr upp með sigri
á Víkingi en þarf líklega
að sjá á eftir Víkingum
upp í efstu deild.
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
A
-1
7
1
4
1
C
D
A
-1
5
D
8
1
C
D
A
-1
4
9
C
1
C
D
A
-1
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K