Fréttablaðið - 15.05.2017, Side 30
Ein ákvörðun breytti öllu hjá meisturum Chelsea
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, tók risastóra ákvörðun snemma á tímabilinu sem skilaði liðinu á endanum sjálfum Englandsmeistaratitlinum.
fótbolti Að kvöldi laugardagsins
24. september tók Antonio Conte,
knattspyrnustjóri Chelsea, ákvörð-
um sem átti eftir að breyta gengi
liðsins í ensku úrvalsdeildinni og
hafa svo mikil áhrif á fótboltaheim-
inn að þau náðu meira að segja til
litla Íslands.
Ítalinn var búinn að tapa tveimur
stórleikjum í röð með Chelsea;
á móti Liverpool og svo Arsenal
þennan örlagaríka laugardag.
Hann þurfti að ákveða hvort hann
færi í leikkerfi sem skilaði honum
þremur Ítalíumeistaratitlum í röð,
3-4-3, eða halda sig við fjögurra
manna línuna.
Conte treysti á leikmannahópinn
og kerfið sem hann þekkir svo vel.
Uppskeran? Öruggur Englands-
meistaratitill á hans fyrstu leiktíð
sem knattspyrnustjóri í erfiðustu
deild heims.
Hugrekkið sem hann sýndi var
mikið og traustið á leikmanna-
hópnum sömuleiðis því Conte var
að stýra Ítalíu á EM síðasta sumar
og hafði lítinn sem engan tíma til að
þjálfa upp 3-4-3 kerfið fyrir leiktíð-
ina. Hann þurfti að henda mönnum
í djúpu laugina með þetta á miðju
tímabili.
Þrettán í röð
Þú veist að þú tókst rétta taktíska
ákvörðun þegar liðið þitt vinnur
þrettán leiki í röð. Sú var raunin
hjá Chelsea sem hóf að valta yfir
deildina og var gjörsamlega óstöðv-
andi. Manchester United var lagt
að velli, 4-0, Everton fékk 5-0 skell,
Tottenham lá í valnum á Brúnni,
Gylfi hélt Svönunum á flugi
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans
í Swansea eru öruggir með sæti sitt í
ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð
eftir 2-0 sigur á Sunderland um helgina
og fína hjálp frá Crystal Palace sem
rassskellti Hull, 4-0, og sendi Hull niður í
B-deildina.
Aðra leiktíðina í röð bjargar Swansea
sér frá falli eftir mikla fallbaráttu og
aftur var aðalmaðurinn Gylfi Þór
Sigurðsson. Gylfi lagði upp fyrra mark
Swansea á móti Sunderland fyrir
Fernando Llorente en samvinna þeirra í
föstum leikatriðum er engu lík.
Þetta var þrettánda markið sem Gylfi
Þór leggur upp fyrir Swansea á tímabil-
inu en hann er auk þess búinn að skora
níu mörk og því koma að í heildina 22 af
43 mörkum Svananna á leiktíðinni eða
rétt tæpum helmingi allra marka liðsins.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Liverpool vann 4-0
sigur á West sem fór
langt með að tryggja
liðinu sæti í Meistara-
deildinni á næstu
leiktíð sem var markmið
lærisveina Jürgens Klopp fyrir
tímabilið. Arsenal hefur verið
að sækja í sig veðrið og var búið
að minnka muninn á milli sín
og Liverpool í eitt stig áður en
Liverpool mætti til Lundúna um
helgina. Arsenal á líka tvo leiki til
góða og því var þetta lífsnauðsyn-
legur sigur fyrir Liverpool.
Hvað kom á óvart?
Það var í raun ekkert sem kom
á óvart í ensku úrvalsdeildinni
þessa helgina.
Mestu vonbrigðin
Frammistaða Hull í
leik sem liðið þurfti
sárlega að vinna til
að halda sæti sínu í
deildinni var hálfpart-
inn til skammar. Crystal
Palace siglir lygnan sjó en komst
auðveldlega í 2-0 og bætti svo við
tveimur mörkum undir lokin og
vann, 4-0. Hull-liðið hefur verið
nokkuð öflugt að undanförnu og
strengt sér hverja líflínuna á fætur
annarri en að tapa 4-0 í svona leik
á ekki að sjást.
2-1 og City var skellt á útivelli, 3-1,
á þessum þrettán leikja spretti.
„Þessi ákvörðun breytti tíma-
bilinu okkar. Við þurftum að finna
nýja lausn og nýtt kerfi sem myndi
henta liðinu betur. Ég vissi alltaf að
ég gæti spilað 3-4-3 kerfið vegna
þess að ég hef leikmennina í það.
Við vorum ekki heppnir heldum
stóðum við okkur bara frábærlega.
Ég og leikmennirnir unnum þennan
titil saman,“ sagði glaðbeittur Conte
eftir sigurinn á West Bromwich
Albion á föstudagskvöldið þar sem
Lundúnaliðið endanlega geirnegldi
Englandsmeistaratitilinn.
