Fréttablaðið - 15.05.2017, Side 32

Fréttablaðið - 15.05.2017, Side 32
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Geirharður Þorsteinsson arkitekt, lést á hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 4. maí síðastliðinn. Útför fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 16. maí, kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Guðný Helgadóttir Þorsteinn Geirharðsson Helgi Geirharðsson Kristín Helga Gunnarsdóttir Kormákur Geirharðsson Dýrleif Örlygsdóttir Halldóra Geirharðsdóttir Nicolas Pétur Blin barnabörn og barnabarnabörn. Hollywood-leikarinn John Travolta kom til Íslands fyrir 30 árum, eða 15. maí 1987. Hann fór meðal annars að sjá sýningu á Broadway. Í samtali við DV sagðist hann hafa haft allt of lítinn tíma til þess að skoða sig um. „Það var alltof lítill tími til þess að skoða Ísland núna og ég vildi svo sannarlega koma aftur. En það sem ég sá er einstaklega fallegt,“ sagði hann. Travolta fæddist árið 1954 í New Jersey í Bandaríkjunum. Hann ólst upp í fátækt en móðir hans skráði hann í leiklistarskóla í New York. Hann fékk fyrsta hlutverk sitt þegar hann var sextán ára gamall og þar með lauk skólagöngu hans. Hann vann til Óskarsverðlauna og Golden Globe verðlauna fyrir hlutverk sitt í Saturday Night Fever árið 1977 og árið 1978 lék hann í sinni þekktustu bíómynd, Grease. Travolta ræddi bernsku sína í viðtali við DV. „Þekkirðu þann hluta lægri þrepa þjóðfélagsins sem kallaður er hin vinnandi stétt? Þaðan er ég upprunninn. Átti írska móður, sem nú er látin, og faðir minn, sem einmitt er með mér núna, er af ítölskum ættum,“ sagði hann og viður- kenndi að ýmislegt hefði breyst frá því að hann var barn. „Og ég er hæstánægður með skiptin,“ sagði hann. Þ etta g e r ð i st : 1 5 m a í 1 9 8 7 Travolta á Íslandi Merkisatburðir Undanfarin ár hefur við og við skotið upp kollinum umræða um að flytja fimm ára börn af leikskólastiginu og yfir í grunnskóla. „Það hefur verið gert í sumum sveitar- félögum, við þekkum sveitarfélög eins og garðabæ þar sem hluti barna fer í grunnskóla fimm ára. Það eru heilu sveitarfélögin eins og í Vestmannaeyjum þar sem fimm ára börn fara í deild við grunnskólann og svo framvegis. akur- eyri er að byrja að tala um að flytja öll fimm ára börn yfir í grunnskóla,“ segir Kristín Karlsdóttir, lektor við mennta- vísindasvið Hí. Hún segir ástæðuna alla jafna vera þá að það þurfi að rýma til í leikskólunum til að koma yngstu leik- skólabörnunum að. „Oftast er þetta því af praktískum ástæðum,“ segir hún. Kristín segir þessa umræðu hafa áhrif inn í leikskólana sem velti því fyrir sér hvort þeir undirbúi börn nógu vel undir grunnskólann. „Það skiptir máli hvernig grunnskólarnir taka á móti fimm ára börnum, hvernig þeim er mætt.“ Umræða um menntun fimm ára barna er viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á grand Hóteli milli kl. 9.30 og 16.30 í dag. „Okkur fannst mikilvægt að reyna að ræða þetta í víðu samhengi og auðvitað fyrst og fremst með hliðsjón af því hvað þessi aldurshópur þarf. Hvers konar menntun við þurfum að bjóða þeim upp á,“ segir Kristín. ráðstefnan er haldin á tíu ára afmæli rannung sem er rekið á vegum mennta- vísindasviðs og hefur það að markmiði að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna á aldrinum 0 til 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði. „Það er á þessu sviði sem við höfum aðallega verið að rannsaka börn á leik- skólaaldri og fyrstu árum grunnskólans,“ segir Kristín. jonhakon@frettabladid.is Menntun barna rædd á faglegum forsendum Reglulega skýtur upp kollinum umræða um að færa menntun fimm ára barna í grunn- skólann. Ástæðurnar eru yfirleitt af praktískum toga. Menntun fimm ára barna verður rædd á faglegum forsendum á Grand Hóteli í dag á ráðstefnu í tilefni afmælis Rannung. Menntun fimm ára barna verður til umræðu á ráðstefnu á Grand Hóteli í allan dag. fréttablaðið/vilHelM Það er á þessu sviði sem við höfum aðallega verið að rannsaka börn á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskólans. 1811 Paragvæ fær sjálfstæði frá Spáni. 1897 Sigfús Eymundsson flytur til landsins grafófón og er sagt frá því í auglýsingu að tækið tali og syngi ýmis lög. 1937 Hátíð er haldin á Íslandi í tilefni af 25 ára stjórnar- afmæli Kristjáns konungs tíunda. 1941 Alþingi samþykkir að fresta alþingiskosningum um allt að fjögur ár vegna hernámsins. Kosningar fóru þó fram árið eftir. 1948 Enski tónlistarmaðurinn Brian Eno fæðist. 1952 Fiskveiðilögsaga Íslands er færð út í fjórar mílur en var áður þrjár. 1967 Fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið er frumsýnt: Jón gamli eftir Matthías Johannessen. 1976 Keflavíkurganga á vegum herstöðvaandstæðinga er gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur. 1980 Jóhann Hafstein, fyrrverandi forsætisráðherra, deyr. 1 5 . m a í 2 0 1 7 m Á N U D a G U R16 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 1 5 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :4 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C D A -2 0 F 4 1 C D A -1 F B 8 1 C D A -1 E 7 C 1 C D A -1 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.