Fær það besta út úr öllum
Conte sýndi hæfni sína svo um mun-
aði á þessari leiktíð en hann hefur
fengið mikið lof fyrir að kreista allt
út úr leikmannahópnum og búa
til dæmis frábæran vængbakvörð
úr Victori Moses sem hefur annars
verið lánaður frá félaginu á hverju
ári undanfarnar leiktíðir.
Persónur og leikendur eru vel
þekktar hjá Chelsea; liðið er með
tvo af allra bestu leikmönnum
deildarinnar í N’Golo Kante og Eden
Hazard, Diego Costa er einn besti
framherji Evrópu og markvörðurinn
Thibaut Cortouis er magnaður.
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 37. umferðar 2016-17
Man. City - Leicester 2-1
1-0 David Silva (29.), 2-0 Gabriel Jesus (36.),
2-1 Shinji Okazaki (42.).
Bournem. - Burnley 2-1
1-0 Junior Stanislas (25.), 1-2 Sam Vokes
(83.), 2-1 Joshua King (85.).
M.Boro - Southampton 1-2
0-1 Jay Rodriguez (42.), 0-2 Nathan Red-
mond (57.), 1-2 Patrick Bamford (72.).
Sunderland - Swansea 0-2
0-1 Fernando Llorente (9.), 0-2 Kyle Naug-
hton (45.).
Stoke - Arsenal 1-4
0-1 Oliver Giroud (42.), 0-2 Mesut Özil (55.),
1-2 Peter Crouch (67.), 1-3 Alexis Sánchez
(76.), 1-4 Oliver Giroud (80.).
C. Palace - Hull 4-0
1-0 Wilfried Zaha (3.), 2-0 Christian Benteke
(34.), 3-0 Luka Milivojevic (85.), 4-0 Patrick
van Aanholt (90.)
West Ham - Liverpool 0-4
0-1 Daniel Sturridge (35.), 0-2 Philippe
Coutinho (57.), 0-3 Philippe Coutinho (61.),
0-4 Divock Origi (76.).
Tottenham - Man. Utd 2-1
1-0 Victor Wanyama (6.), 2-0 Harry Kane
(48.), 2-1 Wayne Rooney (71.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Chelsea 36 28 3 5 76-29 87
Tottenham 36 24 8 4 73-24 80
Liverpool 37 21 10 6 75-42 73
Man. City 36 21 9 6 72-38 72
Arsenal 36 21 6 9 72-43 66
Man. Utd 36 17 14 5 52-29 65
Everton 37 17 10 10 61-41 61
WBA 36 12 9 15 41-46 45
Southamp. 36 12 9 15 41-47 45
B’mouth 37 12 9 16 54-66 45
Leicester 36 12 7 17 46-56 43
West Ham 37 11 9 17 45-63 42
Crystal P. 37 12 5 20 50-61 41
Stoke 37 10 11 16 40-56 41
Burnley 37 11 7 19 38-53 40
Watford 36 11 7 18 37-59 40
Swansea 37 11 5 21 43-69 38
Hull 37 9 7 21 36-73 34
Boro 37 5 13 19 27-50 28
Sunderland 36 6 6 24 28-62 24
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum á Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Lagði upp þrettánda
markið sitt á leiktíðinni í
2-0 sigri Swansea sem á endanum
hélt liðinu í deildinni.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
Var ekki í leikmannahópi
Fulham í fyrri umspils-
leiknum á móti Reading vegna
meiðsla.
Antonio Conte hefur heillað fótboltaáhugamenn á Englandi og víðar með ástríðu sinni en þessi jakkafataklæddi herramaður er svo miklu meira en bara ástríðan. Hann er einn af bestu þjálfurum heims í dag ef ekki sá besti. NoRdiCPHoToS/GETTy
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Kom inn á sem varamaður
á 75. mínútu í 2-1 tapi
Burnley á móti Bourne-
mouth á útivelli.
HAMiLToN fyrSTUr Í MArK
Lewis Hamilton á Mercedes vann
sigur í Spánarkappakstrinum í
formúlu 1 í gær sem fram fór í
Barcelona. Hamilton átti helgina
en hann var á ráspól, átti besta
tímann á einstökum hring og stóð
svo uppi sem sigurvegari. Sebasti-
an Vettel á ferrari varð þriðji
og Daniel ricciardo á red Bull
hafnaði í þriðja sæti. Vetta heldur
forskotinu í heimsmeistarakeppni
ökuþóra með 104 stig en Hamilton
er annar með 98 og Valteri Bottas
er með 63.
1 5 . m a í 2 0 1 7 m Á N U D a G U R14 S p o R t ∙ f R É t t a b l a ð i ð
1
5
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:4
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
A
-1
2
2
4
1
C
D
A
-1
0
E
8
1
C
D
A
-0
F
A
C
1
C
D
A
-0
E
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K